Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 86
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202086
blaðamaður var búinn að mæla
sér mót við listakonuna Ingu
björnsdóttur í Grundarfirði.
Fundarstaðurinn var listagall-
erí sem hún hefur tekið á leigu.
Vegna ókunnugleika, og lítilla
merkinga, gekk blaðamaður um
og góndi inn um glugga á líkleg-
um stað. Þar fyrir innan var nett
kona, með eftirstöðvar af dread-
locks í gráu hári og í svörtum
fötum. Þetta hlaut að vera við-
mælandinn og svo reyndist vera.
Þegar inn um dyrnar er komið,
fer blaðamaður úr vetrarskóm
sínum. Listakonan bendir á að
gólfið sé ekki hreint og skítugir
sokkar blaðamanns verði á hans
ábyrgð. Ísinn hefur verið brot-
inn, nú er hægt að hefja spjall.
Grundfirðingur að nýju
Inni blasa við listaverk Ingu björns-
dóttur sem ólst upp í Grundarfirði
en flutti til stavanger í Noregi fyr-
ir mörgum árum. Það eru ekki síst
augun sem fanga athygli gests en
listamaðurinn gerir lítið úr því. en
nú er hún aftur komin heim og seg-
ist langa til að verða Grundfirðing-
ur að nýju. „Ég fór fyrst út til Nor-
egs árið 1982 en kom svo heim um
1990 til að eiga dætur mínar og
stofna fyrirtæki sem hét Völvan þar
til ég flutti aftur út 1992, þá skipti
ég um nafn og nefndi fyrirtækið
Ingas Kunst sem það hefur heit-
ið síðan, svo árin eru orðin nokk-
ur í Noregi. en ég vann og lifði af
myndlist, leirgerð og námskeiða-
haldi. Þá var ég reyndar gift, svo
það var léttara,“ segir listakonan
hlæjandi. „eftir skilnaðinn þurfti
ég því að læra markaðssetningu.
Það var eitthvað.“
Lifibrauðið
Listamenn þurfa að eiga fyrir salti
í grautinn eins og aðrir og Inga
skellti sér í að markaðssetja sjálfa
sig og listaverkin sín. Hún hélt
ýmis námskeið úti í Noregi; í teikn-
ingu, keramik, meðferð olíulita
og ýmsu fleiru og gekk býsna vel.
en nú er hún komin til Íslands en
kúnnahópurinn er enn í Noregi.
„Ég þarf því að byrja upp á nýtt, er
þó búin að vera með eina sýningu
hér sem gekk mjög vel og halda eitt
námskeið sem var fullbókað á. en
„Ég hef alltaf verið rokkari og verð svo bara svona
pastelrokkari með auknum aldri“
segir Inga Björnsdóttir listakona í Grundarfirði
Ég hef alltaf verið rokkari,“ segir Inga Björnsdóttir myndlistarmaður sem segir að rokkarinn þurfi að aðlaga sig auknum aldri, verða pastelrokkari með blóm í hárinu og blúndur. Ljósm. tfk.
Afrakstur liðinna daga skoðaður og íhugað ögn um leið. Ljósm. tfk.