Bændablaðið - 28.02.2019, Side 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. febrúar 2019 53
Nú þegar fyrstu Angus-kálfarnir
á Stóra-Ármóti eru að nálgast
hálfsárs aldurinn er rétt að minna
holdakúabændur á mikilvægi þess
að nýta þetta nýja erfðaefni á sem
bestan hátt.
Alla jafna nota menn þarfanaut
í hjarðir sínar og lítið er um að
holdakýr séu sæddar með sæði af
holdastofnum vegna skorts á aðstöðu
og vandkvæða við beiðslisgreiningu.
Fanghlutfall við sæðingar á
holdakúm á Íslandi er því alla jafna
mjög lágt. Hvernig bætum við
frjósemina til að nýta nýja erfðaefnið
og sæðingar sem best?
Tamning hjarðarinnar út frá
náttúrulegu atferli
Tamning holdakúa felur ekki í sér að
lónsera, venja við hnakk og laumast
á bak, heldur venja gripina við
daglega umgengni og meðhöndlun
við ormalyfsgjöf, sæðingar,
merkingar og flokkun gripa í ólíka
hópa. Góð aðstaða til meðhöndlunar
er lykilatriði. Hér skiptir góð rétt,
flokkunargangur og tökubás mestu
máli. Best er að fá gripina inn í
réttina að eigin frumkvæði t.d. með
því að lokka þá á eftir sér inn í rétt
með kjarnfóðurfötu eða heytuggu.
Nautgripir eru forvitnir að eðlisfari,
en einnig flóttadýr og læra því ekkert
sé þeim ógnað eða ef þeir spennast
upp af adrenalíni í blóðinu. Hægt
er að hugsa sér að nota réttina sem
fóðrunaraðstöðu hluta úr ári með
læsigrindum til að venja þá við að
láta læsa sig fasta við sæðingar,
fangskoðun eða aðra meðhöndlun,
en þá verður líka að umbuna þeim
með kjarnfóðurgjöf.
Nautgripir leita alltaf til baka
til uppruna síns. Þannig er hægt
að nota eðli þeirra þegar gripir
eru flokkaðir. Séu þeir reknir inn
í rétt til suðurs vilja þeir alltaf leita
til baka til norðurs, þannig er t.d.
gott að reka kálfa á bíl til norðurs
aftur. Allar sveigur og beygjur í
flokkunarkerfi skulu vera ávalar og
mjúkar því nautgripir eru stirðbusar
sem eiga t.d. erfitt með að ganga
fyrir horn. Leitast skal við að hafa
alla aðstöðu lárétta án stalla eða
breytinga á undirlagi sem getur fælt
eða dregið úr því að gripirnir gangi
yfir þær. Augu nautgripa eru staðsett
það utarlega á höfði þeirra að þeir
hafa frekar lélega dýptarskynjun og
verða því að fá langan tíma til að átta
sig á mishæðum og misfellum fyrir
framan sig.
Eins þurfa hliðar réttar og
flokkunaraðstöðu að vera lokaðar
svo ekki sjáist vel út, nema þá að
ofanverðu (í eða ofan augnhæðar
gripanna). Þannig drögum við úr því
að umhverfið trufli gripina, t.d. sé
verið að bakka með kerru að tökubás
eða þess háttar „óvenjulegri“
umferð.
Holdstig við sæðingar
Holdstig kúnna okkar og fóðrun eftir
burð skiptir mjög miklu máli fyrir
gæði eggjanna sem losna þegar við
ætlum að koma í þær kálfi, og þar
með fanghlutfalli hjarðarinnar. Leggi
kýrnar mikið af eftir burð dregur það
úr gæðum eggjanna og fanghlutfallið
lækkar. Kýrnar eru í hættu á að
seinka næsta burði eða jafnvel
halda ekki leggi þær meira af en sem
nemur hálfu holdstigi. Þarna skiptir
sumarhaginn og viðbótarfóðrun
miklu máli. Kálfurinn sýgur mikið
fyrstu mánuðina sem veldur því
að kýrnar leggja af hafi þær ekki
nógu góða beit. Gott er að miða
við að hæð beitargróðurs sé a.m.k.
þverhandarbreidd og þumallengd
að auki þegar þörfin er hvað mest.
Gangi kýrnar á beitina getum við
reiknað með að tapa kúm yfir á
seinni gangmál en hagstætt þykir.
Holdakýr liggja niðri eftir burð
Hormónaáhrif vegna þess að
kálfurinn gengur undir valda því líka
að kýrnar festa síður fang og slíkt er
erfitt að hafa áhrif á. Það er ekki hið
neikvæða orkugap sem verður við
það að kýrnar séu sognar sem veldur
því að beiðsli liggi niðri eftir burð,
heldur hin flókna hormónastarfsemi
sem viðhelst þegar kálfurinn sýgur.
Ekki ólíkt þeirri mýtu um að konur
með barn á brjósti geti ekki orðið
óléttar aftur.
Tilraunir með að skilja kýr og
kálfa að í 48 tíma hefur reynst
vel til að koma egglosi af stað hjá
kúnum. Þá fer af stað stutt gangmál
sem mætti nýta eða bíða þá eftir því
næsta sem er í eðlilegri lengd. Þetta
er ekki ólíkt folaldsgangmáli hjá
hryssum sem margir nýta. Á móti
má svo spyrja, hvað tapast mikill
vöxtur hjá kálfunum fái þeir ekki
móðurmjólkina og tengslin við
móður þessa 48 tíma? Sú aðferð að
venja kálfana á auka kjarnfóðurgjöf
strax við fæðingu gæti komið sterk
inn, en þá er kjarnfóður gefið í
frjálsu aðgengi fyrir kálfana á stað
þar sem mæðurnar komast ekki
að. Þetta gæti verið t.d. hæðarslá,
mjótt hlið eða þess háttar hindrun
inn í gerði eða skýli. Kjarnfóðrið
þarf að vera lystugt og það verður
að vera hægt að útiloka ágang fugla
í fóðrið. Jafnvel mætti bæta inn
einstefnuhliði við þetta kerfi þegar
„veiða“ á kálfana og taka þá undan
þegar líður á haustið?
Beiðslisgreining
En hvernig greinum við beiðslin á
sem bestan hátt? Gott eftirlit þrisvar
á dag skilar árangri, að morgni, rétt
eftir hádegi og að kvöldi skal gá
að beiðslum. Að skrá hjá sér öll
beiðsliseinkenni í góða dagbók
til þess að nota við sæðingar á
næsta gangamáli er lykilatriði.
Gangmáladagatal er líka mjög
heppilegt hjálpartæki, þó það sé
ekki í heppilegu broti þegar maður
er úti í haga að eltast við kýr. Blóð
getur lekið frá skeiðinni 1-2 daga
eftir hábeiðsli og það er besta tákn
þess að kýrin hafi verið að beiða.
Þá skal leita að beiðsliseinkennum
16-20 dögum síðar.
Gott er að vera með góðan kíki
séu kýrnar í stóru hólfi, og þá þarf að
vera búið að fjarlægja hárbrúskinn
úr eyrunum á þeim svo eyrnamerkin
sjáist séu þær margar og bóndinn
ekki glöggur á sínar kýr. Fátt er
eins róandi eins og að sitja úti með
góðan kaffibolla og fylgjast með
kúnum, fyrir utan að það skilar
okkur tekjum!
Sæðingar
Þegar kemur að sæðingu borga
rólegheitin sig. Kýrnar þarf að
reka saman í rólegheitum, þær
þurfa að þekkja sæðingamanninn
á rólegheitum sínum og helst á
allt að fara fram eins og í góðri
messu, hægt og hljótt. Að hitta á
réttan tíma getur verið flókið. Alla
jafna varir hábeiðslið 18 klst. hjá
mjólkurkúm en reikna má með að
það sé styttra hjá holdakúm. Fyrstu
beiðsliseinkenni kúnna koma 1-3
dögum fyrir hábeiðsli, en þá eru
kýrnar órólegri og betur vakandi
fyrir umhverfinu en í annan tíma,
leita frekar eftir snertingu við aðra
gripi, skapabarmar eru þrútnir og
frá þeim lekur jafnvel gráleitt slím.
Of snemmt er að sæða á þessum
beiðsliseinkennum, ekki er óhætt að
sæða fyrr en sést að kýrnar standa
undir öðrum. Besti tími til sæðinga
er þegar slím frá skeið er orðið glært
og í því myndast loftbólur.
Árangur við sæðingar holdakúa á
Íslandi hefur oft verið lélegur og því
hafa margir gripið til þarfanautsins.
Rétt er að impra á því að halda
kúnum á stuttu tímabili og reyna
þannig að gera burðartímabilið stutt.
Gott er að miða við að fengitími
holdakúnna sé ekki lengri en 9
vikur og hjá kvígum ekki lengri en
6 vikur. Nautið á líka stóran þátt í
frjóseminni og sé hann illa fóðraður,
lítill eða með lítil og óþroskuð eistu
eru ekki miklar líkur á að fá marga
kálfa árið eftir. Vanda verður valið
á því nauti sem á að nota og leitast
við að hann sýni góða vaxtargetu og
sé skapgóður.
Nokkur viðmið fyrir frjósemi
holdakúa
• 95% fanghlutfall, því fleiri
kálfar skila meiri tekjum.
• 65% kúnna beri á fyrstu 3 vikum
burðartímabils (fengnar á fyrsta
gangmáli), því þéttur burður
minnkar vinnuliðinn, dregur
úr vaxtarmun við fráfærur
og gefur betri vísbendingar
um vaxtarhraða kálfanna og
mjólkurlagni kúnna.
• Innan við 3% kálfadauði.
• Ásetningshlutfall sé innan við
15%, góð ending kúnna skilar
sér í fleiri sláturgripum og
markvissari ræktun séu aðeins
álitlegustu gripirnir notaðir til
undaneldis.
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Jóna Þórunn Ragnarsdóttir
ráðunautur í fóðrun
jona@rml.is
Erfðaframfarir með nýju erfðaefni af Angus – fyrsti hluti
– Hvernig hámörkum við erfðaframfarir og frjósemi holdakúnna okkar?
Þegar kemur að sæðingu borga rólegheitin sig. Kýrnar þarf að reka saman í rólegheitum, þær þurfa að þekkja sæðingamanninn á rólegheitum sínum og
helst á allt að fara fram eins og í góðri messu, hægt og hljótt.
Árangur við sæðingar holdakúa á
Íslandi hefur oft verið lélegur og því
hafa margir gripið til þarfanautsins.