Bændablaðið - 28.02.2019, Side 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. febrúar 201920
Þrátt fyrir að verulega hafi verið
gengið á regnskóga heimsins á
undanförnum 35 árum árum,
þá hafa skógar í heild á jörðinni
stækkað, svo undarlega sem það
kann að virðast. Tré þekja nú
um 2,24 milljónum ferkílómetra
stærra svæði en þau gerðu fyrir
einni öld, samkvæmt rannsókn
sem birt var í tímaritinu Nature
á síðasta ári.
Rannsóknin sem leidd var af Xia-
Peng og Mathew Hansen í Maryland
háskólanum í Bandaríkjunum
er m.a. byggð á mælingum með
gervihnöttum á árunum frá 1982 til
2016. Var þá jörðinni svæðisskipt
þar sem tré eru 5 metrar eða hærri,
gróður undir 5 metra hæð, graslendi,
landbúnaðarland, berangur, sandar,
túndra og klettar.
Endurheimt skóglendis hefur
verið með einsleitari ræktun
Í rannsókninni kemur fram
að skógrækt yfirgnæfir þá
skógareyðingu sem átt hefur sér
stað í regnskógunum. Gallinn á
þessu er samt sá að með skipulagðri
skógrækt manna verða skógarsvæðin
einsleitari. Skógarkrónan ekki
eins þétt og skógarnir ekki eins
fjölskrúðugir af plöntum og dýralífi
og villtu frumskógarnir sem verið
er að eyða.
Viðsnúningur í hugsun eftir
seinni heimsstyrjöld
Mikil skógareyðing átti sér
stað í Evrópu fram yfir seinni
heimsstyrjöldina, en þá hófst
viðsnúningur sem enn stendur. Á
Íslandi náðu þessar hugmyndir ekki
að skjóta rótum að neinu ráði fyrr
en um eða eftir 1970 og eiginlega
ekki að neinu marki fyrr en síðustu
30 árin.
Richard Fuchs hjá Wageningen-
háskóla í Hollandi stýrði
rannsóknarverkefni sem ætlað var
að sýna hnignun og vöxt skóglendis
í Evrópu frá árinu 1900. Samkvæmt
rannsókninni eru skógar Evrópu
grænni nú en fyrir 100 árum.
Um aldamótin 1900 var harla
lítið eftir af upprunalegum skógum
í Evrópu. Gríðarlega hafði þá verið
gengið á skógana vegna notkunar
á timbri í byggingar, skip og
eldivið, m.a. til húshitunar og fyrir
málmiðnaðinn. Aðeins mun nú vera
að finna um 140.000 hektara af
gömlum upprunalegum frumskógum
í Evrópu.
Eftir stríð hafa orðið miklar
breytingar víða um álfuna með
stóraukinni skógrækt. Þess má sjá
mjög glöggt merki í Frakklandi,
á Spáni, í Portúgal og á Ítalíu. Í
Bretlandi og þá ekki síst í Skotlandi
og á Írlandi hefur umfang skóga
margfaldast, þótt graslendi sé enn
langstærsti hluti gróðurþekjunnar.
Eftirstríðsvakning í skógrækt
Eftir aldamótin 1900 og sérstaklega
eftir seinni heimsstyrjöldina
hófu Evrópuríkin umfangsmikla
endurrækt skóga sem stendur enn.
Þótt timbur hafi áfram verið nýtt af
miklum krafti, m.a. til pappírsgerðar,
þá hafa iðnfyrirtækin séð það í
hendi sér að gjöreyðing skóga
þýddi um leið dauða fyrirtækjanna
sem lifðu á timbri sem hráefni. Í
pappírsiðnaðinum var því fljótlega
farið að stunda þá iðju að í stað hvers
trés sem fellt var var plantað tveim
í staðinn til að tryggja sjálfbærni
greinarinnar.
Mest er nýtt af barrtrjám, þ.e.
furu og greni, og tiltölulega mjúkum
trjávið í pappírsgerð. Þykir hann
henta best vegna langra trefja.
Kanadamenn hafa verið stórtækir á
þessu sviði sem og Svíar, Norðmenn,
Finnar og Bandaríkjamenn. Einnig
er talsvert nýtt af bómull í fínni
pappírsgerð. Þá hefur færst mjög í
aukana að endurvinna pappír. Mest
er um endurvinnslu á pappír sem
fellur til í prentsmiðjum, enda er
hann hreinni og betur flokkaður
en almennt gerist við flokkun frá
heimahúsum. Þannig borgar sig
ekki að endurvinna hvaða pappír
sem er og endar illa flokkaður pappír
oftar en ekki í brennslustöðvum
sem umbreyta honum í hitaorku og
raforku.
Aukin tækni í landbúnaði leiddi
til endurheimtar skóga
Vegna aukinnar tækni í landbúnaði
þurfti líka minna ræktarland en áður
til að ná sömu eða meiri uppskeru.
Var þá líka farið í að rækta upp skóga
á landinu sem ekki var nýtt.
Nú er um 35% lands í ríkjum
Evrópusambandsins þakin skógi.
Þar er að langmestu leyti um að
ræða skóga sem ræktaðir hafa verið
upp af mannavöldum í stað skóga
sem höggnir hafa verið á síðustu
árhundruðum.
Dýralíf sem þreifst í gömlu
skógunum hnignaði mjög og sumar
tegundir dóu út, en með aukinni
skógrækt hefur dýralíf að einhverju
leyti verið að taka við sér á ný frá
1920.
Mesti ávinningurinn í endurheimt
skóga er á svæðum sem hætt er að
nýta undir landbúnað í Evrópu, Asíu
og í Norður-Ameríku. Þá er bent á
að hækkandi hitastig nær pólsvæðum
jarðar hjálpi þar til sem og gríðarleg
skógræktarverkefni sem búið er að
setja í gang í Kína.
Óarðbært ræktarland hverfur
aftur undir skóg
Gríðarleg endurheimt skóga
hefur verið í Rússlandi og fyrrum
Sovétríkjum. Fuchs skýrir það með
því að bændur hafi hætt að nýta
óarðbært ræktarland og að skógurinn
hafi hreinlega tekið það yfir. Svipuð
þróun hefur átt sér stað í Póllandi og
í Rúmeníu.
Mest aukning skógarsvæða
er í Rússlandi
Á heimsvísu er mesta skógar-
aukningin í Rússlandi, eða sem
nemur 790.000 ferkílómetrum
samkvæmt rannsókn Xia-Peng og
Mathew Hansen í Maryland-háskóla.
Þá nemur aukning meginlandsskóga
um 726.000 fer kílómetrum. Á
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Mikil vakning í trjárækt á sama tíma og gengið hefur verið verulega á regnskógana í heiminum:
Tré þekja nú 2,24 milljónum ferkílómetra
stærra svæði en fyrir 35 árum
– Skógar Evrópu eru mun stærri nú en fyrir hundrað árum og mesta endurheimt skóga hefur verið í Rússlandi
Richard Fuchs hjá Wageningen-háskóla í Hollandi stýrði rannsóknarverkefni sem ætlað var að sýna hnignun og
vöxt skóglendis í Evrópu frá árinu 1900. Samkvæmt rannsókninni eru skógar Evrópu grænni nú en fyrir 100 árum.
Hrikaleg eyðing frumskóga í Brasilíu hefur verið ganrýnd um allan heim.
Þrátt fyrir þá eyðingu hefur skóglendi aukist í heild á heimsvísu.
Pappírsiðnaðurinn nýtir gríðarmikið af trjám en á vegum hans er líka plantað
meira af trjám en höggvin eru vegna vinnslunnar.