Bændablaðið - 28.02.2019, Side 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. febrúar 2019 23
100% PALLBÍLL. 100% KRAFTUR.
V6 3.0L TDI
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Volkswagen Amarok.
Glæsilegur pallbíll með 3.0 lítra, 258
hestafla, V6 dísilvél og 580 Nm togi.
Hann er með fullkomnu 4Motion
fjórhjóladrifi og dráttargetan er 3.500 kg.
Búnaður Amarok er einstaklega
ríkulegur en Amarok sameinar kosti
lúxusjeppa og pallbíls.
VW Amarok Highline Plus V6 3.0 TDI AT
Vetrarwerð 8.650.000 án vsk. 6.975.000
Aukabúnaður að verðmæti 460.000 kr fylgir:• Leður/Alcantara sætisáklæði
• Læsing á afturdrifi
• Dráttarkrókur
Sofia B. Krantz, sálfræðingur
og sauðfjárbóndi, hélt erindi í
Ásbyrgi í Miðfirði um tilfinningar,
þunglyndi, kvíða og streitu. Hún
hvatti fundargesti til að tala um
tilfinningar sínar.
Sofia byrjaði á því að sýna
bændum mynd af mannsheila.
„Líkaminn er eins og mallandi vél
sem bara gengur og það má segja
að í heilanum séu stjórnstöðvarnar.
Miðheilinn tengist tilfinningum,
hvötum og ósjálfráðum viðbrögðum
okkar. Við erum með ákveðnar
grunntilfinningar, eins og kvíða og
reiði, ekki ólíkt dýrum. En sérkenni
mannsheilans er að þar er mjög mikið
af svokölluðu tengisvæði, sér í lagi
í ytri lögum heilans og framheila,
sem gera okkur kleift að hugsa um
alls konar hluti. Við getum hugsað
óhlutbundið, ímyndað okkur hluti,
hugsað fram og til baka í tíma og
erum með sjálfsmynd, sem flest dýr
eru laus við,“ segir Sofia sem vék
síðan orðum sínum að þunglyndi.
„Það má segja að það slokkni
á kerfinu hjá fólki sem er langt
leitt af þunglyndi. Megineinkenni
þunglyndis er áhugaleysi og depurð.
Vonleysi, orkuleysi, þreyta, tregða
og framtaksleysi eru allt einkenni
þunglyndis, rétt eins og einmanaleiki,
tilgangsleysi og úrræðaleysi,“ segir
Sofia. Hún bendir á að fordómar
séu því miður algengir um ástæður
sjálfsvíga. „Vanþekking og fordómar
eru verstu óvinir okkar,“ segir hún.
Fyrsta tilfinning að koma sér úr
aðstæðum
Sofia segir að allir hafi einhvern
tímann upplifað kvíðatilfinningu, svo
sem örari hjartslátt, vöðvaspennu,
svita, meltingartruflanir og/eða
doða í útlimum. Hún segir að
fyrsta tilfinning sé að koma sér út
úr aðstæðunum. „Að skilja kvíða
og hvað hann gerir fyrir okkur
getur hjálpað okkur að takast á við
vandamálið. Streita stafar af sama
líkamskerfi, sem kviknar eðlilega
þegar við erum að takast á við
einhvers konar verkefni í lífinu. Við
getum hins vegar talað um óhóflega
streitu þegar streitukerfið er orðið
ofvirkt. Streita fylgir gjarnan þegar
fólk er undir langvarandi álagi þar
sem stjórn okkar er takmörkuð.“
Sofia bendir á að aðstæður margra
bænda séu í raun mjög streituvaldandi
um þessar mundir. „Streita getur birst
á mjög einstaklingsbundinn hátt.
Mótlætisþol okkar minnkar og menn
geta orðið viðkvæmir, fljótir í vörn,
sveiflast í skapi, verið með stuttan
þráð, upplifað lágt sjálfsmat, óöryggi
og átt erfitt með að taka ákvarðanir.
Streita er stundum fylgifiskur
þunglyndis og kvíða en það getur
líka verið öfugt. Því er mikilvægt
að greina hvert tilfelli fyrir sig til
þess að ákveða viðeigandi meðferð,“
segir hún.
Er munur á kulnun og streitu?
Sofia er spurð hver sé munurinn á
kulnun (e. burnout) og streitu. „Það
má segja að kulnun sé endastöðin,
því oft tengist kulnun langvarandi
streituvaldandi aðstæðum. Þá snúast
viðbrögðin fyrst og fremst um að
hlaða batteríin, en það fer jafnframt
eftir einstaklingsbundnum þáttum.“
Sofia hvetur fólk ávallt til að
leita sér læknisaðstoðar og fara
í almenna heilsufarsskoðun ef
einhvers konar vanlíðan er farin
að hafa truflandi áhrif á daglegt
líf. „Líkamlegar ástæður geta líka
verið orsakavaldur þunglyndis-,
kvíða- eða streitueinkenna, t.d.
skjaldkirtilsvandi og fleira.“
Þegar tilfinningar valda
vandræðum
Sofia segir að nokkur atriði sé hægt að
skoða og prófa þegar tilfinningar eru
farnar að valda okkur vandræðum.
„Við vitum að tilfinningar hafa áhrif
á líkamsstarfsemi. Við getum lært
að stjórna þessum tengslum og haft
áhrif á tilfinningar með því að stjórna
líkamsstarfsemi okkar, t.d. öndun.
Prófum að anda aðeins hægar, aðeins
dýpra, niður í maga, aðeins lengur.
