Bændablaðið - 28.02.2019, Side 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. febrúar 201926
Smáspunaverksmiðjan Uppspuni:
Auka þarf virði ullarinnar
– segir sauðfjárbóndinn og spunakonan Hulda Brynjólfsdóttir í Lækjartúni
Uppspuni, fyrsta smáspuna
verksmiðjan á Íslandi, var tekin
í gagnið í júlí 2017 í Lækjartúni,
rétt austan við Þjórsá. Með
gangsetningu verksmiðjunnar
varð í fyrsta skipti á Íslandi unnt
að skilja að tog og þel hluta íslensku
sauðfjárullarinnar með vélbúnaði.
Hulda Brynjólfsdóttir og
Tyrfingur Sveinsson eiga og reka
Uppspuna, en þau eru sauðfjárbændur
með 280 kindur. Nokkurn tíma tók
að læra á vélarnar, sem eru alls 12
í verksmiðjunni; bæði hvernig þær
virka og eins að fá þær til að gera
það sem ætlast er til. Verksmiðjan er
nú komin í fulla starfsemi og hefur
ekki undan að sinna verkefnum. „Við
höfum lært helling en við erum enn
blaut á bakvið eyrun. Við erum að
verða þokkalega góð í því sem við
erum að gera, myndi ég segja,“ segir
Hulda.
Fjórir starfsmenn við Uppspuna
„Við erum þrjár hér alla daga, auk
Tyrfings, sem er vélamaðurinn á
svæðinu enda vélsmiður að mennt,“
segir Hulda spurð um hvernig
gengið hafi fyrstu misserin og um
starfsmannahaldið við rekstur svona
verksmiðju.
„Við vorum búin að vera að hugsa
einhverjar leiðir til að auka tekjurnar
þar sem sauðfjárbúskapur er nú ekki
sérstaklega arðsamur. Við vorum
búin að finna fyrir þessum mikla
áhuga á ull, bæði hér á landi og
sérstaklega í útlöndum þar sem
mikil virðing er borin fyrir íslensku
ullinni – og við finnum í raun fyrir
mikilli aðdáun á henni,“ segir
Hulda um það hvernig hugmyndin
að þessari spunaverksmiðju hafi
kviknað. „Ég hafði verið að prófa
mig áfram með það að handspinna
og selja í gegnum netið, líka bara
óunna ull. Áhuginn erlendis frá var
mikill og varð hvatning til að ég fór
að skoða það alvarlega að setja upp
svona litla spunaverksmiðju. Við
spurðum Google að því í nóvember
2016 hvað Mini-Mill væri og þegar
það var ljóst leið ekki nema um einn
mánuður þar til við vorum búin að
panta eina slíka til okkar.
Við erum að vinna okkar eigin ull
auðvitað og svo kaupum við aðeins
af nágrönnum okkar – auk þess sem
við þjónustum fólk líka; vinnum ull
sem fólk síðan tekur heim á bæ og
selur sínar prjónavörur þar. Það er
mikil ásókn í þessa þjónustu og við
reynum að sinna henni í það minnsta
til jafns við okkar eigin vinnslu.
Núna er þetta þannig að það þarf að
bíða í um þrjá mánuði eftir þjónustu
hjá okkur,“ segir Hulda.
Sýnishornin seljast vel
Á efri hæð verksmiðjunnar er snotur
verslun þar sem garn og prjónavörur
frá Huldu sjálfri er til sölu, en einnig
handverk frá öðrum úr héraði. „Við
erum bæði með þessa verslun okkar
á staðnum en bjóðum líka upp á að
senda út á land og við höfum einnig
fengið pantanir erlendis frá. Í síðustu
viku fengum við meira að segja
pöntun frá Ástralíu, ullarlandinu
sjálfu, frá þarlendri konu sem
komst á snoðir um okkur í gegnum
Instagram. Við erum ekki komin með
netverslun, þannig að fólk þarf bara
að hafa beint samband við mig ef það
hefur áhuga á okkar vörum.
Ég hef undanfarið aðallega verið
að prjóna sýnishorn fyrir verslunina,
sem eru líka til sölu. Þá er það
aðallega sýnishorn af því sem hægt
er að gera. Þau hafa selst ágætlega
þannig að ég hef fengið nokkra
einstaklinga til liðs við mig til að
prjóna þessi sýnishorn með mér.
