Bændablaðið - 28.02.2019, Side 34

Bændablaðið - 28.02.2019, Side 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. febrúar 201934 LÍF&STARF Hótel Breiðavík. Á planinu neðan við gömlu byggingarnar eru 12 gistieiningar sem teknar voru í gagnið 2004. Þar er hvert herbergi með sér inngangi og baði. Myndir HKr. til 300 fjár fyrr en um mánaðamótin febrúar-mars. Þurfti ég ekkert að gefa þeim fram að því, en féð var bara úti og í fjörubeit. Þetta var samt mitt vænsta fé. Þegar ég tók féð inn rúði ég það og um leið og það var borið fór það að fara út aftur. Annars var ég með það á taði í refahúsinu og mokaði þar í það heyi þar sem ég var með sjálfgjafakerfi sem ég hannaði sjálfur. Ærnar sem voru að koma inn í endaðan febrúar, byrjun mars, úr þaranum gat innbyrt mikið magn af heyi og sparaði ég það ekki við féð. Í refahúsinu var ég með um 550 til 600 fjár og þurfti ekki að gefa þar rúllur nema svona einu sinni í viku, enda hafði ég útbúið þar sjálfgjafakerfi og sjálfvirkt vatnskerfi. Það sá því að mestu um sig sjálft.“ – Þú nefnir mikla fjörubeit. Hafði hún engin vandamál í för með sér fyrir kindurnar? „Nei, við lentum ekki í neinum vandamálum, ekki nokkrum. Þetta var allt mjög heilbrigt fé sem át bæði rekþara og líka söl, allt eftir því hvernig á stóð. Af þessu uppskar ég gríðarlega mikla frjósemi og vænt fé. Burðarhjálp við það var nánast engin og þegar það kom inn í hús hafði ég það á taði og stutt að sækja sand til að bera undir líka. Það var því þurrt og gott í húsinu.“ Fór aldrei í refarækt þrátt fyrir hvatningu Þú segist þarna hafa nýtt þér refahús sem var á jörðinni þegar þið keyptuð hana, stundaðir þú eitthvað refarækt sjálfur? „Nei, ég fór aldrei út í það. Það var samt mjög lagt að mér að fara í refarækt á sínum tíma, en ég hafði aldrei trú á þessu og leist aldrei á að slíkt gæti gengið. Fyrri eigendur voru hins vegar með refarækt og skyldu hér eftir nærri þúsund fermetra hús þegar þau hættu. Það er mjög vel byggt stálgrindarhús sem nýttist okkur ágætlega fyrir kindurnar.“ Síðasta sumar var slakt í ferðamennskunni – Þið eruð búin að vera alfarið í ferðaþjónustu síðan 2011, hafið þið orðið vör við aukinn straum ferðamanna á þetta vestasta horn landsins? „Já, aukinn ferðamannastraumur til landsins hefur auðvitað skilað sér hingað líka. Ég myndi þó segja að eftir okkar tuttugasta sumar í þessum rekstri sem við vorum að ljúka við nú 2018, þá var það mjög erfitt. Ef við værum í Reykjavík, þá væri þessu líkt við hrun. Af því að við erum hér á hjara veraldar þá tölum við bara um samdrátt. Ég gæti trúað að ferðamönnum sem sóttu til okkar síðastliðið sumar hafi fækkað um 50% frá því sem mest var hvað gistinætur varðar. Auðvitað eru margir samverkandi þættir sem valda því. Það er í fyrsta lagi veðrið, síðan heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu, auk þess sem Ísland er dýrt ferðamannaland. Samt þegar maður skoðar t.d. talningu á bílum inn á svæðið á teljurum Vegagerðarinnar, þá hafa ekkert komið færri bílar hingað en venjulega. Talið hefur verið að það fari út á Látrabjarg hér rétt vestan við okkur, um 100 þúsund manns á hverju sumri.