Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 108
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020108
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Árið 1970 stofnuðu þeir Guðjón
Finnbogason og Friðjón edvar-
dsson ásamt fleiri skagamönnum
knattspyrnudómarafélag sem fékk
heitið Knattspyrnudómarafélag
Akraness, eða KDA eins og það
þekkist í dag. Félagið hefur starfað
sleitulaust frá stofnun þess til dags-
ins í dag og er elsta starfandi knatt-
spyrnudómarafélag landsins, þótt
víðar mætti leita. Í gegnum tíðina
hefur KDA átt fjölmarga dómara
sem starfa og hafa starfað á efsta
stigi knattspyrnunnar á Íslandi. sá
fyrsti var Guðjón Finnbogason og
fylgdu margir fast á eftir honum
svo sem sæmundur Víglundsson,
sævar Jónsson, Valgeir Valgeirsson
og Ívar Orri Kristjánsson. einnig
hafa margir aðstoðardómarar (eða
línuverðir eins og starfið hét þegar
félagið var stofnað) starfað á efsta
stiginu, má þar nefna smára Víf-
ilsson, Halldór breiðfjörð, björn
Valdimarsson, steinar berg sævars-
son, egil Guðvarð Guðlaugsson og
Guðmund Valgeirsson. Núverandi
félagsmenn KDA eru 21 og starfa
þeir í yngri flokkum á Akranesi og
einnig dæma flestir þeirra í deilda-
keppnum KsÍ. KDA er það félag á
Íslandi sem útvegar KsÍ flesta dóm-
ara allra liða á landinu. Í dag starfa
fimm dómarar í efstu deild karla
og þar af eru tveir alþjóðadómarar,
þeir Ívar Orri og egill Guðvarður.
KDA/ÍA hefur fengið fjölmörg
verðlaun fyrir dómgæslu í gegnum
tíðina og má þar nefna að í fjórgang
hefur félagið fengið dómaraverð-
laun KsÍ sem veitt eru árlega á árs-
þingi KsÍ, nú síðast fyrir árið 2018.
Verðlaunin eru veitt því félagi sem
skarar fram úr í grasrótarstarfi er
tengjast dómaramálum.
Það getur verið mikill ávinningur
af því að starfa sem dómari. Ásamt
því að fá greitt fyrir dómastörf þá
fellst í því góð hreyfing, besta stað-
setning vallarins, skírteini sem veit-
ir aðgang á flesta knattspyrnuleiki á
Íslandi ásamt ýmissa annarra fríð-
inda. Meðlimir KDA fá einnig frítt
í sund og þreksal á Akranesi auk
fleiri hlunninda. Ár hvert er haldið
dómaranámskeið og hvetur KDA
fólk til að slást í för dómara og taka
þátt í frábæru félagsstarfi. Það er
alltaf nóg pláss fyrir nýja dómara,
hvort sem það er hjá KDA/ÍA eða
öðrum félögum. Áhugasömum ein-
staklingum er bent á að hafa sam-
band við sitt félagslið eða KsÍ til
nánari upplýsinga.
Nú í vor fagnaði félagið 50 ára af-
mæli og stóð mikið til á árinu,
m.a. afmælisveisla og afmælisferð
til englands í æfinga- og endur-
menntunarferð. Þar var ætlunin að
heimsækja dómarafélög á englandi,
skoða aðstæður hjá þeim og dæma
leiki hjá yngri flokkum svo eitthvað
sé nefnt. Að auki var stefnt á að
skoða starfsemi knattspyrnufélaga
og auðvitað fara á leiki í ensku úr-
valsdeildinni. einnig var ætlunin
að hitta dómara sem dæma í efsta
flokki á englandi. Því miður varð
ekkert úr þessum viðburðum vegna
faraldursins en KDA menn eru ekki
þekktir fyrir að gefast upp og ætla í
slíka ferð um leið og færi gefst sem
verður vonandi næsta haust. eins er
stefnan sett á afmælisveislu á vor-
mánuðum þar sem núverandi og
fyrrverandi KDA meðlimum verð-
ur boðið í léttar veitingar.
Í tilefni afmælis KDA veitti KsÍ
eftirfarandi dómurum heiðursnæl-
ur KsÍ sem Guðni bergsson for-
maður KsÍ tilkynnti félagsmönn-
um á rafrænu lokahófi KDA þann
4. desember síðastliðinn:
Heiðursmerki KSÍ
úr silfri
Guðmundur Valgeirsson
Jónas Geirsson
steinar berg sævarsson
sævar Jónsson
Valgeir Valgeirsson
Ægir Magnússon.
Heiðursmerki KSÍ
úr gulli
Halldór breiðfjörð Jóhannsson
KDA vill nota tækifærið og þakka
eftirfarandi fyrirtækjum fyrir veitt-
an stuðning í tengslum við afmæli
félagsins:
@home – bílasprautun Vesturlands
– bílver - bílaverkstæði Hjalta -
blikksmiðja Guðmundar – Domus
Nova fasteignasala - Fasteignasalan
Hákot – Henson – KsÍ - Kjöthúsið
– Lindex – Nesafl – Olís - Rammar
og myndir – samkaup – saumastofa
Helgi Jenssonar – sjóvá-Almennar
– Topp útlit – Útgerð eymars ein-
arssonar
eins og áður hefur komið fram var
haldið rafrænt lokahóf KDA þann
4. desember. Þar var tilkynnt um
árlegt val á dómurum ársins hjá fé-
laginu:
Besti dómari KDA 2020
Ívar Orri Kristjánsson
Efnilegasti dómari KDA 2020
Arnþór Helgi Gíslason
Verðmætasti dómari KDA 2020
Gilmar Þór benediktsson
Besti dómari að mati þjálfara
ÍA 2020
Arnþór Helgi Gíslason
Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
og félagar í KDA
Arnþór Helgi með verðlaunagripina
fyrir að vera valinn Efnilegasti dómari
KDA 2020 og besti dómarinn að mati
þjálfara ÍA.
Elsta starfandi knattspyrnudómarafélag landsins 50 ára
Guðni Bergsson afhendir Halldóri Breiðfjörð frá KDA Dómaraverðlaun KSÍ fyrir
2018.
Félagar í KDA.
Ívar Orri Kristjánsson með verðlauna-
gripina fyrir að vera valinn Besti
dómari KDA 2020.