Það kemur prjónafólk til okkar
af öllu landinu og svo höfum við
þjónustað Fræðasetrið um forystufé.
Við erum í raun eini valkosturinn
á Íslandi fyrir þetta fólk, því Ístex
tekur ekki við minna en 250 kílóa
pöntunum í einum lit. Það er enginn
einstaklingur sem þarf að láta vinna
fyrir sig slíkt magn.
Við spinnum garn í þeim grófleika
sem beðið er um. Algengast er að
spinna tvíband sem er jafnþykkt og
léttlopinn. Svo er hægt að fá allan
skalann og tröllabandið er það
grófasta sem unnið er úr afgöngum.
Það er líka boðið upp á að fá
afgreiddar lyppur eða kembur, ef
viðskiptavinurinn vill sjálfur vinna
áfram með efnið, til dæmis spinna
eða þæfa það.“
Eftirfylgni með vélbúnaðinum
var innifalin
Í vélunum tólf í Uppspuna er verka-
skiptingin í grundvallaratriðunum
með þessum hætti: fyrst er hráefni
þvegið, þá tætt, síðan er tekið ofan af
(þel skilið frá togi) og svo er kembt,
undið eða spunnið.
Það er ekki bara vélakosturinn
sem starfsfólkið í Uppspuna hefur
þurft að læra á, að sögn Huldu.
„Það er bara svo margt við
íslensku ullina sem þarf að læra
inn á. Það er auðvitað heilmikill
munur á ull lamba og fullorðins
fjár – en það skiptir líka máli
hvernig skepnan hefur verið
fóðruð og hversu hrein ullin er
þegar kemur að vinnslunni.
Áður en við réðumst í kaupin
fórum við út með svolitla ull til
að athuga hvort þetta myndi virka
fyrir okkur. Síðan komu fulltrúar frá
söluaðilanum í Kanada til okkar og
voru með okkur í viku á meðan verið
var að setja vélarnar upp og komu
svo aftur síðar og voru aðra viku
við kennslu – og þetta var innifalið
í kaupunum.“
Geitafiðan unnin í Uppspuna
Þegar Uppspuni hóf starfsemi
sína varð í fyrsta skipti möguleiki
á Íslandi að vinna geitafiðu í vél.
Hulda segir geitafiðuna vera afar
dýrmætt hráefni sem verður kasmír
þegar hún er orðin að garni og eitt
af verðmætari hráefnum heims. „Til
eru angórugeitur og kasmírgeitur
og íslenska geitin er sumsé kasmír-
geit. Geitabændur höfðu áður
þurft að senda hráefni sitt út til að
láta vinna það fyrir sig í svipuðum
vélum og við erum nú með hér. Það
er hins vegar svo sem ekkert mikil
framleiðsla hér úr geitafiðunni,
bæði eru geitabændur fáir sem geta
framleitt eitthvað og svo er vinnslan á
fiðunni seinleg. Bæði er þetta hellings
vinna fyrir geitabændurna, en líka
hér hjá okkur – sem gerir þetta mjög
kostnaðarsamt ferli. Þess vegna eru
geitafiðuafurðirnar mjög dýrar, en
ef það fjölgar eitthvað bændunum
sem geta látið vinna fyrir sig þá ætti
nú verðið að lækka eitthvað, með
auknu framboði. Ég get alveg séð
það fyrir mér að þarna séu ákveðin
viðskiptatækifæri fyrir geitabændur.“
Plöntutrefjar til textílvinnslu
Að sögn Huldu er líklega
svigrúm fyrir tvær til þrjár svona
smáspunaverksmiðjur til viðbótar á
landinu. „Mér skilst að það sé unnið
að undirbúningi að reisa sambærilega
verksmiðju í Öxarfirðinum, að það sé
unnið að fjármögnun á verkefninu.
Það fer reyndar dálítið eftir því
hvort spunavinnsla á öðrum efnum
en ull muni aukast hversu mikið
svigrúmið er, eins og til dæmis
þaratrefjum. Við höfum talsvert
verið að leika okkur að því að blanda
ýmsum hráefnum saman við ullina;
silki-, rósa- og mjólkurpróteinum og
jafnvel íslenskum þara – sem er mjög
spennandi.
Það eru miklir möguleikar í
vinnslu á alls konar plöntutrefjum og
við höfum náð ágætum árangri með
blöndun á þeim við íslensku ullina.
