Bændablaðið - 19.09.2019, Side 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201914
HLUNNINDI&VEIÐI
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
• Allar almennar vélaviðgerðir
• Almenn renni- og fræsivinna
• Rennum og slípum sveifarása
• Málmsprautum slitfleti, t.d.
á tjakkstöngum
• Gerum við loftkælingu bíla
• Almenn suðuvinna
• Plönum hedd
• Tjakkaviðgerðir
alhliða
vélaverkstæði
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
FRÉTTIR
Rafræn umsókn opnuð á AFURÐ
um kaup á greiðslumarki
Sauðfjárbændur sem óska eftir að
kaupa greiðslumark í sauðfé geta
nú sótt um á þar til gerðri umsókn
inn í greiðslukerfi landbúnaðar-
ins, AFURÐ (vefslóð: www.afurd.
is). Sótt er um með rafrænum
hætti og þurfa umsækjendur að
skrá sig inn með rafrænu skilríki
í gegnum ÍSLAND.IS.
Atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytið gaf út breytingar-
reglugerð nr. 1009/2019 um nýtt
innlausnarfyrirkomulag þann 19.
nóvember síðastliðinn í samræmi
við endurskoðaðan samstarfssamn-
ing um starfsskilyrði í sauðfjárrækt
milli ríkis og bænda og breytingu á
búvörulögum nr. 99/1993.
Matvælastofnun, Búnaðarstofa,
annast úthlutun greiðslumarks-
ins og skal bjóða til sölu innleyst
greiðslumark á núvirtu andvirði
beingreiðslna næstu þriggja alm-
anksára.
Skilafrestur á beiðni um inn-
lausn og kaup á greiðslumarki var
til miðnættis 15. desember 2019.
Greiðslufrestur vegna kaupa á
greiðslumarki er 5. janúar 2020.
Með beiðni um innlausn (sölu)
á greiðslumarki skal fylgja stað-
festing um eignarhald að lögbýli
og samþykki ábúanda, sameigenda
og veðhafa í lög býlinu. Kaupandi
greiðslumarks nýtir greiðslumark
frá og með 1. janúar 2020.
Rétt er að taka fram að ekki er
sótt um kaup á greiðslumarki á
Bændatorginu, heldur í AFURÐ á
vefslóðinni afurd.is eða afurd.bondi.
is. Fyrir skömmu var AFURÐ opnað
fyrir framleiðendur í landbúnaði, en
þar geta bændur komist inn á:
• Jarðabók búsins. Heildar-
upplýsingar um búið, tengiliðir,
upplýsingar úr lögbýlaskrá
(eigendur), stuðningsgreiðslur
og greiðslumark.
• Rafræna handbók um gæða-
stýrða sauðfjárframleiðslu.
• Umsóknir um stuðningsgreiðsl-
ur. Aðeins er komin inn umsókn
um kaup á greiðslumarki í
sauðfé, en á næstu vikum og
mánuðum færast umsóknir sem
nú eru inni á Bændatorginu yfir
á AFURÐ.
Metanafgreiðsla við Miðhúsabraut.
Akureyringar jákvæðir um að
skipta í umhverfisvænni bíla
Meirihluti Akureyringa sem
tóku afstöðu í nýrri könnun
um bifreiðakaup stefnir á að
kaupa bíl sem er að hluta eða
öllu leyti drifinn áfram af vist-
vænum orkugjöfum. Rafbílar
koma þar helst til greina, en
þónokkur fjöldi fólks íhugar að
kaupa tengi-tvinnbíl eða met-
anbíl. Könnunin var gerð af
Rannsóknamiðstöð Háskólans
á Akureyri fyrir Norðurorku
og greint frá henni á vefsíðu
Akureyrarbæjar.
Spurt var um næsta bíl sem fólk
telur líklegt að það kaupi með tilliti
til orkugjafa. Um 30% stefna á að
kaupa bensín eða dísilbíl, 23% raf-
bíl, 18% tengi-tvinnbíl og um 1%
metanbíl. 28% svarenda sögðust
ekki vita það/tóku ekki afstöðu til
spurningarinnar. Ef einungis er litið
til þeirra sem tóku afstöðu kemur
í ljós að 59% hugsa sér að kaupa
næst bíl sem drifinn er áfram af
vistvænum orkugjöfum; rafbíl,
tengi-tvinnbíl eða metanbíl. 41%
telja líklegt að bensín- eða dísilbíll
verði næst fyrir valinu.
