Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 20206
Næsta blað 6.
janúar
VESTURLAND: Næsta tölu-
blað af skessuhorni kemur út
miðvikudaginn 6. janúar 2021.
starfsfólk verður við vinnu á rit-
stjórn dagana 28.-30. desemb-
er og fyrstu virku daga nýs árs.
skrifstofa skessuhorns verður
lokuð frá hádegi fimmtudag-
inn 17. desember til og með 27.
desember. Minnt er á fréttavakt
á vef skessuhorns. Tilkynning-
ar og ábendingar um fréttir til
birtingar á vef sendist á skessu-
horn@skessuhorn.is einn-
ig má hringja í ritstjóra í síma
894-8998 ef nauðsynlega þarf
að koma efni á vefinn. Gleði-
lega hátíð! -mm
Fjórðungsmót
næsta sumar
VESTURLAND: Fjórðungs-
mót Vesturlands í hestaíþrótt-
um verður haldið í borgarnesi
næsta sumar, dagana 8. til 11.
júlí. Að mótinu standa hesta-
mannafélögin á Vesturlandi;
borgfirðingur, snæfellingur,
Dreyri og Glaður, en auk þeirra
verður félögum í Húnavatns-
sýslum, skagafirði og á Vest-
fjörðum boðið til keppni. Dag-
skrá, keppnisgreinar og ann-
að fyrirkomulag verður kynnt á
næstunni. -mm
Tannlæknastofu
lokað
BORGARNES: Ágætu íbúar
borgarfjaðar og Mýra. Tann-
læknastofa borgarness hefur
verið lögð niður. Tannlækna-
stofa eG, salarvegi 2 Kópa-
vogi s. 564 6250, mun sinna
okkar skjólstæðingum sem það
vilja. Við þökkum góð viðkynni
í þau 40 ár sem liðin eru. Örn
og Anna Gerður.“ -fréttatilk.
Ríkið sýknað
af kröfu
AKRANES: Landsréttur hef-
ur staðfest sýknudóm héraðs-
dóms yfir íslenska ríkinu í kæru
sem Ágústa elín Ingþórsdóttir,
fyrrverandi skólameistari Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi, lagði fram gegn mennta-
málaráðherra. Taldi Ágústa
elín að skipunartími hennar
hefði framlengst sjálfkrafa til
fimm ára þar sem henni hefði
ekki verið tilkynnt innan nauð-
synlegs fyrirvara að starfið yrði
auglýst. Dómurinn taldi að
ákvörðun mennta- og menn-
ingarmálaráðherra um að aug-
lýsa stöðu skólameistara hafi
verið tekin á grundvelli skýrr-
ar lagaheimildar, birt innan lög-
mæltra tímamarka og byggð
á málefnalegum sjónarmiðum
að undangenginni fullnægjandi
rannsókn. -mm
Bílvelta við
Köldukinn
DALIR: Að kvöldi miðviku-
dags varð bílvelta á Vestfjarða-
vegi við Köldukinn. Mikil hálka
var á vettvangi og fór bíllinn
tvær veltur og skemmdist tals-
vert á hlið og toppi. Fjarlægja
þurfti bílinn með kranabíl. Þrír
voru í bílnum og voru allir flutt-
ir á heilsugæslustöðina í búðar-
dal. -frg
Nýlega voru undirritaðir tímamóta-
samningar milli stofnhóps eigenda-
og ræktenda íslenskra landnáms-
hænsna og slow Food Internation-
al sem eru alþjóðleg náttúruvernd-
arsamtök starfandi í rúmlega 150
löndum. samningarnir slow Food
Presidium-Landnámshænan verða
kynntir á alþjóðavettvangi á morg-
un, 17. desember, og með þeim
fær stofnhópur innan eigenda- og
ræktendafélags landnámshænsna
(eRL) leyfi til að nota gæðastimpil
samtakanna; Rauða snigilinn, á egg
og unga landnámshænsna frá við-
komandi búum.