Sjáum hvað gerist. Sjáum hvort við
getum hægt á önduninni, hægt á
líkamanum, og hægt á huganum.“
Sofia segir gott ráð að tileinka sér
núvitund (e. mindfulness), að vera
hér og nú. „Núvitund snýst um að
beina athyglinni að augnablikinu,
af ásettu ráði, taka eftir án þess að
dæma. Það er eðlislægt fyrir huga
okkar að vera alltaf að dæma, túlka
og meta það sem við tökum eftir,
þannig að núvitund þarf að æfa og
hún krefst fyrirhafnar og þjálfunar.“
Aðstæður og fylgitilfinningar
Sofia hvatti fundargesti til þess að
skoða aðstæður sínar hverju sinni.
„Ákveðnar tilfinningar kvikna
eðlilega í ákveðnum aðstæðum. Fólk
má gjarnan spyrja sig: Af hverju er
streita að þjaka mig? Eru tilfinningar
mínar í samræmi við aðstæður? Er
kannski skiljanlegt að mér líður eins
og mér líður í þessum aðstæðum?
Til dæmis eru margir bændur með
áhyggjur af því að þeir ná ekki endum
saman. Erfiðar tilfinningar eru ekki
endilega rangar. Hvaða tilfinningar
vakna t.d. í umræðu um innflutning
á hráu kjöti og sýklalyfjaofnæmi? Er
það ekki dass af reiði? Við viljum
samt geta stjórnað tilfinningum okkar
og ekki láta þær stjórna okkur. Þær
eru ekki alltaf skynsamlegar þegar
þær verða mjög sterkar,“ segir Sofia.
Skilningur og samkennd
Hún segir að ef eitthvað geti hjálpað
í erfiðum aðstæðum þá er það
skilningur og samkennd. „Samkennd
(e. compassion) snýst um að vera
næmur fyrir sársauka, eigin og
annarra, og vilja gera eitthvað til þess
að lina hana, s.s. að vilja hjálpa. Við
getum veitt okkur hughreystingu,
hvatningu og uppbyggilegar
leiðbeiningar, en getum líka verið
versti óvinur okkar sjálfra. Hvernig
tölum við við okkur? Við getum
verið ansi harkaleg inn á við og sagt
ljóta hluti, sem við myndum aldrei
segja við annað fólk. Sjálfsgagnrýni
getur verið mjög hamlandi, jafnvel
lamandi. Samkennd hins vegar
snýst ekki um að bara vera „næs“
við sjálfan sig og útilokar ekki að
maður vilji gera betur. Það sem er
hjálplegt að gera er ekki alltaf það
sem er auðvelt að gera eða það sem
við finnum okkur knúin til að gera.
Varnarkerfið okkar er alltaf tilbúið
að verja okkur, þannig að samkennd
krefst oft styrks og hugrekkis,“ segir
Sofia.
Stjórn, skipulag og markmið
„Oft er talað um stjórnsemi á
neikvæðum nótum, t.d. sem eins
konar frekju. Stjórnsemi getur að
vísu orðið óhófleg, en auðvitað er
oft jákvætt að taka stjórnina. Horfum
á aðstæður okkar og spyrjum: Get
ég stjórnað þessu eða ekki? Ef ég
get stjórnað þessu, fæ ég virkilega
eitthvað út úr því? Það er líka
mikilvægt að geta stoppað sig af og
sagt „nei“. Það er í lagi. Við þurfum
ekki einu sinni að gefa ástæðu. Það er
staðreynd að sólarhringurinn er bara
24 klukkutímar og við þurfum að
forgangsraða. Hvenær geri ég hvað?“
Sofia segir að það hjálpi að setja
skipulag og markmið niður á blað,
hugsa um rútínur, lífsstíl og hverju
við erum að troða inn í sólarhringinn.
„Hvernig getum við skipulagt okkur
þannig að við komum í veg fyrir að
við hrösum? Það er mikilvægt að taka
tillit til stöðu og heilsu hverju sinni
þegar við setjum okkur markmið.
Það er einfaldlega ekki hjálplegt að
setja okkur of háleit markmið, sem
við stöndum svo ekki undir,“ segir
Sofia, sem í lok fundarins hvatti
bændur til að tala saman um heilsu
og líðan. „Þegar upp er staðið erum
við líka hópdýr með meðfædda þörf
fyrir að tilheyra, að mynda tengsl, að
fá aðstoð og veita aðstoð,“ segir Sofia
B. Krantz sálfræðingur. /TB
KH Vinnuföt • Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
• Teygjanlegar í fjórar áttir, eykur
hreyfigetu.
• Rip-stopp efni, eykur þægindi og
slitstyrk.
• Klofbót styrkt með teygjanlegu efni,
eykur hreyfanleika.
• Formbeygð hné og hnjápúðavasar.
• Skyrtustoppari í streng.
• Til í flestum stærðum normal, lengri og
styttri skálmar.
Ertu þreyttur eftir daginn?
Prófaðu teygjanlegar vinnubuxur!
Verð: kr. 16.740,-
Sofia B. Krantz, sálfræðingur hjá
Sálfræðisetrinu ehf. á Hvammstanga
og Blönduósi. Mynd / Einar R. Haraldsson
Skilningur og samkennd getur hjálpað í erfiðum aðstæðum:
Aðstæður margra bænda eru í raun mjög streituvaldandi
Megineinkenni þunglyndis er áhuga
leysi og depurð. Mynd / Steini D..