Ótrúlegt að fleiri
kjósi ekki metanbíla
Þriðjungur þeirra sem tóku af-
stöðu veðja á rafbíl, fjórðungur á
tengi-tvinnbíl en aðeins tæp 2% á
metanbíl. Þessar niðurstöður ríma
við fréttir af því að ríflega sex þús-
und fleiri rafbílar en metanbílar
séu í umferð hér á landi. Haft er
eftir Sigurði Inga Friðleifssyni,
framkvæmdastjóra Orkuseturs,
að það sé í raun ótrúlegt að ekki
fleiri kjósi metan. Slíkir bílar séu
ódýrari, eldsneytið sömuleiðis og
því framlag inn í loftslagsbaráttuna
með því að skipta úr óhreinum er-
lendum orkugjafa fyrir hreina inn-
lenda orku.
Heilt yfir benda niðurstöður
könnunarinnar til þess að stór hluti
Akureyringa sé jákvæður gagnvart
því að skipta yfir í umhverfisvænni
bíla. /MÞÞFjórða vinnsluholan á Reykjum
Um þessar mundir stendur yfir
borun á fjórðu vinnsluholunni á
Reykjum við Húnavelli vegna við-
bótarvatnsöflunar fyrir hitaveitu
Blönduóss og Skagastrandar.
Á grundvelli niðurstöðu rann-
sóknarborana í árslok 2018 var
staðsetning þessarar holu sem mun
verða 1.200 m djúp ákveðin. Áætlað
er að borun ljúki í janúar eða febr-
úar 2020. Verði árangur fullnægj-
andi mun það auka rekstraröryggi
veitunnar til framtíðar. Borverktaki
er Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða. Þetta kemur fram á vefsíðu
Rarik. /MÞÞ
Borun hefur staðið yfir á fjórðu vinnsluholunni á Reykjum við Húnavelli
vegna viðbótarvatnsöflunar fyrir hitaveitu Blönduóss og Skagastrandar.
Hrútafundur í Hlíðarbæ:
Hríshólslamb númer 31 stigahæst
Vel var mætt að vanda á hrúta-
fund sem haldinn var í Hlíðarbæ
í lok nóvember, en tæplega 50
sauðfjárræktendur og áhugafólk
var á staðnum. Eyþór Einarsson,
ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins, fór yfir hrúta-
kost sæðingastöðvanna og ýmis
áherslumál greinarinnar.
BSE veitti viðurkenningar fyrir
þrjá stigahæstu lambhrúta sem
skoðaðir voru í haust af ráðunaut-
um RML.
Þar stóð efstur, lamb nr. 32
á Hríshóli 2 með 89 stig sem
Guðmundur S. Óskarsson og Helga
Berglind Hreinsdóttir, bændur
þar, eiga. Hann er undan Simba
18-779 sem er undan Tvistssyni.
Á bakvið hann eru margir þekktir
sæðishrútar eins og Saumur, Gosi
auk Bergsstaðahrútanna Gaurs
og Grámanns. Lambið var 63 kg,
vöðvi 39, fita 3,9 lögun 5, leggur
110. Stigin við dóm : 8-8,5-9,5-10-
9,5-18,5-8-8-9 = 89
Í öðru sæti var lamb nr. 124
á Auðnum 1 í eigu Aðalsteins
Heiðmanns Hreinssonar og
Sigríðar Svavarsdóttur með 88,5
stig, undan Þræl 16-358 sem er
heimahrútur, með ættir að mestu
frá Auðnum og nágrannabæjum
í Öxnadal. Bakvöðvi lambsins
var 40 mm, sem var sá þykkasti
sem mældur var hér í haust, ásamt
lambi frá Kristnesi. Þyngd 56 kg.
fita 3,5 lögun 5, leggur 114 og stig:
8-9-9-10-9-18,5-8-8-9 = 88,5.
Þriðji var hrútur nr. 106 á
Hríshóli í eigu Ingva Guðmunds-
sonar og var hann einnig með
88,5 stig. Hrúturinn er undan
Ragga 18-774 Guttasyni frá
Þóroddsstöðum og Þoku 13-030
sem er undan Grámanni frá
Bergsstöðum. Þyngd 50 kg, vöðvi
38, fita 2,5 lögun 5, leggur 110.
Stig hans eru 8-8,5-9,5-10-9-18,5-
8-8-9=88,5.
Átta aðrir hrútar voru með 88,5
stig en raðast neðar samkvæmt við-
miðunarreglum RML. /MÞÞ
Frá vinstri eru Aðalsteinn Heiðmann Hreinsson á Auðnum 1, þá Ingvi Guð-
mundsson og Guðmundur S. Óskarsson á Hríshóli 2.
Stigahæsti hrúturinn í Eyjafirði á
liðnu hausti, lamb númer 32 á Hrís-
hóli.