“ Litlu „svefnbílarnir“ eru tifandi tímasprengjur „Þá spilar inn í að það er aukið gistiframboð á svæðinu og ýmislegt annað, eins og litlir bílaleigubílar sem fólk gistir í. Þeir bílar hafa reyndar alls staðar verið til töluverðra vandræða. Það er greinilega ekki nógu vel að þeim rekstri staðið. Fólk fer illa upplýst á þessum bílum um landið og ég óttast að það verði ekkert gert varðandi þann rekstur fyrr en það verða alvarleg slys. Þessir bílar eru engan veginn almennilega útbúnir eins og húsbílar. Fólk er t.d. að skríða inn í þessa bíla og reyna að hita þá upp í köldu veðri með gaslömpum. Ég tel að þetta séu ekkert annað en tifandi tímasprengjur.“ Bjartsýnn á hag ferðaþjónustunnar – Hvað með framhaldið, ertu þokkalega bjartsýnn? „Já, já, ferðamenn munu halda áfram að koma til Íslands og þeir eiga eftir að sækja í auknum mæli út í hinar dreifðu byggðir, á því er enginn vafi. Enda hef ég oft sagt að Vestfirðir séu eitt best varðveitta leyndarmál Íslands. Maður veit svo sem ekkert um hvernig þetta kemur nákvæmlega til með að þróast, en við erum samt ekkert hætt að fá ferðamenn, þvert á móti held ég að þeim muni fara fjölgandi. Auðvitað geta þó alltaf komið sveiflur og lægðir í ferðamennskuna.“ Hyggjast flytja að Geitagili í framtíðinni – Sérðu fyrir þér að þið haldið lengi áfram rekstrinum hér í Breiðavík? „Við verðum svo sem ekkert eilíf hér. Það þarf mikinn dugnað og eljusemi að halda úti þessum rekstri. Það er því ekki gert nema fólk hafi til þess fulla heilsu.“ – Nú hafið þið staðið í mikilli uppbyggingu hér í Breiðavík, en um leið hafið þið líka verið að byggja upp á þinni gömlu bújörð og foreldra þinna, Geitagili í Örlygshöfn. Sérðu það frekar fyrir þér sem ykkar heimili í framtíðinni? „Já, ég geri það. Við höfum verið afskaplega heppin með smið sem hefur hjálpað okkur við alla þessa uppbyggingu. Við höfum verið með þennan sama mann í smíðavinnu hjá okkur í ein fimm eða sex sumur og hann er afskaplega fær iðnaðarmaður og heitir Sigurjón Hákonarson. Hann gengur í hvað sem er og er duglegur að benda manni á hvað þurfi að lagfæra og hvað megi gera betur. Á Geitagili stóðu málin þannig að það var ekki nema um tvennt að ræða. Annaðhvort að jafna húsin við jörðu og moka yfir eða laga þau til. Ég ákvað að taka seinni kostinn, laga þau til og eiga þetta þá til elliáranna. Þarna er búið að endurbyggja allt og við erum nú að klára að endurnýja síðasta húsið. Meira að segja tók ég stífluna í gegn í haust, steypti hana upp og hækkaði um metra samfara því að stækka og dýpka safnlónið fyrir virkjunina, en á Geitagili er heimarafstöð sem virkjuð var 1966 og hefur aldrei verið neitt annað rafmagn á jörðinni. Ég endurnýjaði allan vélbúnað í virkjuninni 2001 og er nú komið að því að endurnýja búnaðinn á nýjan leik enda er ég búinn að auka vatnsmagnið mikið síðan.