Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202026
Aðventan – tími vonarinnar
Leirárkirkja í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. arg
Kæru lesendur!
senn líður að lokum þessa árs,
2020. Það er gjarnan í mörg horn
að líta þegar horft er um öxl. sumt
fellur í gleymsku á meðan annað er
þess eðlis að erfitt er að líta framhjá
því. Það hefur sannarlega margt á
daga okkar drifið undanfarið ár
vegna heimsfaraldursins sem ekki
hefur farið framhjá nokkrum jarð-
arbúa. Við sem þjóð höfum hins
vegar sýnt það, að í sameiningu
búum við yfir miklum styrk. styrk
sem felst fyrst og fremst í því að
standa saman þegar á reynir. Að
sjálfsögðu finnum við mörg fyrir
þreytu og ótta en fyrst og fremst
er það ákveðnin í að standa sam-
an sem er gegnumgangandi. Og þá
finnur maður til stolts að fá að til-
heyra þjóð sem kann þetta og get-
ur þetta.
Nú er langt liðið á aðventuna
þetta árið og tími ljóss og frið-
ar því í nánd. Orðið aðventa þýð-
ir „koma“ og vísar til þess að hin
mikla hátíð er handan við hornið.
Á aðventunni undirbúum við okk-
ur undir jólin, en hjá okkur kristnu
fólki snýst aðventan um undirbún-
inginn fyrir komu Jesúbarnsins
sem fæddist á jólum. Við bjóðum
Jesúbarnið sérstaklega velkomið í
líf okkar á þessum tíma. Aðventan
er hins vegar ekki bara undirbún-
ingstími jólanna heldur er hún líka
fasta, svokölluð jólafasta. Oftast
tengjum við orðið föstu við hóf-
semi í mat. Jólafastan snýst hins
vegar ekki eingöngu um það held-
ur snýst hún almennt um það að
við prófum okkur sjálf, skoðum og
íhugum hvað það er sem gefur líf-
inu gildi í raun og veru og hvers
vegna við þurfum á þeim boðskap
sem jólin boða, að halda. Að fasta
getur þýtt það að temja sér hófsemi
og láta eitthvað á móti sér. einkum
og sér í lagi til að geta gefið öðrum.
Aðventa er líka tími vonarinnar.
Þegar mesta myrkur ársins skellur
á kveikjum við á ljósum, til vitn-
is og minningar um fæðingu litla
Jesúbarnsins og til að minna okkur
á vonina sem aldrei hverfur.
Í lok árs fáum við tækifæri til
íhugunar og skoðunar. Við minn-
umst góðu stundanna og sigranna,
með gleði og stolti. erfiðu stund-
irnar sem vöktu hjá okkur sorg
fljóta líka í gegnum hugann og gera
öðruvísi vart við sig en gleðistund-
irnar á leið sinni þar um. Það getur
reynst erfitt að kveðja það sem liðið
er og kemur ekki til baka, en það er
hollt fyrir okkur að líta yfir farinn
veg og gera upp liðna tíma. sum
okkar finna til sorgar þegar upp-
gjör á sér stað, hvort sem minning-
in vekur hjá okkur sorg eða gleði.
Það er alltaf erfitt að skilja við.
Þegar við rifjum upp liðna stund
virðumst við mannfólkið hins vegar
hafa tilhneigingu til þess að minn-
ast frekar mistakanna, feilspor-
anna eða skammarlegu augnablik-
anna – og dvelja lengur yfir þeim
minningum en sigrunum, hvernig
sem á því stendur. Öll gerum við
mistök einhvern tímann á lífsleið-
inni. Upplifum vanmátt, samvisku-
bit, jafnvel eftirsjá. Það hvernig við
bregðumst við því mótlæti, hvernig
við ákveðum að takast á við breysk-
leika okkar – skiptir hins vegar
öllu máli. Viljum við sökkva nið-
ur í djúpið eða ætlum við að rísa
upp aftur, horfa í spegilinn og sætt-
ast við þá manneskju sem þar birt-
ist okkur, fyrirgefa henni og halda
svo áfram með bættar og breyttar
áherslur? Horfum frekar fram á
veginn, setjum okkur metnaðar-
full markmið sem þó eru raun-
hæf og ögrum svolítið okkar eigin
getu. Reynum að ákvarða hvernig
við viljum lifa, hvers við óskum og
hvaða tækifæri við sjáum. Hvaða
ógnir við sjáum. Mótum svo okkar
eigin stefnu því skipulag hefur til-
hneigingu til að rætast.
Þiggjum hvern dag sem lán því
ekkert annað höfum við í hendi en
það augnablik sem er hér og nú
– og þá setningu skulum við taka
með okkur inní árið sem er handan
við hornið.
Nýtum hverja stund og tökum
henni fagnandi. Við vonumst svo
til að geta tekið á móti ykkur sem
flestum í kirkjum prestakallsins á
nýju ári.
Guð gefi ykkur vonarríka og
gleðiríka jólahátíð!
Sr. Jónína Ólafsdóttir
Garða- og Saurbæjarprestakall
óskar öllum gleðilegra jóla og Guðs friðar
„Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs“
Ekki verður hefðbundið helgihald um jólin vegna
samkomutakmarkanna en tvær netstundir birtast
Aðfangadagur Jóladagur
Jólakveðja úr Jólakort Garða- og
Akraneskirkju kl. 11 Saurbæjarprestakalls kl. 11
Stundirnar birtast á: akraneskirkja.is
Garða- og Saurbæjarprestakall
skessuhorn.is
Aðventu- og jóladagskrá
Garða- og Saurbæjarprestakalls
Hugvekja á jólum