Bændablaðið - 28.02.2019, Side 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. febrúar 201922
LÍF&STARF
Um 40 bændur í Vestur-Húna-
vatnssýslu fjölmenntu á fund í
síðustu viku sem haldinn var í
félagsheimilinu Ásbyrgi í Miðfirði
til þess að tala um heilsuna. Þar
héldu erindi læknirinn Þórður
Ingólfsson og sálfræðingurinn
Sofia B. Krantz auk þess sem
Guðmundur Hallgrímsson fjallaði
um vinnuverndarverkefnið Búum
vel sem Bændasamtökin hafa
rekið um árabil í samvinnu við
búnaðarsambönd. Tilefnið var
að ræða heilsufar og vellíðan
bænda og starfsfólks í landbúnaði.
Greinilegt var á mætingu og
umræðum fundargesta að mál-
efnið vekur áhuga og er brýnt.
Markmið verkefnisins er að
fækka slysum í landbúnaði
Guðmundur Hallgrímsson,
verkefnisstjóri vinnuverndar-
verkefnisins Búum vel, hélt
inngangserindi þar sem hann sagði
frá tilgangi vinnuverndarstarfs
almennt. Hann hefur á síðustu árum
farið í heimsóknir á um 240 sveitabæi
til þess að ræða vinnuverndar- og
öryggismál.
„Þetta er í raun undirbúningur til
þess að mæta því eftirliti sem kemur
síðar. Við yfirförum ýmis öryggismál
á bænum, mikið í kringum vélar,
rafmagn og byggingar. Ég fer
með hitamyndavél og skoða
rafmagnstöflur og ýmis raftæki. Með
bændunum er farið yfir aðstöðu í
gripahúsum og við skoðum meðal
annars brunahættu, útgönguleiðir,
vélar og verkfæri innanhúss og
vinnuaðstöðu,“ segir Guðmundur. Í
heimsóknum til bænda er líka hugað
að vinnuaðstöðu og rætt við bændur
um ásýnd býlisins. „Við stærum okkur
af því að framleiða góðar búvörur
og er þá ekki nauðsynlegt að hafa
sæmilega snyrtilegt í kringum sig?“
spurði Guðmundur fundarmenn.
Hann segir að heilsufarsþátturinn í
vinnuverndinni sé nú til umfjöllunar
og fundurinn í Ásbyrgi viss tilraun í
þeim efnum.
Eru bændur eins og annað fólk?
Þórður Ingólfsson er heimilislæknir
í Búðardal og hefur starfað þar í um
25 ár. Hann ræddi við fundargesti
um heilsufar og hvatti þá til þess að
hugsa til framtíðar.
„Eru bændur eins og annað fólk?“
spurði Þórður í upphafi erindis síns
og velti því upp hvort bændur fengju
sömu sjúkdóma og aðrir og lentu í
áþekkum slysum.
„Það fyrsta sem maður getur
sagt þegar skoðuð eru veikindi í
heild að þá virðast bændur verða
minna veikir en aðrir íbúar þessa
lands. Þá erum við að tala um talda
veikindadaga. Hvernig skyldi standa
á því? Jú, er það ekki vegna þess að
þeir eru að reka sín bú og verða að
vinna?“
Þegar Þórður kom í Búðardal
var hann búinn að vera 7 ár í
Svíþjóð og vinna þar í heilsugæslu
í nokkur ár. „Strax og ég hóf störf
í Búðardal fannst mér áberandi
mikið um slitgigt. Gerði ekkert
meira með það þá en skoðaði
það síðar. Nú hefur verið staðfest
með rannsóknum að mikið er um
slitgigt hjá bændum. Bændur fara
t.d. oftar en aðrir í liðskiptiaðgerðir
á mjöðmum og hnjám. Munurinn er
ekki mikill en hann er marktækur,“
segir Þórður. Heilt yfir séu öll
krabbamein sjaldgæfari í bændum
en öðrum íbúum landsins samkvæmt
mælingum og er sá munur marktækur.
„Það er ef til vill ívið meira um sum
krabbamein, t.d. húðkrabbamein, sem
hefur væntanlega með mikla útiveru
að gera vegna sólar,“ segir hann.