“ Málningarslettan varð að heilu íbúðarhúsi Eins og fyrr segir þá voru þau Keran og Birna Mjöll með fé í gömlu fjósi í Breiðavík auk refahússins sem þar er. Fjósið var með sambyggðri hlöðu sem til stóð að lengja um helming og byggja fjárhús samhliða fjósinu. Það var þó aldrei gert. Fjárhúsi var hróflað upp um 1955 af vanefnum og átti að standa í 1–2 ár, þau stóðu þar til 2011 en voru þá alveg að hrynja og voru þá rifin. Þau tóku 200 fjár og ég var alltaf með þau full af fé. „Fjósið var eins og önnur fjós með lítilli lofthæð og lítið hægt við það að gera eftir að við hættum sauðfjárbúskapnum. Konan lagði þá til að við slettum á þetta málningu svo það liti betur út. Ég fór þá og reif af því þakið og hækkaði veggina. Síðan setti ég nýtt þak, nýja og stærri glugga, nýjar útihurðir og einangraði húsið auk þess að steypa nýja einangraða gólfplötu með lögnum. Í dag er þetta nánast orðið fullbúin íbúð sem vantar herslumuninn á að klára. Það er búið að setja upp alla milliveggi og mála, en eftir er að klára klósettið og eldhúsið. Svo málningarslettan á gamla fjósið tók því algjörum stakkaskiptum og varð að nýju íbúðarhúsi. Upphaflega hugmyndin þegar ég byrjaði á þessu var að gera þetta að íbúð fyrir okkur hjónin. Þannig gætum við komist út úr vinnunni á hótelinu þar sem við höfum búið í smá kytru og verið meira út af fyrir okkur. Þar sem ferðaþjónustan hefur heldur dregist saman eins og á síðastliðnu sumri, þá verðum við meira að sinna öllu sjálf og erum því alltaf á vaktinni. Meðan svoleiðis er þá getum við ekkert leyft okkur að fara úr vinnunni eins og fínir forstjórar og stimpla okkur út á miðjum dögum og fara heim í nýja húsið. Því höfum við frestað því að klára þetta hús meðan við erum hér allt í öllu.“ Forréttindi að fá að sinna áhugastarfinu – Það er þá ekki mikið um frí hjá ykkur? „Nei, en ég hef litið svo á að við búum í fríi alla daga. Þótt konan sé ekki hress með það þá höfum við ekki nokkurn tímann farið í það sem aðrir kalla frí síðan 1999. Ég hef ekki einu sinni farið í vetrarfrí. Þá hefur tekið við bullandi vetrarvinna, skólaakstur,vélavinna og annað. Svo hef ég líka verið meira og minna í viðhaldi allan veturinn líka. Þó ég hafi aldrei farið í það sem flestir kalla frí, þá segi ég líka að það eru mikil forréttindi að fá að vinna við það sem maður hefur áhuga á og gaman af. Ég væri ekki í þessu ef ég hefði ekki gaman af og mikinn áhuga á þessu. Ég elska það sem ég er að gera og það eru forréttindin sem allur almenningur getur ekki gengið að sem sjálfsögðum hlut,“ segir Keran St. Ólason, ferðaþjónustubóndi í Breiðavík. Fyrsta alvöru fríið síðan 1999 Því er við að bæta að þau öndvegishjón létu loks verða af því að taka sér almennilegt frí frá rekstrinum eins og vel flestir Íslendingar nú fyrir áramótin. Þannig lögðu þau veg undir dekk, óku til Keflavíkur og hoppuðu þar upp í flugvél á vit ævintýranna á Gran Canaria, rétt áður en jólin gengu í garð. „Ferðamenn munu halda áfram að koma til Íslands og þeir eiga eftir að sækja í auknum mæli út í hinar dreifðu byggðir, á því er enginn vafi. Enda hef ég oft sagt að Vestfirðir séu eitt best varðveitta leyndarmál Íslands.” Gamla fjósið var orðið óhrjálegt þegar þau hættu sauðfjárbúskapnum. Birna Mjöll lagði þá til að þau slettu á það málningu svo það liti betur út. Keran fór í verkið, setti á það nýtt þak, nýja og stærri glugga, nýjar hurðir og einangraði húsið auk þess að steypa nýja einangraða gólfplötu með hitalögnum. Í dag er þetta nánast orðið fullbúin íbúð sem vantar herslumuninn á að klára.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.