Bændablaðið - 28.02.2019, Side 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. febrúar 201924
MATVÆLAÖRYGGI&MARKAÐSMÁL
Afnám frystiskyldu á innfluttu
kjöti er mikið áhyggjuefni, segir
sérfræðingur í útbreiðslu sýkla
lyfjaónæmis og lýðheilsu. Hann
segir stöðu Íslands til fyrirmyndar
þegar kemur að vörnum gegn
útbreiðslu sýklalyfjaónæmra
baktería og að sérstaðan glatist
verði frystiskyldan afnumin.
Dr. Lance Price, prófessor við
George Washington-háskóla og skóla
Milken-lýðheilsustofnunarinnar
í Washington, hélt erindi á Hótel
Sögu í síðustu viku þar sem
fjallað var um lýðheilsu og hrein
matvæli. Price er einnig stofnandi
og stjórnarformaður samtaka sem
kallast Antibiotic Resistance Action
Center og sérhæfir sig í viðbrögðum
við sýklalyfjaónæmi.
Hann segir að í kjölfar lofts-
lagsbreytinga sé sýklalyfjaónæmi
önnur mesta ógn mannkynsins í
dag og að Ísland sé til fyrirmyndar
í vörnum gegn útbreiðslu sýkla-
lyfjaónæmra baktería.
Framsögumenn á fundinum
Lýðheilsa og hrein matvæli ásamt
dr. Price voru Karl G. Kristinsson,
prófessor við Háskóla Íslands og
yfirlæknir við sýklafræðideild
Landsspítalans, og Herborg Svana
Hjelm, forstöðukona Matartímans.
Sérstaða Íslands stórmerkileg
Í fyrirlestrinum talaði dr. Price um
of- og misnotkun á sýklalyfjum
í landbúnaði og áhrif þess á
sýklalyfjaónæmi í fólki og lýðheilsu.
„Sérstaða Íslands þegar kemur
að sýklalyfjaónæmi er stórmerkileg
og gríðarlega áhugaverð. Sýkla-
lyfjaónæmi í fólki á Íslandi er það
lægsta sem þekkist í heiminum þrátt
fyrir að notkun fólks á sýklalyfjum
sé svipuð og í Evrópu.
Skyldi ástæða þess vera sú að
loftið og vatnið á Íslandi er hreinna
en víða annars staðar eða skyldi
ástæðan vera sú að sýklalyfjanotkun í
landbúnaði er mun minni á Íslandi en
annars staðar í heiminum? Á Íslandi
eru í gildi strangar reglur um notkun
sýklalyfja í landbúnaði og þeim er
framfylgt. Auk þess sem á Íslandi
gilda strangar reglur um innflutning
á kjöti frá öðrum löndum og inn-
flutningnum fylgir frystiskylda.“
Price segir að þrátt fyrir að í
Evrópusambandinu séu í gildi reglur
um að bannað sé að nota sýklalyf sem
vaxtarörvandi í landbúnaði sé farið í
kringum þær reglur á ýmsan hátt, til
dæmis með því að segja að notkun
sé til að fyrirbyggja sýkingar.
Mín skoðun er sú að það geti verið
fleiri ástæður þess að sýklalyfjaónæmi
er lágt á Íslandi en þær helstu eru að
reglur um lyfjanotkun í landbúnaði
eru strangar og að til landsins má ekki
flytja inn ferskt ófrosið kjöt.“
Frystiskyldan mikilvæg
„Allir sem skoðað hafa útbreiðslu
sýklalyfjaónæmra baktería vita að
þær geta hæglega breiðst út með
kjöti og það að frysta kjötið dregur
úr útbreiðslu þeirra og að þær berist
til landsins.“
Í samtali við Bændablaðið
lýsti Price furðu sinni á að
landbúnaðarráðherra ætli að leggja
fyrir Alþingi tillögu um að leyfa
skuli innflutning á hráu ófrosnu kjöti,
ferskum eggjum og ógerilsneyddri
mjólkurvörur til landsins.
„Satt best að segja veldur þetta
mér furðu og áhyggjum og ég tel
öruggt að sýklalyfjaónæmi í landinu
eigi eftir að aukast verði innflutningur
á ófrystu kjöti leyfður. Hvað sem
öllu eftirliti varðar þá er slíkt eftirlit
yfirleitt handahófskennd sýnataka og
aðeins lítill hluti kjötsins sem fluttur
er inn skoðaður.
Einnig skiptir máli hvaðan kjötið
er flutt inn og í hvaða landi það er
framleitt. Kjöt sem er flutt milli landa
er oft framleitt í einu landi, pakkað í
öðru og flutt til þess þriðja. Þannig að
ef vel á að standa að eftirlitinu verður
að taka sýni úr kjötinu á öllum stigum
framleiðslunnar og bæði í uppruna-
og pökkunarlandinu.