Heymæðin ekki lengur algeng
Þórður nefnir heymæðina sem var
mikið meira vandamál hér áður fyrr.
„Heymæði er oft ruglað saman við
frjókornaofnæmi. Heymæði er það
sem kallað er á ensku „farmer‘s
lung“ sem er í raun ofnæmi við
myglu og jafnvel öðrum hlutum í
illa verkuðu heyi. Þegar ég kom í
Búðardal sá ég gamla bændur með
þennan sjúkdóm en sé hann ekki
lengur. Ég get ekki lofað því að
búið sé að útrýma heymæðinni en
með nútíma heyverkunaraðferðum
hefur þetta batnað. Svo eru sumar
sýkingar sem eru algengari hjá
bændum en öðrum, t.d. sláturbóla
sem er svolítið sérstök fyrir þessa
stétt,“ segir Þórður og nefnir líka
stífkrampa sem væri þó fátíður en
gæti leynst í jarðvegi. Í því tilliti
minnti hann bændur á að nýta sér
bólusetningar.
Hvernig á að lifa lífinu?
Þórður segir að erfitt sé að gefa eitt
ráð sem gagnast öllum þegar kemur
að góðri heilsu. „Auðvitað eigum
við að borða og drekka hollt. Við
eigum að borða fjölbreyttan mat,
kjöt, fisk, grænmeti, grófmeti og
lýsi. Við eigum að borða sem minnst
af unnum matvælum og borða
íslenskan mat. Við vitum hvernig
lambakjötið er og vitum að það er
hrein vara, rétt eins og nautakjötið og
fiskurinn. Við eigum að borða minna
af unnum mat en það hefur sýnt sig
að hann er ekki alltaf heilnæmur.
Þá er ég að tala um pylsur og bjúgu
eða slíka fæðu,“ segir Þórður. Hann
ráðleggur bændum að taka lýsi því
það væri öruggt að við fengjum
ekki nægt D-vítamín frá sólinni í
skammdeginu.
Kaffið stendur fyrir sínu
Sykur og sætindi sem eru hraðvirk
og einföld kolvetni eru óholl og
sennilega ávanabindandi. Þórður
mælir með því að nota lítið af þessum
hráefnum í matreiðslu. „Ávaxtasykur
er því miður ekki hollari en hvíti
sykurinn og menn þurfa að muna
eftir því, t.d. þegar fólk fær sér
ávaxtasafa,“ segir Þórður en hann
mælir með kaffidrykkju. „Mér finnst
vanta að kaffið njóti sannmælis. Það
er sýnt að þeir sem drekka kaffi lifa
lengur en þeir sem ekki drekka
kaffi. Þeir sem drekka kaffi fá síður
sykursýki en þeir sem ekki gera það.
Sama á við um sum krabbamein,
t.d. ristil- og brjóstakrabbamein. Það
er aldrei talað um þetta. Jú, kaffi
getur verið vont í magann og fólk
getur fengið magasár við að drekka
of mikið af því,“ segir Þórður sem
varar hins vegar við reykingum og
annarri tóbaksnotkun. „Lengi var
talið að það væri hollt að drekka 1–2
rauðvínsglös en það er umdeilt enn
þá. Sem læknir er ég ekki hingað
kominn til að mæla með því að fólk
neyti áfengis en við eigum líka að
vera hamingjusöm. Allt sem gleður
er gott!“
Viðhöldum bólusetningum
Þórður hvatti fólk til að viðhalda
bólusetningum. „Mér finnst að
bændur eigi að passa sig og vera
með vörn fyrir stífkrampa. Forðumst
slysin og förum varlega. Mætum í
skipulagða krabbameinsskoðun.
Ennþá er það bara til fyrir konur,
þar sem leitað er að legháls- og
brjóstakrabbameini.“
Skimun fyrir krabbameinum
Þórður segir að lengi sé búið að
tala um að hefja skimum fyrir
ristilkrabbameini en menn deila um
hvaða aðferð á að nota. „Skimunin er
gerð á tvennan hátt, með ristilspeglun,
sem er best en svolítið dýrt. Það eru til
gögn sem sýna að það svari kostnaði.
