Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202016
Gaman saman
um áramótin
Fjölskyldan saman
18 ár a ábyrgð
Þann 24. nóvember síðastliðinn
birti breiðafjarðarnefnd á vefsíðu
sinni samantekt á framvindu og
niðurstöðum verkefnis sem geng-
ið hefur undið nafninu „Framtíð
breiðafjarðar.“ skýrslan hefur ver-
ið í vinnslu á tímabilinu 2019-2020
og er nú til umsagnar hjá sveitar-
stjórnum beggja vegna breiðafjarð-
ar. Þá er sömuleiðis kallað eftir at-
hugasemdum íbúa og rennur frest-
ur til að gera athugasemdir út 19.
desember næstkomandi.
Í niðurstöðum nefndarinnar seg-
ir að hún leggi til við ráðherra að
hefja vinnu, sem fyrst, við að skoða
og kynna ítarlega hvaða kosti og
galla þeir möguleikar, sem tald-
ir eru upp í skýrslunni, hafa fyrir
breiðafjarðarsvæðið. Þannig geti
sveitarstjórnir og íbúar myndað
sér upplýsta skoðun og tekið þátt í
mótun framtíðar breiðafjarðar. Þá
segir: „breiðafjarðarnefnd er ein-
huga um að í það minnsta þurfi að
endurskoða lög um vernd breiða-
fjarðar, gera þau sterkari og skýr-
ari og að það verði gert sem fyrst.
Um leið verði horft sérstaklega til
þess möguleika að stækka svæð-
ið svo það nái frá bjargtöngum að
Öndverðarnesi. samhliða endur-
skoðun á lögum um vernd breiða-
fjarðar leggur nefndin til við ráð-
herra að hann beiti sér fyrir því að
breiðafjörður verði tilnefndur á
lista Ramsarsvæða. Um er að ræða
eitt mikilvægasta fuglasvæði lands-
ins og skráningin myndi aðeins
hafa jákvæð áhrif á samfélögin við
fjörðinn.
breiðafjarðarnefnd telur að
skoða ætti möguleika á því að skil-
greina breiðafjörð, að hluta til eða
öllu leyti, sem þjóðgarð. Þar sem
eignarhald á svæðinu er flókið er
ólíklegt að það takist á næstu árum
ef þjóðgarðurinn ætti að ná yfir
allan breiðafjörð. Því væri rétt að
skoða möguleika á að skipta svæð-
inu í undirsvæði þar sem mismun-
andi reglur gilda. Þjóðgarður í sjó
væri mögulegt fyrsta skref þar sem
ríkið fer með eignarhald utan net-
laga. Það væri auk þess í takt við
skuldbindingar Íslands í alþjóð-
legum samningum, svo sem OsP-
ARsamningnum og samningnum
um líffræðilega fjölbreytni. einnig
mætti kanna hvort hluti svæðisins,
þar sem landeigendur væru áhuga-
samir, yrði gerður að þjóðgarði og
stefna ef til vill að stækkun hans
síðar. Í því samhengi væri fýsilegt
að horfa til norðanverðs fjarðarins
og mögulegrar tengingar við fyrir-
hugaðan þjóðgarð á sunnanverðum
Vestfjörðum, sem nær meðal annars
til Vatnsfjarðar en hann er friðland
og hluti af verndarsvæði breiða-
fjarðar. Undirbúningur þjóðgarðs
á breiðafirði gæti orðið tímafrekt
verkefni sem ekki má hægja á end-
urskoðun laga um verndarsvæði
breiðafjarðar. Nefndin telur þó að
stofnun þjóðgarðs megi taka tíma
og eigi í raun að taka tíma svo að
hægt verði að ná sem víðtækastri
sátt um framkvæmdina. Það er
skoðun nefndarinnar að þjóðgarð-
ur á breiðafirði væri líklega það
skref sem myndi gagnast samfélög-
um við fjörðinn betur en allar aðrar
leiðir.“
Þá segir í niðurstöðum nefndar-
innar að tilnefning breiðafjarðar á
