Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Side 24

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Side 24
Af stjórnarvettvangi Fundur var haldinn í stjórn Öryrkjabandalags íslands þriðjudaginn 27. feb. 1996 og hófst í Oddshúsi kl. 16.40. Formaður setti fund og bauð alla velkomna og sér í lagi þau sem ný voru á vettvangi: Ingólf H. Ingólfsson varam. Geð- hjálpar, Oddnýju Fjólu Lárusdóttur aðalm. MS félagsins og Sigurð Agústsson varam. Félags nýmasjúkra. Fyrsta dagskrármálið var yfirferð formanns á því helzta sem hafði verið unnið að frá síðasta stjórnarfundi. Bílakaupalánunum tókst með harð- fylgi að halda inni hjá Trygginga- stofnun áfram, en vextir voru hækk- aðir úr einu upp í fjögur prósent. Fagnaði formaður þessum augljósa árangri vamarbaráttunnar. Hún minnti því næst á afdrif láglaunasamninga liðins árs fyrir lífeyrisþega, en mikið vantaði á að þeir hefðu að fullu skilað sér yfir til bótaþega. Málið hefði verið lagt fyrir Umboðsmann Alþingis og þar væri það nú í vinnslu. Hún greindi frá fundi með fjármálaráðherra Friðrik Sophussyni um skattamál o.fl. Sér í lagi rætt um skerðingu bóta af völdum félagslegrar aðstoðar. Einnig greindi hún frá fundi með ráðuneytis- stjóra heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytis, Davíð A. Gunnarssyni, þar sem sömu mál að hluta hefðu verið reifuð og rædd. Einnig rætt þar um meðferð vasapeninga og ákveðið ósamræmi þar milli laga og reglu- gerðar, sem í athugun væri nú. Þá greindi Ólöf formaður frá því að væntanlegur væri bæklingur um Öryrkjabandalagið og félög þess sem Einar Örn Stefánsson hefði yfirum- sjón með. Sá bæklingur yrði bæði til á dönsku og ensku. Hún kvað stefnu- skrárvinnu fyrir bandalagið mundu hefjast um miðjan mars. Ólöf sagði því næst frá ánægjulegum heimsókn- um til félaga okkar sem frá var greint í síðasta Fréttabréfi. • • Oryrkjabandalagið verður 35 ára á þessu ári og í tilefni afmælis- ins lagði framkvæmdastjórn til að einhverju brýnu ákveðnu verkefni yrði sómi sýndur með góðri gjöf. Fékk hún samþykki fundarins til þess. Hún greindi svo frá fróðlegum og góðum ráðstefnum sem fulltrúar bandalags- ins hefðu sótt m.a. á vegum félags- málaráðuneytis, landlæknisembættis og öldrunarráðs svo og menntamála- ráðuneytis sem fyrir dyrum stóð. Ólöf minnti þessu næst á átak Reykjavík- urborgar í ferlimálum, gatnafram- kvæmdum sér í lagi, átak í samvinnu við Sjálfsbjörg í Reykjavík í tengslum við úttekt borgarmannvirkja. 10 millj. kr. eru nú sérmerktar hjá borginni til þessa. I lokin gat hún svo um sölu- sýningu á vegum Sjálfsbjargar í Reykjavík í Ráðhúsinu þar sem lista- menn gáfu félaginu fjölmarga list- muni og málverk til að kosta fram- kvæmdir á svæði félagsins við Vatns- enda. á var komið að fjárhagsáætlun bandalagsins fyrir þetta ár og var það gjaldkeri bandalagsins, Hafliði Hjartarson, sem fór glögglega og vel yfir alla liði og útskýrði allt það helzta. Hann kvað áætlun síðasta árs hafa með ágætum staðizt og bæri það vitni góðri fjármálastjóm. I fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir 148 millj. kr. tekjum frá Islenzkri Getspá, þar af verði hlutur Hússjóðs rúmar 99 millj. kr. og hlutur Öryrkjabandalagsins rúmar 48 millj. kr. Launa- og skrifstofukostnað- ur er samtals rúmar 13.3 millj. kr. Ýmis kostnaður þ.m.t. erlend sam- skipti, funda- og kynningarkostnaður tæpar 4.8 millj. kr. Utgáfa fréttabréfs áætluð 5.1 millj. kr. Til samstarfs við Þroskahjálp, til Starfsþjálfunar fatl- aðra, til Tölvumiðstöðvar fatlaðra o.fl. rúmar 1.9 millj. kr. Styrkir eru að upphæð 9.5 millj. kr. Til atvinnumála fatlaðra og Vinnustaða ÖBÍ 14.1 millj. Er þá allt það helzta talið og tíundað. Að loknum nokkrum mæta- góðum umræðum um áætlunina var hún borin upp til samþykktar og sam- þykkt einróma. Næsti liður dagskrár var annars vegar um fjárlagaafgreiðslu svo og Framkvæmdasjóð fatlaðra hins vegar og hafði Helgi Seljan þar framsögu. Hann greindi frá helztu niðurstöðum fjárlaga hvað trygginga- mál varðaði, allnokkra lækkun heim- ildarbóta, skerðingu bóta vegna fjár- magnstekna frá og með 1. sept. '96, lækkun bóta vegna þess að lagaskyldu um greiðslu í lífeyrissjóði hefði ekki verið sinnt, fækkun bifreiðakaupa- styrkja hinna lægri úr 600 í 335 o.fl. Minnti og á hækkun komugjalda til heilsugæzlu- og heimilislækna og sérfræðinga svo og fleiri hækkanir þar. Hann vék svo sér í lagi að stöðu Framkvæmdasjóðs fatlaðra, fjármun- um hans nú til úthlutunar upp á nær 470 millj. kr. (257 á fjárlögum, 80 frá Sólborg, 130 millj. kr. inneign í Erfðafjársjóði). Hins vegar hefði sjóðurinn átt að hafa á fjárlögum 390 millj. kr. í stað 257 millj. Nær fullbúin tillaga að úthlutun lögð fyrir Stjómar- nefnd af hálfu ráðuneytis og afar litlu hægt þar um að þoka. Jafnræði milli fötlunarhópa í úthlutun hverfandi lítið. Fjölmörg félög fatlaðra sem sinna mikilvægri þjónustu og viða- miklum rekstri fyrir sitt fólk hvergi á blaði, þó aðeins sé verið að sækja um styrk til bráðbrýnna framkvæmda. Helgi lagði til að þriggja manna hópur yrði valinn til að fara yfir úthlutun síðustu ára í ljósi þess, hvert jafnræði er með fötlunarhópum þar og eiga síðan fund með formanni Stjórnar- nefndar svo og ráðherra félagsmála um þróun þessara mála. Það var sam- þykkt. Miklar umræður urðu um þetta mál og víða gætti mikillar óánægju með það hversu Framkvæmdasjóður fatlaðra sniðgengi þarfir hinna ýmsu félaga fatlaðra og stórframkvæmdir í þágu þeirra fólks sem hið opinbera ætti raunar að sjá fyrir, fengju óveru- legan eða engan stuðning til verkefna sinna. Nú hefði þó um þverbak keyrt. Nauðsyn bæri til þess að Fram- kvæmdasjóður fatlaðra stæði undir nafni sem sjóður er allir fötlunarhópar ættu fullan rétt til fyrirgreiðslu frá. á var tekin fyrir tilnefning banda- lagsins í Umferðarráð. Sam- þykkt var að aðalmaður skyldi vera Hafliði Hjartarson og til vara yrði Guðríður Ólafsdóttir. Formaður ræddi að lokum nýjar tillögur um Ferðaþjón- ustu fatlaðra sem til umsagnar banda- 24

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.