Bændablaðið - 28.02.2019, Side 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. febrúar 2019
FRÉTTIR
Andri Björn Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Háræktar ehf.
Nýtt fyrirtæki í matjurtarækt, Hárækt ehf., sem sérhæfir sig í lóðréttri ræktun:
Hátækniræktun innanhúss
– Fyrstu plönturnar komnar í verslanir Krónunnar og markaðssettar undir vörumerkinu VAXA
Hárækt ehf. er nýtt fyrirtæki í
matjurtarækt sem sérhæfir sig
í lóðréttri ræktun innanhúss
[Vertical framing]. Ræktuninni
er stýrt þannig að skapaðar eru
kjöraðstæður fyrir plönturnar
allan ársins hring. Nýting á rými
við lóðrétta ræktun er mjög góð
og sparar því pláss.
Undanfarin ár hefur færst í vöxt
að salat, krydd og blaðplöntur séu
ræktaðar við raflýsingu og við það
sem er kallað lóðrétt ræktun á borðum
sem staflað er hvert ofan við annað.
Ræktun með þessu móti sparar pláss
og ræktandinn hefur fullkomna
stjórn á umhverfisaðstæðum sem
viðkoma ræktuninni.
Andri Björn Gunnarsson,
stofnandi og framkvæmdastjóri
Háræktar ehf., segist hafa farið að
skoða möguleikann á að setja upp
ræktun á matjurtum fyrir rúmlega
tveimur árum og að það liggi
mikil vinna að baki því að koma
ræktuninni á laggirnar.
Alltaf þörf fyrir góðan mat
„Ég er viðskiptafræðingur að mennt
og hef starfað í fjármálageiranum í
London og Sviss áður en ég flutti
aftur heim fyrir um tveimur árum.
Mig hefur lengi langað að hefja eigin
rekstur og hef alltaf haft áhuga á mat
og fylgst með því sem var að gerast
á Íslandi utan frá.
Mín skoðun er sú að Ísland hafi
mikla sérstöðu í alþjóðlegu samhengi
þegar horft er til framtíðarinnar,
sérstaklega hvað varðar hreint vatn
og græna orku sem við getum nýtt
til dæmis í matvælaframleiðslu.
Svo er þjóðin fámenn og oft sem
tækninýjungar breiðast hratt út og
fólk er jákvætt fyrir nýjungum.
Heimurinn er að breytast, fólki er
að fjölga hratt og við þurfum því að
bæta hagkvæmni með því að finna
leiðir til að fæða fleiri með sama
plássi eða jafnvel minna. Það er og
verður alltaf þörf fyrir matvæli og
ekki síst hrein og góð matvæli sem
auðveldlega má rækta hér á landi og
ég tel að Ísland sé vel í stakk búið
til að leiða sjálfbæra framleiðslu á
matvælum,“ segir Andri.
Hugmyndin kviknaði á
veitingahúsi
„Hugmyndin að því að hefja lóðrétta
ræktun kom í spjalli við félaga mína
á veitingastað og þýskan vin minn
sem hafði verið að skoða svipaða
ræktun í Þýskalandi og Austurríki.
Hugmynd sú kallast Auqapnonics
þar sem er fiskeldi samhliða
ræktuninni. Sjálfum finnst mér það
ekki eins spennandi og ræktunin
ein og sér og fór því að skoða hana
og skoða hverjir hafa verið að gera
hvað á Íslandi og annars staðar í
heiminum.
Fljótt á litið er vöxturinn í
lóðréttri ræktun í dag mestur í Asíu
þar sem landnýting skiptir miklu
en Bandaríkin hafa líka verið að
taka við sér og vöxturinn í lóðréttri
ræktun hraður. Ég sá fljótlega að
fyrirtæki í þessum geira eru að fá
töluvert fjármagn til starfseminnar
og mér þótti þetta strax áhugavert.“
Talsvert dýrt að starta ræktuninni
Húsnæðið sem Hárækt hefur til
umráða er um 1000 fermetrar að
grunnfleti en ræktunarflöturinn
töluvert stærri, þar sem ræktað er
á nokkrum hæðum og nýtingin á
gólffletinum því mjög góð.
Hann vill ekki gefa upp hvað
kostnaðurinn við uppsetningu
aðstöðunnar hefur kostað en segir
að það þurfi töluvert kapítal í að
koma upp svona hátæknigróðurhúsi
innanhúss. Hins vegar næst
hagvæmni fram með betri nýtingu
á landi, orkusparneytari lýsingu og
full kominni stýringu á umhverfi.
„Ég er þannig gerður að ég skoða
vel það sem ég tek mér fyrir hendur
og eftir að hafa reiknað dæmið
fram og aftur var ég sannfærður
um að svona ræktun gæti borgað
sig. Auk mín og fjölskyldu minnar
hefur Mata ehf. lagt fjármagn til
verkefnisins enda með mikla reynslu
í matvælageiranum og gott að fá þá
inn.“
Enn að prófa okkur áfram
Ræktun hófst í lok desember
síðastliðinn og að sögn Andra
er hann enn að koma sér fyrir og
prófa sig áfram. „Við erum enn í
uppkeyrslu fasa og að prófa okkur
áfram með tegundir og yrki til að
rækta salat, krydd og það sem eru
kallaðar sprettur. Ræktunin er því
ekki komin í full afköst enn, þrátt
fyrir það hafa allflestar tegundir sem
við höfum prófað komið mjög vel út.
Tækin sem notuð eru til
ræktunarinnar eru að mestu
leyti flutt inn enda að hluta til
mjög sérhæfð. Í dag eru fjórir
starfsmenn í fullu starfi hjá Hárækt
að Andra meðtöldum og einum
garðyrkjufræðingi og að hans sögn
allir enn að læra inn á tæknina,
ræktunina og allt ferlið í kringum
reksturinn.
Ræktunarferlið að mestu leyti
sjálfvirkt
„Ræktunarferlið er þannig að
við ræktum innanhúss í hillum
og í stýrðu umhverfi og lokuðu
ræktunarrými þar sem plöntunum
eru búnar kjöraðstæður til vaxtar
allt árið um kring og eins alla daga.
Eftir að fræjunum er sáð eru
plönturnar ræktaðar í vatni og
undir LED-ljósum þannig að
það skín aldrei á þær sólarljós.
Áburðargjöf er sjálfvirk í
gegnum vökvunarvatnið sem er í
hringrásarkerfi og því endurnýtt og
ræktunin því að mestu leyti sjálfvirk
þótt mannshöndin komi víða við í
ferlinu. Við notum heldur ekki nein
varnarefni til ræktunarinnar þannig
að varan er alveg laus við allt slíkt.
Hita-, rakastig og lýsing í hverri
ræktunarhillu er sérstillt fyrir þá
tegund sem er verið að rækta þar
hverju sinni, sem gefur okkur því
sveigjanleika til að rækta margar
tegundir í einu.“
Góðar viðtökur
Andri segir að fyrstu plönturnar séu
komnar í verslanir hjá Krónunni
og að þær séu markaðssettar undir
vörumerkinu VAXA.
„Við erum þegar byrjaðir að
dreifa á veitingastaði og stór eldhús
í gegnum Mata og hafa viðbrögðin
verið mjög góð.“ /VH
„Lóðrétt“ ræktun á pöllum undir LED-lýsingu.
Ræktunin er ekki komin á fullt en allar tegundir sem prófaðar hafa verið
hafa komið vel út.