Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Qupperneq 21
Hlerað í hornum
Eiginmaðurinn hringdi í lækni sinn
um nótt og bað hann að koma strax,
konan sín væri áreiðanlega með botn-
langabólgu. Læknirinn kvað það
ómögulegt, hann hefði einmitt tekið
botnlangann úr eiginkonunni fyrir
þrem árum eða sagði læknirinn:
“Hefur þú heyrt að menn fengju annan
botnlanga?” “Nei, en hefur þú ekki
heyrt að menn fái sér aðra konu” !
**
Maður einn var spurður að því hvort
starfsfélagi hans væri uppstökkur.
“Það þarf a.m.k. ekki að setja í hann
sápu, svo hann gjósi”, var svarið.
**
Dyrabjöllunni var hringt og frúin fór
til dyra. Úti fyrir stóð maður og
sagðist vera að safna fyrir S.Á.Á.,
hvort hún ætti nokkuð til að gefa.
Frúin hreytti út úr sér: “Jú, þið getið
fengið hann Jón, eiginmann minn”.
**
Miðaldra hjón voru í strætisvagni og
troðfullt var í vagninum. Frúnni þótti
bóndi sinn sæll á svip er honum var
þrýst upp að föngulegri, ungri stúlku.
Skyndilega snéri stúlkan sér við og
rak manninum rokna kinnhest og
hvæsti:“Þetta ætti að venja yður af að
klípa ungar stúlkur”. Maðurinn botn-
aði ekki neitt í neinu og sagði við frú
sína, er þau yfirgáfu vagninn að ekki
hefði hann gert stúlkunni neitt. “Það
veit ég vel, enda var það ég sem kleip
í rassinn á henni”, sagði frúin þá.
**
Eldri maður fékk listmálara einn til
að mála mynd af ungri konu sinni, en
brá í brún þegar málarinn skilaði
myndinni þar sem unga frúin var því
nær nakin. Hann spurði málarann
hvassyrtur hvað þessu ylli, en frúin
var fljótari til svars: “Þér er óhætt að
trúa því elskan, að hann málaði mynd-
ina bara eftir minni”.
**
Maður einn kom til læknis og kvartaði
um þreytu og slen. Læknirinn spurði
margs um mögulegar orsakir m.a.
hversu oft á viku hann ætti ástafundi.
Maðurinn svaraði:“Á sunnudögum,
þriðjudögum, fimmtudögum og laug-
ardögum”. Læknirinn brosti við og
spurði hvort hann gæti nú ekki sleppt
sunnudeginum. “Nei, það er mér
lífsins ómögulegt, það er nefnilega
eina kvöldið sem ég er heima”.
Úthlutun úr Sjóði
s
Odds Olafssonar
Hinn 26. apríl var í þriðja sinn úthlutað styrkjum úr Sjóði Odds
Ólafssonar, en 26. apríl einmitt fæðingardagur Odds árið 1909.
Styrkþegar voru að þessu sinni 8, námsstyrkir voru 6, einn styrkur veittur
til námskeiðshalds, en aðeins einn styrkur til rannsóknarstarfa. Orðið hafði
verið við öllum styrkbeiðnum, enda áttu allar fullan rétt á sér skv. ákvæðum
í skipulagsskrá sjóðsins. í tilefni úthlutunar nú var haldin stutt en ljómandi
góð athöfn í fundarsal Öryrkjabandalagsins Hátúni 10, en þar voru mættir
þeir 6 styrkþegar er áttu heimangengt, tveir af sonum Odds Ólafssonar,
Ólafur Hergill og Vífill, sjóðsstjórnarmenn og þeirra varamenn og fleiri
góðir gestir. Formaður sjóðsstjómar flutti ávarp og minntist í upphafi hinnar
mikilhæfu eiginkonu Odds Ólafssonar, Ragnheiðar Jóhannesdóttur, sem
lézt á liðnum vetri, en Ragnheiður hafði einmitt í bæði skiptin áður afhent
styrkina. Reis fólk úr sætum í virðingarskyni við þau horfnu heiðurshjón.
Hann fór nokkrum orðum um hið mikla starf sem Oddur Ólafsson hafði
af hendi innt um ævidaga, ekki sízt í þágu fatlaðs fólks á svo mörgum
sviðum. Þar fór saman vökult frumkvæði og framkvæmd örugg og verka
hans sér svo víða stað. Sjóðsaðstandendur eru: Hússjóður Öryrkja-
bandalagsins, Samband íslenzkra berkla- og brjóstholssjúklinga og
Öryrkjabandalag íslands, en á einhverri tíð var Oddur formaður í þessum
samtökum öllum.
Styrkupphæðir nú voru á bilinu 50 þús. kr. til 150 þús. kr. en alls var
úthlutað 725 þús. kr. að þessu sinni. Að máli formanns loknu afhenti
Ólafur Hergill Oddsson héraðslæknir viðstöddum styrkþegum sínar
styrkupphæðir. Þessir voru styrkþegar nú: Arndís Ó. Hauksdóttir, Eyrún
María Rúnarsdóttir, Félag heyrnarlausra, Jón H. Sigurðsson, Margrét
Gunnarsdóttir, Sigurbjörg Ámadóttir, Sunneva Þrándardóttir og Þjóðbjörg
Guðjónsdóttir. Eyrún María fékk styrk til rannsókna á dyslexiu (les- og
stafblindu ) og Félag heyrnarlausra til námskeiðshalds, en aðrir til náms
erlendis sem innanlands. Ólafur Hergill flutti síðan kveðjur og þakkir
þeirra systkina fyrir þá virðingu sem föður þeirra væri með þessu sýnd.
Ámaði styrkþegum allra heilla með áform sín.
Fólk þáði veitingar góðar og var athöfnin öll hin ánægjulegasta.
Sjóðsstjóm skipa: Anna Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri frá Hússjóði
Öryrkjabandalagsins, Davíð Gíslason læknir frá Sambandi íslenzkra
berkla- og brjóstholssjúklinga - SÍBS og undirritaður frá Öryrkjabandalagi
íslands og gegnir nú formennsku stjómar.
Helgi Seljan.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
21