Landnámshænan er fyrsta hús-
dýrið á Norðurlöndum sem veitist
þessi heiður og hann er gífurlega
mikilvægur fyrir verndun stofns-
ins og viðurkenningu á gæðum
framleiðslunnar. Að sögn Jóhönnu
Harðardóttur í Hlésey, hópstjóra
slow Food – Landnámshænan, var
talsverður aðdragandi að þessum
samningi, en skessuhorn sagði frá
heimsókn stofnenda slow Food til
nokkurra bænda á Vesturlandi sum-
arið 2015. „slow Food Internation-
al setur metnað sinn í að varðveita
genamengi dýra- og plöntustofna
heimsins, auk þess sem samtök-
in leggja mikla áherslu á að við-
halda náttúrulegri og mannúðlegri
framleiðslu matvæla, án allra auka-
og eiturefna. Í samningum „slow
Food-Landnámshænan“ skuld-
binda framleiðendur sig til að hlýta
reglum samtakanna um ræktun, um-
hverfi innanhúss sem -utan, fóðr-
un og annan aðbúnað og umhirðu
fuglanna allt frá klaki að slátrun.
Með þessu myndast tækifæri fyrir
neytendur til að velja innlenda vöru
sem framleidd hefur verið í sátt við
náttúruna og uppfyllir ströngustu
gæðakröfur um heilbrigði og heið-
arleika í viðskiptum.“
Jóhanna segir hlutfallslega stór-
an hóp stofnfélaganna ellefu vera
á Vesturlandi og nágrenni. „Við
erum nokkuð mörg á litlu svæði
sem kemur sér vel fyrir okkur.
Álfagarður í Kjós, Hlésey í Hval-
firði, Lýsudalur á snæfellsnesi og
tveir aðilar í Mosfellsdal. Við erum
það nærri hvert öðru að við reikn-
um með að geta átt gott samstarf
á þessu sviði. Við erum viss um að
þessi hópur á eftir að stækka og efl-
ast mikið á næstu árum og verða
virtur og þekktur eins og aðrir sem
hafa gengist þessum kröfum á hönd
víða um heim.“
Jóhanna segir að stofnhópur
slow Food - Landnámshænan sé
rétt að byrja að kynna þetta fyrir
almenningi og skipuleggja starfið.
„Kröfurnar sem fylgja þessari veg-
tyllu eru talsverðar og það þarfnast
skipulags og eftirlits af hálfu sam-
starfshópsins. Við erum flest með
fremur lítil bú og við þurfum því
að koma okkur upp einhvers kon-
ar sameiginlegum lausnum á ýmsu.
Það er tilhlökkunarefni og verð-
ur gaman að sjá þróunina á næstu
misserum.“ mm
F.v. Hjónin og hænsnabændurnir Sigurður Ingólfsson og Jóhanna G. Harðardóttir
í Hlésey, Ólafur Dýrmundsson, Elisa Demichelis, Dominique Plédel Jónsson, Piero
Sardo og Eirný Sigurðardóttir. Myndin var tekin 2015 þegar Slow Food fólk kynnti
sér íslensku landnámshænuna. Ljósm. Skessuhorn/kgk.
Landnámshænur í fararbroddi
á Norðurlöndum
Íslenska landnámshænan fær gæðastimpil Slow Food Interntional
Hér er Hléseyjar Dommi og tvær vinkonur hans. Ljósm. jh.
Þetta er síðasta blað ársins hjá
Skessuhorni en ekki örvænta
því miðvikudaginn 6. janúar
komum við sterk til leiks með
fyrsta blað ársins 2021, árið sem
allir bíða spenntir eftir. Þang-
að til vonum við að þið eigið öll
gleðileg jól í jólakúlunum ykkar.
Á morgun, fimmtudag, er spáð
norðaustan 8-15 m/s og rign-
ingu eða slyddu með köflum og
dálítilli snjókomu inni til lands-
ins. Víða bjartviðri sunnan- og
vestanlands. Hiti 0-6 stig. Á
föstudag og laugardag er útlit
fyrir allhvassa eða hvassa norð-
austanátt. Snjókomu eða slyddu
á Vestfjörðum og Norðurlandi,
og rigningu á Austfjörðum,
en þurrt að kalla fyrir sunnan.
Heldur kólnandi. Á sunnudag
og mánudag er spáð norðanátt
með snjókomu eða éljum norð-
an- og austantil á landinu, en
björtu veðri um landið sunnan-
vert. Frost 0-7 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hlakkar þú til
jólanna?“ 36% sögðust bæði og
hlakka til jólanna, 39% hlakka
frekar mikið til jólanna og 22%
hlakkar mjööög mikið til þeirra.
13% svarenda kvíða jólunum.
Í næstu viku er spurt:
Vilt þú láta bólusetja þig við
Covid-19?
Allir sem gera jólagóðverk til að
hjálpa öðrum að eiga gleðileg
jól eru Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur