Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Qupperneq 9
á stóra mætti nefna: Gerð erfðaskráa,
lífeyris- og eftirlaunamál, aðfarir og
nauðungarsölur, stofnskrá fyrir minn-
ingarsjóð, ráðleggingar vegna skatt-
framtala, og þannig mætti áfram telja.
Forsenda fyrir afgreiðslu mála af
hálfu lögfræðiþjónustu ÖBI er sú að
öryrkjar sem þangað leita aðstoðar
leggi mál sitt fyrir með skýrum hætti
og láti öll handbær gögn tengd mál-
efninu fylgja með til upplýsinga. Þetta
eru minnstu kröfur sem hægt er að
gera til þeirra sem aðstoðar eru þurfi.
Annar háttur sem hafður yrði á myndi
leiða til þess að tími og réttur manna
gæti farið til spillis.
Jóhannes Albert Sævarsson,
héraðsdómslögmaður.
Hlerað
í hornum
Maður einn, Bjarni að nafni þótti
heldur kvenhollur, en kona hans tók
því með stakri stillingu. Einu sinni
fóru bæði hjónin í fiskvinnu suður
með sjó og svo fór að Bjarni hvarf og
fór konan að leita hans. Hún fann
Bjarna sinn bak við saltfiskstæðu að
glingra þar við stelpu eina. Þá sagði
konan með hægð: “Þú kemur svo
Bjami minn þegar þú ert búinn”.
**
Maður nokkur sendi Skattstofunni
svohljóðandi bréf: “Fyrir 10 árum
taldi ég rangt fram. Síðan hefi ég átt
bágt með svefn. Sendi hér með
10.000,- krónur. Ef svefninn lagast
ekki, sendi ég það sem á vantar”.
**
Heildsali í Reykjavík var að hafa ofan
af fyrir frú einni í fjarveru eigin-
mannsins. Síminn hringdi og frúin
svaraði, heilsaði með ástarorðum og
bauð góða nótt af innileik miklum og
sagði svo við heildsalann: “Ekki er
það gott. Maðurinn minn situr og
teflir við þig og þú hefur ekki unnið
eina einustu skák”.
**
Ritstjóri blaðs eins fékk grein senda
frá kunningja sínum með þeim
tilmælum að hann birti greinina en
veldi henni fyrirsögn sjálfur. Ritstjór-
inn svaraði um hæl: “Birti greinina,
en framvegis bið ég þig að hafa það
þannig að þú leggir til fyrirsögnina,
ég skal semja greinina sjálfur”.
Tvítugsafmæli tíundað
Sá trausti og ötuli baráttumaður í
málefnum okkar, Halldór S.
Rafnar fv. framkvæmdastjóri
Blindrafélagsins, kom hér að máli við
okkur sem oftar og minnti
þá á það, að á þessu ári
væru einmitt 20 ár frá því
lögfræðiþjónusta Ör-
yrkjabandalagsins hófst.
Vel er við hæfi að geta hér
um í riti bandalagsins, en
Halldór gerði að vonum
betur, því hann færði okk-
ur fyrstu ársskýrsluna sem
gerð var af hans hálfu, en
Halldór var sem kunnugt
er fyrsti forstöðumaður
þessarar þjónustu, festi
hana rækilega í sessi með
far-sælum störfum sínum.
Forstöðumenn þessarar
þjónustu auk Halldórs
hafa svo tveir verið, Jó-
hann Pétur Sveinsson hdl.
sem gegndi starfi þessu
frá 1986 til dánardags og
nú er það Jóhannes Albert
Sævarsson hdl. sem hér
erjar á akri.
Halldór S. Rafnar.
segir: “Hlustað á raunalegar ævi-
sögur ýmissa öryrkja og önnur mál,
sem ekki geta talizt falla undir neinn
sérstakan flokk”. Halldór segir af
hógværð sinni að óhætt
muni að segja að flest
þessara mála hafi verið til
lykta leidd með mjög
sæmilegum árangri, eink-
um nefnir Halldór að nið-
urfelling gamalla skulda
hafi gengið eftir. Halldór
segist í skýrslunni taka
laun sem lögfræðingur í
hálfu starfi, en daglega
segir hann að 2 - 7 hafi
leitað aðstoðar. Hingað í
hús flutti svo þessi ágæti
þáttur starfsins tveimur
árum síðar og hefur verið
hér síðan.
Jóhann Pétur
Sveinsson.
En áður en við förum nánar út í
það skulum við stuttlega grípa
niður í fyrstu ársskýrsluna hans Hall-
dórs sem er frá 19. nóv. 1976. Þar
kemur fyrst fram að Tollstjórinn í
Reykjavtk lánaði Öryrkjabandalagi
íslands vinnuaðstöðu að Tryggva-
götu 19 og þar var þjónustan fyrst til
húsa. Þetta var hið höfðinglegasta
boð - skrifstofuherbergi, aðstaða fyrir
biðstofu við hliðina á skrifstofunni,
sérsnyrtiherbergi fylgdi, ræsting,
rafmagn og hiti - allt frítt. Þetta
gerðist 13. febr. 1976. Svo fer Hall-
dór skilmerkilega yfir þau mál sem
hann hafi fengizt við þetta fyrsta
starfsár sitt. Þarna er um 7 mála-
flokka að ræða auk ýmissa mála og
skulu upp taldir: Erfðamál, skatta-
mál, skaðabótamál, hjúskaparmál,
mál viðkomandi Tryggingastofnun
ríkisins, húsnæðismál og húseigna-
mál. I upptalningu ýmissa mála kenn-
ir vissulega margra grasa og í lokin
Jóhann Pétur Sveins-
son tók svo við af
Halldóri 1986þegarHall-
dór varð framkvæmda-
stjóri Blindrafélagsins og
hér starfaði hann til endadægurs, átti
hér vísa veru í viku hverri og fékk til
sín fjölda mála. I einu fyrsta tölublaði
þessa rits var einmitt á starf Jóhanns
Péturs minnt vel og rækilega um leið
og farið var yfir félagsmálastörf hans
sem voru mörg og sannarlega vel af
hendi leyst í hvívetna. I lítilli minn-
ingargrein um Jóhann Pétur (látinn
5. sept. 1994) segir svo: “Hann var
um árabil lögfræðingur Öryrkja-
bandalags Islands og þar leituðu
margir til hans og allra götu greiddi
hann sem bezt. Bandalaginu var
mikill akkur í hans ágætu störfum
sem juku veg þess út á við sem inn á
við”. Mæt er í muna minning þessa
sanna sólskinsdrengs. Jóhannes
Albert Sævarsson héraðsdómslög-
maður tók svo við af Jóhanni Pétri
gengnum og hefur annast þjónustu
þessa nú með miklum sóma. Hann á
hér að framan fróðleiksorð um þenn-
an þátt í starfsemi Öryrkjabandalags
Islands.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
9