Margir þeirra sem aðhyllast „vegan-
hugsjónina“ telja að það sé betra að
klæðast fötum úr plasti en ull sem mér
finnst ákaflega rangt, því ullarfatnaður
er náttúrulegur, skaðar ekki dýrin og
er algjörlega í takt við þá hugsjón.
Að blanda henni við þara – og ég
tala nú ekki um ef hægt væri að gera
flík eingöngu úr þara – hlýtur að vera
mikilvægur kostur fyrir þá sem vilja
vera vegan.
Svo eru vísbendingar um að
fatnaður sem er unninn úr þaratrefjum
taki síður í sig líkamslykt hvers
konar, eins og til dæmis táfýlu.
Þá bjóða þessar plöntutrefjar upp
á meiri fjölbreytileika í hönnun
á prjónavörum,“ segir Hulda um
hugsanlegan ávinning af slíkri vinnslu
umfram ullarvinnsluna.
Í dag er þó ekki hægt að vinna
trefjarnar í þræði hér á Íslandi,
en ef það breyttist væri alveg
kominn grundvöllur fyrir aðra
spunaverksmiðju til að helga sig
eingöngu slíkum spuna. Afkastagetan
er nefnilega ekki nema svona tíu til
tólf kíló á dag og við erum með það
mikið að gera í ullinni að við myndum
ekki vilja taka kannski hálft ár í að
vinna bara þara.“
Ullin skammarlega ódýrt hráefni
Það er samt ekkert sem segir að þarinn
yrði endilega ódýrara hráefni sem
gæfi af sér ódýrari vöru. Ullin er
skammarlega verðlítil núna og í raun
lítill sómi sýndur. Það þarf að hækka
verð til bænda því það hefði í för með
sér að þeir myndu vanda sig betur við
framleiðsluna – skila ullinni fallegri
til þeirra sem vinna úr henni. Bændur
sjá enga ástæðu til að gera eitthvað
sérstakt fyrir ullina ef þeir fá ekkert
fyrir hana. Mér finnst sérstakt að
vinsælasta prjónagarn á Íslandi – og
víðar – sé ódýrasta garnið sem hægt
er að kaupa, eins og plötulopinn. Mér
þætti bara viðeigandi að verð á garni
fylgdi bara markaðnum. Innflutt garn
er almennt dýrara en innlent garn.
Í dag er það þannig að reyfið
borgar varla rúninginn. Það þarf að
auka virði ullarinnar og það þarf að
gera það með ýmsu móti. Hækka
verð til bænda og þróa ullarvinnslu
og hönnunarhlutann betur líka. Við
misstum til að mynda eiginlega
af lestinni í þeirri miklu þróun
á útivistarfatnaði sem varð fyrir
nokkrum árum síðan. Við héldum
bara áfram að hanna og prjóna okkar
lopapeysur á meðan ýmsar aðrar
þjóðir fóru á fullt í að hanna undirföt
fyrir útivistarfólk. Nú er hins vegar
hægt að aðskilja þelið í vélum hjá
okkur sem opnar möguleika fyrir
hönnun og vinnslu á alls kyns slíkum
flíkum. En þá þyrfti að stækka
verksmiðjuna okkar og/eða fjölga
verksmiðjum,“ segir Hulda.
Vélar Uppspunaverksmiðjunnar
kostuðu 25 milljónir og hlaut
verkefnið styrk úr Framleiðnisjóði
landbúnaðarins, þróunarsjóði
sauðfjárræktarinnar, Sambandi
sveitarfélaga á Suðurlandi, auk
þess sem hópfjármögnun fór fram í
gegnum vefinn indiegogo.com. Svo
þurfti að fara í framkvæmdir við
húsið sem átti að hýsa verksmiðjuna
og áætlar Hulda að heildarkostnaður
við verksmiðjuna hafi verið rúmar 40
milljónir króna. /smhHulda í versluninni á efri hæðinni í Uppspuna.
Flík sem Hulda prjónaði úr tröllabandi, sem er grófasta bandið og unnið úr
afgöngum. Myndir / smh
Hulda með samstarfskonu sinni, Björgu Kristínu Björgvinsdóttur, við eina
af vélum Uppspuna, dráttarvél sem jafnar lyppurnar fyrir spunann.
Uppspuni. Heildarkostnaður við verkefnið var rúmar 40 milljónir.