Separ eru teknir en þeir geta breyst í
krabbamein. Hin aðferðin er að athuga
hvort það sé blóð í hægðum sem er
þó ónákvæmt og gefur vafasamari
niðurstöður. Það er líka hægt að
mæla efni í blóði sem segja til um
það hvort líkur séu á því að karlmenn
séu með blöðruhálskrabbamein.“
Þórður segir blöðruhálskrabbamein
mjög breytilegt og hegði sér með
ólíkum hætti. „Það er mjög há
prósenta af gömlum körlum sem eru
með blöðruhálskrabbamein, t.d. eru
níræðir karlmenn sem deyja á bilinu
80–90% með slíkt mein. Svo geta
verið yngri menn, kannski í kringum
sextugt sem fá blöðruhálskrabbamein
og deyja á tveimur árum. Meðferðin
er frekar harkaleg og því er ekki
mælt með því að skima fyrir þessu
hjá einkennalausum.“
Er ástæða til að leita til læknis?
Þórður velti upp þeirri spurningu
sem margir velta fyrir sér, hvort
maður ætti að fara til læknis í tékk.
„Ég gæti talið ótal þætti þar. Ef við
erum að léttast, höfum ekki matarlyst,
breyting verður á hægðum sem varir
vikum saman, eða sjáum blóð í þvagi
eða eigum erfiðara með að pissa –
þá borgar sig að fara til læknis. Ef
við finnum hnút sem við vitum ekki
hvað er, t.d. í hálsi, brjósti eða finnum
eitthvað undir húðinni. Mæði sem er
komin og var ekki áður, brjóstverki
við áreynslu og fleira. Ég man ekki
allt sem hægt er að nefna, en það er
fjölmargt.“
Aðspurður um það hvort maður
ætti að fara til læknis þó ekkert væri
að svaraði Þórður að það gæti verið
ráð. „Það er kannski skynsamlegt
svona um miðjan aldur, svona
50–60 ára, að fara til læknis og
biðja um heilsufarstékk. Eitt allra
mikilvægasta sem læknirinn gerir
er að spyrja hvernig lífið hafi verið
og hvernig þér líður. Hann veitir
svo læknisskoðun, tekur blóðprufu
og spyr út í erfðir. Sum krabbamein
eru arfgeng, t.d. brjóstakrabbamein
og blöðruhálskirtilskrabbamein.
Flestir innkirtlasjúkdómar, sykursýki
og fjölmargt fleira getur verið
ættgengt. Læknirinn veit yfirleitt
nokkurn veginn um hvað á að spyrja.
Blóðþrýstingurinn er að sjálfsögðu
mældur. Það er í raun aldrei of seint
að fá svona tékk.“
Að lokum segir Þórður að fólk
ætti að einbeita sér að því að njóta
lífsins og gleyma ekki að hreyfa sig
reglulega.
„KK söng eitthvað á þá leið
að einfalt líf væri gott. Að vera
heiðarlegur er alltaf einfaldast.
Flækjum ekki lífið of mikið. Streita
og álag er oft eitthvað sem erfitt er
að forðast en hægt er að draga úr.
Við erum félagsverur og eigum að
vera innan um hvert annað,“ segir
Þórður Ingólfsson, heimilislæknir í
Búðardal. /TB
Vinnuverndarverkefnið „Búum vel“:
Töluðu um heilsuna í Húnaþingi
– Heimilislæknir ráðleggur fólki að borða íslenskan mat og sálfræðingur hvetur bændur til að ræða saman um tilfinningar
Guðmundur Hallgrímsson, verk
efnis stjóri Búum vel.
Ingibjörg Sigurðardóttir á Auðólfsstöðum og Ingvar Björnsson á Hólabaki sem stjórnaði fundi. Myndir / TB
Þórður Ingólfsson, læknir í Búðardal, gaf bændum góð ráð og Sofía B. Krantz
sálfræðingur hvatti þá til að huga að geðheilsunni.
Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir á Kollsá II, Guðbjörg Jónsdóttir á Kolbeinsá
og Kristín Árnadóttir á Borðeyri.