Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Síða 127
BEITARGILDI GRÓÐURLENDA 125
fjöldi fóðureininga á hektara er yfir 200.
Gróðurlendi með hæst beitargildi á lág-
lendi eru skóglendi með grasi og elftingu,
jaðrar, blómlendi, skóglendi með grasi og
kvistgróðri, snjódældir og graslendi. A
hálendi er aðeins blómlendi með meira en
200 fóðureiningar á hektara. Pað hefur
raunar hæst beitargildi, en þolir beit verst
allra gróðurlenda. Pví miður er það svo,
að beztu gróðurlendin hafa einna minnsta
útbreiðslu hér á landi, og á miðhálendi
landsins eru þau gróðurlendi, sem gefa
færri en 200 fóðureiningar á ha., yfir 90%
af öllu flatarmáli gróins lands.
Varðandi beitargildi íslenzkra gróður-
lenda skal það endurtekið, að óvíða eru
þau í jafnvægi við ríkjandi gróðurskilyrði,
SUMMARY
The grazing value of plant communities.
Ingvi Þorsteinsson
Agricultural Research Institute
Keldnaholt, Reykjavík.
Table 1 shows the annual production of
the most common plant communitites in
Iceland expressed as the total number of
og er beitargildi þeirra því mun minna en
það gæti verið. Aðeins votlendi, botn-
gróður friðaðs skóglendis og blómlendi
eru í slíku jafnvægi. Beitargildi mýra og
flóa er að jafnaði lágt, en blómlendis og
skóglendis hátt. Beitargildi blómlendis og
skóglendis mundi minnka nokkuð við beit
vegna þess, að margar tvíkímblaða
blómjurtir, sem eru meðal beztu beitar-
plantnanna, eru mjög viðkvæmar og
hverfa fljótlega við beit. Þrátt fyrir það
mundu þessi gróðurlendi áfram halda háu
beitargildi, ef þau væru hóflega nýtt.
Beitargildi annarra gróðurlenda mætti
hins vegar auka stórlega á tiltölulega
stuttum tíma með hóflegri nýtingu eða
friðun, þar sem hennar er þörf.
feed units and their grazing value expres-
sed as the number of usable feed units.
Plant communities with an annual pro-
duction of 200 or more usable feed units
per hectare are of high quality. It is, how-
ever, characteristic of the low quality of
the vegetation of the Icelandic rangelands
that more than 90 per cent of its total area
produces less than that amount.