Heimsminjaskrá UNesCO væri
stórt skref sem þarfnist ítarlegs og
vandaðs undirbúnings. „Nefndin
telur rétt að skoða möguleika á því
en að skynsamlegast væri að stefna
að tilnefningu á heimsminjaskrá eftir
að lög um svæðið hafa verið endur-
skoðuð, það tilnefnt á Ramsarskrá og
ef til vill gert að þjóðgarði, að hluta
eða öllu leyti. breiðafjarðarnefnd ít-
rekar mikilvægi þátttöku og samráðs
við sveitarstjórnir og íbúa í áfram-
haldandi vinnu og að þeir eigi mikla
aðkomu að öllum stærri ákvörðun-
um í ferlinu. stór hluti verndargildis
svæðisins eru hlunnindanytjar, hefð-
in fyrir því að nýta gæðin og hvern-
ig það er gert. Markmiðið með til-
lögum breiðafjarðarnefndar er að
með aukinni vernd þrífist blómlegt
atvinnulíf sem byggir á sjálfbærri
auðlindanotkun til framtíðar og að
byggðir við fjörðinn styrkist.“
Hægt er að kynna sér skýrslu
breiðafjarðarnefndar í heild sinni á
vefnum breidafjordur.is og gera at-
hugasemdir til 19. desember nk. At-
hugasemdum skal skila á netfangið
breidafjordur@nsv.is. mm
Fundur var haldinn í atvinnu- og
nýsköpunarnefnd stykkishólms
30. nóvember síðastliðinn. Þar
var meðal annars kynnt saman-
tekt og niðurstöður breiðafjarð-
arnefndar um framtíð fjarðarins,
eins og fram kemur í fréttinni
hér að ofan. Meirihluti atvinnu-
og nýsköpunarnefndar stykkis-
hólms bókaði andstöðu við til-
lögurnar og hugmyndir breiða-
fjarðarnefndar um að breiða-
fjörður verði tilnefndur á lista
Ramsarsvæða, að breiðafjörð-
ur verði skilgreindur, að hluta til
eða öllu leyti, sem þjóðgarður í
sjó og að hafinn verði undirbún-
ingur að tilnefningu breiðafjarð-
ar á Heimsminjaskrá UNesCO.
„Varhugavert er að færa íhlut-
unarvald til alþjóðlegra stofn-
ana,“ segir meðal annars í bókun
sem fjórir af fimm nefndarmönn-
um rita undir; þau Halldór Árna-
son, Kári Hilmarsson, Kári Geir
Jensson og Magda Kulinsku. sara
Hjörleifsdóttir greiddi atkvæði á
móti.
„Atvinnu- og nýsköpunarnef-
nd telur að heimamenn séu best
til þess fallnir að taka ákvarðanir í
tengslum við vernd og umgengni
á svæðinu sem og íslenskum stof-
nunum sem hafa það hlutverk að
veita stjórnvöldum og hagsmu-
naaðilum ráðgjöf varðandi sjálf-
bæra nýtingu á lifandi auðlindum
breiðafjarðar á grundvelli nýtin-
garstefnu stjórnvalda á hver-
jum tíma. Atvinnu- og nýsköpu-
narnefnd leggur því áherslu á að
Hafrannsóknarstofnun verði gert
kleift í samráði við hagsmunaaðila
í heimabyggð, að efla rannsóknir
á fjölbreyttu lífríki breiðafjarðar
og þeim möguleikum sem kunna
að vera til staðar til að auka sjálf-
bæra nýtingu sjávarfangs til atvin-
nu- og verðmætasköpunar,“ segir
í bókun meirihluta nefndarinnar.
mm
Leggja til endurskoðun á lögum um
Breiðafjörð og Ramsartilnefningu
Lýsa andstöðu við tillögurnar
EB Flutningar
Sækjum vörur í allar verslanir á höfuðborgarsvæðinu
og komum heim að dyrum sama kvöld á Akranesi.
Einnig er ferð kl. 10 úr Reykjavík.
Tökum einnig að okkur búslóðaflutninga.
Hafið samband í síma 788-8865
Gleðileg jól og ég þakka viðskiptin
á árinu sem er að líða