Bændablaðið - 28.02.2019, Side 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. febrúar 201954
Laugardaginn 16. febrúar
frumsýndi Bernhard Vatna
görðum nýjan Honda CRV
hybrid. Eftir frumsýninguna fékk
ég bílinn til prufuaksturs það sem
eftir lifði af helginni.
Í þessari nýju árgerð hefur bíllinn
verið endurhannaður og endurbættur
með hliðsjón af því að gera bílinn
umhverfisvænni, hljóðlátari og
þægilegri fyrir notendur.
Góður kraftur og hljóðlátari en
fyrri árgerðirnar
CR-V hefur verið söluhæsti
jepplingur í sínum flokki í heiminum
um nokkurt skeið og miðað við
hönnun og þægindi ætti hann að
halda þessu sæti sínu sé gengið út
frá þeirri setningu að „lengi er hægt
að gera gott enn betra“.
Vélin er tvískipt, annars vegar
kraftmikil og hljóðlát bensínvél
sem mætti kalla „aðalvél“, í akstri
framleiðir bíllinn aukarafmagn
sem hleðst inn á rafhlöðu og
knýr rafmótor sem mætti kalla
„hjálparmótor“. Saman vinna þessir
mótorar skemmtilega saman og gefa
bílnum góðan kraft, en samt næstum
hljóðlaust miðað við mikinn kraft.
Innrými óvenju stórt í CR-V
Miðað við stærð bílsins og sé
samanburður gerður á CR-V og
þeim jepplingum sem eru í sama
flokki og hann þá hefur mér alltaf
fundist Honda CR-V vera með besta
rýmið, sérstaklega í aftursætunum
þar sem er óvenju mikið pláss og
sem dæmi þá er að jafnaði á bilinu
5–15 cm lengra frá hnjám þess sem
situr í aftursætinu í bak framsætisins
miðað við aðra bíla. Engin furða þó
að ég hafi nefnt í fyrri umfjöllunum
mínum um Honda CR-V að þessi bíll
sé kjörinn fyrir Álftanesbóndann á
Bessastöðum þar sem hann er oftast
í aftursætinu og „ráðsmaðurinn
keyrir“.
Nýi Hybrid CR-V bíllinn
eyðir litlu
Fyrri árgerðirnar af Honda CR-V
eru mjög sparsamir bílar á eldsneyti,
bæði bensínbíllinn og dísilbíllinn, en
þessi nýi bíll er með uppgefna eyðslu
á hundraðið í blönduðum akstri 5,5
lítrar á hundraðið. Lítil eyðsla kemur
til af rafmagnsvélinni sem vinnur
með bensínvélinni, en rafmagnið
hleðst inn á rafhlöðuna þegar ekið er
í mjúkum áreynslulausum akstri og
þegar bremsað er. Rafhlaðan er aftast
í bílnum þar sem í flestum bílum er
staðurinn fyrir varadekkið, en því
miður er ekkert varadekk í bílnum og
var það eini mínusinn sem ég fann að
bílnum. Í prufuakstrinum, sem var
tæpir 170 km, sagði aksturstölvan
að ég hefði verið að eyða miðað við
100 km akstur ekki nema 6,9 lítrum
þrátt fyrir snjó og hálku.
Heyrist lítið í vél, en aðeins
veghljóð frá hjólbörðum
Undanfarið hef ég tekið eftir því
þegar ég er að prófa nýja bíla að
nánast allir bílar sem ég prófa
eru orðnir betur hljóðeinangraðir
og lítið heyrist inni í bílunum af
utanaðkomandi hljóðum.
Flesta bíla sem ég prófa
hávaðamæli ég með símanum
mínum og þegar ég byrjaði á þessu
var algengt að hávaðinn mældist á
bilinu 74-78 db. Nú er svo komið
að fáir bílar mælast í meðalmælingu
á 90 km hraða með meiri hávaða
en 72-74db. Í mælingunni á Honda
CR-V mældist meðalhávaðinn vera
70,5db. Stærstan hluta af þeirri
mælingu vil ég meina að hafi komið
frá grófum vetrarhjólbörðunum sem
gáfu nokkurt veghljóð.
Skriðvörnin einstaklega góð
í Honda CR-V
Margir nýir bílar koma til landsins
með þannig ljósabúnaði að eingöngu
kvikna ljós að framan og engin ljós
að aftan, en á þessum bílum þarf
alltaf að kveikja ökuljósin til að vera
löglegur í umferðinni. Honda CR-V
kemur svona útbúin og er mjög
algengt að sjá CR-V í umferðinni
án afturljósa, hins vegar er Honda
CR-V þannig útbúin að það má
kveikja ljósin og hafa þau alltaf
kveikt því að um 10 sekúndum eftir
að drepið er á bílnum slokkna ljósin
sjálfkrafa.
Í prufuakstrinum sem var í
töluverðum snjó og hálku gafst
mér tækifæri á að prófa ítarlega
skriðvarnarbúnaðinn í bílnum, en
áður hef ég sagt frá því að mér
hefur fundist Honda CR-V vera með
einhverja bestu skriðvörn af öllum
þeim bílum sem ég hef prófað. Ég er
ekki frá því að skriðvörnin í þessum
bíl sé enn betri en þegar Honda kom
með sína eigin hönnun á skriðvörn
fyrst í CR-V.
Flott verð fyrir vel lukkaðan
umhverfisvænan bíl
Honda CR-V Hybrid er fáanlegur í
þrem mismunandi útgáfum á verði
frá 6.190.000 upp í 6.990.000. Hægt
væri að skrifa mikið meira um þennan
bíl, en vegna plássleysis verður að
stoppa hér, en fyrir áhugasama vil
ég benda á sölumenn og heimasíðu
Bernhard Vatnagörðum.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Þyngd 1.614 kg
Hæð 1.649 mm
Breidd 1.855 mm
Lengd 4.600 mm
Helstu mál og upplýsingar
Nýr og umhverfisvænni Honda CR-V Hybrid
Honda CR-V Hybrid. Myndir / HLJ
Of algengt er að sjá CR-V ljóslausa að aftan í umferðinni.
Langbest er að vera bara alltaf með ljósatakkann svona á CR-V og þá fær
maður aldrei sekt fyrir að aka án afturljósa.
Flottur og snyrtilegur frágangur á gírskiptibúnaðnum.
Eini mínusinn á bílnum er að það vantar varadekkið, en í staðinn er tjakkur,
felgulykill, rafmagnspumpa og efni til að setja í lekt dekk.
Þó að ég hafi töluvert verið á sporttakkanum var ég ekki að eyða miklu.