Þegar kemur að notkun á
sýklalyfjum í landbúnaði er ástandið
í löndum Evrópusambandsins víða
slæmt og það er verst í Suður-
Evrópu og ef við lítum til landa
eins og Brasilíu, Suður-Afríku,
Indlands og Kína, sem flytur mikið
út af kjöti, þá er sýklalyfjaónæmi
mjög mikið.“
Kampýlóbakter-sýking
lág á Íslandi
Price segir að frystiskylda á
kjöti dragi mest úr hættunni á
kampýlóbakter-sýkingum og
ef litið sé til sýkinga af völdum
kampýlóbakter á Íslandi og annars
staðar í heiminum þá sé hún mjög
lág á Íslandi og öfundsverð.
Þegar Price er spurður hvort
ekki sé hætta á að fólk beri með
sér sýklalyfjaónæmar bakteríur
til landsins segir hann að það geti
auðvitað gerst. „Möguleikinn
er alltaf til staðar en ef litið er til
fjölda ferðamanna sem hafa komið
til Íslands undanfarin ár virðast
líkurnar ekki vera miklar. Ég hef
skoðað þetta og samkvæmt mínum
upplýsingum ferðast Íslendingar
mikið og gríðarlegur fjöldi
ferðamanna sem heimsækir landið
miðað við mannfjölda.
Auðvitað getur fólk á ferða-
lagi sýkst og borið með sér sýkla-
lyfjaónæmar bakteríur en það virðist
ekki hafa valdið auknu hlutfalli
sýkinga á Íslandi.
Munurinn á mögulegri sýkingu
úr kjöti eða frá fólki er talsverður.
Kjöt er handleikið og við borðum
það þannig að bakteríur í kjöti
geta borist í meltingarfærin og
valdið sýkingu. Fólk á ferðalagi
borðar oft á veitingahúsum og er
sjaldnast að meðhöndla hrátt kjöt
og borðar það eldað. Líkamleg
snerting við ferðamenn er einnig
í flestum tilfellum takmörkuð og
hreinlætisaðstaða er góð og það
dregur verulega úr sýkingarhættu.
Ég tel líka sjaldgæft að bakteríur í
þörmum manna berist þeirra á milli
með snertingu.
Kjöt er aftur á móti handleikið og
geymt með öðru kjöti í kjötborðum.
Bakteríur, hvort sem þær eru
sýklalyfjaónæmar eða ekki, geta
því hæglega borist manna á milli
eftir að fólk hefur komið við kjöt
eða þá milli kjötbita í kjötborðum
verslana.“
Ekkert land í heimi í sömu stöðu
Price segir að annað sem verði að
líta til í sambandi við innflutning
á kjöti og ekki síst hráu kjöti sé
heilsufarsstaða búfjár í landinu.
„Ég hef ekki fengið tækifæri til
að heimsækja íslenskan bóndabæ
en mér skilst að það sé mjög lítið
um sjúkdóma í íslensku búfé þrátt
fyrir litla notkun á sýklalyfjum í
landbúnaði og ef til vill er lítið um
sýkingar einmitt vegna þess.
Ekkert land í heimi er í sömu
stöðu. Mér skilst að á Íslandi séu
ekki stór verksmiðjubú eins og
ég þekki vel frá Bandaríkjunum
og annars staðar í heiminum og
í Evrópusambandinu. Reynslan
sýnir að búfé sem er alið við
aðstæður verksmiðjubúa þarf meira
á sýklalyfjum að halda en ef það
er alið á minni býlum. Þrengsli
verksmiðjubúanna eru mikil og
snerting dýranna einnig og smithætta
mikil. Þegar dýrin eru síðan orðin
veik er hægt að komast framhjá
reglugerðum Evrópusambandsins
um notkun sýklalyfja og samhliða
því að gefa lyf í lækningaskyni og
nota þau sem vaxtarörvandi.“
Bakteríur í grænmeti
„Ekki má gleyma því að sýkla-
lyfjaónæmar bakteríur geta einnig
borist í fólk með ávöxtum og
grænmeti, ekki síst þar sem er
notaður búfjáráburður við ræktunina.
Yfirleitt er búfjáráburði safnað í
nokkra mánuði og síðan dreift yfir
akra án þess að vera meðhöndlaður
á nokkurn hátt. Þannig að ef bakt-
eríurnar berast með búfjáráburði í
plönturnar geta þær smitast í menn.
Það er því nauðsynlegt að þvo hrátt
grænmeti vel áður en þess er neytt,“
segir dr. Lance Price, prófessor
og sérfræðingur í útbreiðslu
sýklalyfjaónæmra baktería og lýð-
heilsu, að lokum.
Dr. Lance Price, prófessor við George Washington-háskóla og sérfræðingur í lýðheilsu og útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Mynd / TB
Frá fundi sem Framsóknarmenn stóðu fyrir í Súlnasal á Hótel Sögu um lýðheilsu og hrein matvæli. Þar fór dr. Lance
Price yfir þróun og vöxt sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum og lýsti mikilvægi þess að Ísland verði með öllum
tiltækum ráðum þá sérstöðu sem hér hefur verið og væri einstök á heimsvísu. Mynd / HKr.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Sérstaða Íslands öfundsverð:
„Ísland til fyrirmyndar í vörnum gegn
útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería“
– segir dr. Lance Price, sérfræðingur í útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería og lýðheilsu