Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 106
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020106
Pennagrein
Pennagrein
Pennagrein
Þegar nýtt ár gengur í garð djarf-
ar fyrir lokum heimfaraldursins.
Hann hefur leikið flest ef ekki öll
lönd ýmist illa eða fremur grátt.
Mannfall vegna Covid-sýking-
ar, mikið álag á heilbrigðiskerf-
ið og alvarleg vandkvæði í efna-
hagslífinu, lita næstum allt árið
2020. Hér á landi hefur faraldur-
inn tekið mikið á samfélag og ein-
staklinga. Má gera ráð fyrir, að
þrátt fyrir að ferðaþjónustan, ýms-
ir aðrir atvinnuvegir og innri stoð-
ir samfélagsins sýni veruleg bata-
merki, að allnokkur ár þurfi til úr-
bóta í samfélaginu og til endur-
greiðslu fjármuna sem vörðu fólk
eins og unnt var, þegar á heildina
er litið. Ég tel að bærilega hafi til
tekist og stjórnvöld axlað ábyrgð-
ina sína. Lengst af með réttri vá-
stjórnun frá einni viku til annarrar,
en þegar leið á með því að leggja
línur um framhaldið eftir að veiran
hefur beðið ósigur fyrir hugviti og
vísindum. Hver bólusetning er sig-
ur í sjálfu sér en um leið áminning
um mátt náttúrunnar og nauðsyn
þess að lifa og starfa sem sjálfbær
hluti hennar án þess að telja sig yfir
hana hafin - eða í rétti til að gera
sér hana undirgefna. eitt sinn var
það talið hlutverk mannsins.
stjórnmál lituðu Covid-tímana
eins og öll önnur tímabil stórra
atburða í sögu okkar. samstarf
þriggja ólíkra flokka hefur leitt til
margs konar umbóta og kostað, ef
þannig má komast að orði, marg-
ar og flóknar málamiðlanir. Það er
kjarni samsteypustjórnlistar sem
er okkur búin kjörtímabil fram af
kjörtímabili. Innviðir hafa styrkst,
velferðarkerfið eflst og jafnrétti
aukist. engu að síður þarf enn að
bæta kjör nokkurra hópa sem þurfa
á sem mestri samfélagsaðstoð að
halda. Við þurfum líka að raungera
æ betur góða stefnumörkun í mála-
flokkum eins og orkumálum, orku-
skiptum, nýsköpun, ferðaþjónustu,
frumatvinnuvegum, menntamálum
og heilbrigðismálum - endurskoða
og fylgja aðgerðaáætlunum í lofts-
lagsmálum og umhverfisvernd. Það
eru frumskilyrði þess að við náum
að búa við sjálfbært hringrásar-
hagkerfi með þátttöku almennings
í lipru lýðræði og með upplýstum
ákvörðunum. sameining sveitarfé-
laga, bætt úrgangsmeðferð, styrkari
fjárstuðningur ríkisins og auðlinda-
eða umhverfisstefna sveitarfélaga
eru allt teikn um félagslegar og
grænar framfarir sem ber að fagna.
Hlutverk sveitarfélaga er ítrekað
með stofnun og rekstri hálendis-
þjóðgarðs. Þar eru þau með meiri-
hluta í þeim umdæmisráðum sem
semja verndar- og nýtingaráætlanir
fyrir sína landshluta inni á öræfum.
Þau geta tryggt hefðbundnar nytjar
og ýmsa atvinnustarfsemi, að frjáls
en þó skipulögð för verði áfram al-
menningi og ferðamönnum heim-
il - og allt þetta fari fram með um-
hverfisvernd og sjálfbærni að leiðar-
ljósi. Aðrar náttúrunytjar geta farið
fram samkvæmt landsáætlunum,
landsskipulagi og öðrum lögum og
reglum sem samkomulag næst um
í samfélaginu og á Alþingi. Friðuð
svæði og þjóðgarðar eru ríkar auð-
lindir sem unnt er að nytja í bland
við aðrar auðlindir. Þess vegna er
sérhvert skref í þessum efnum sam-
félaginu mikils virði.
Ég sendi öllum lesendum góðar
kveðjur í tilefni desemberhátíðanna
og óska þeim og þeirra fólki far-
sældar á nýju ári.
Ari Trausti Guðmundsson
Höfundur er þingmaður VG.
Í grein sem bar heitið sjúddirarí –
rei, sem oddviti Framsóknarflokks-
ins í borgarbyggð birti í skessu-
horni, tekst henni að tala sjálfa sig í
heilhring. Hún gagnrýnir harðlega
að farið sé í framkvæmdir en legg-
ur í sömu grein til að stórum fram-
kvæmdum sé forgangsraðað fyrr.
Skuldir sveitasjóðs
hækka um 30 milljónir
á tímabilinu 2022-2024
eða 0,01%
Kostnaður við fræðslumál er gagn-
rýndur að hann sé of hár sem hlut-
fall af skatttekjum án þess þó að
geta þess að tekjur hafa lækkað eða
staðið í stað á sama tíma og laun
hafa hækkað. Talað er um að með
því að taka lán fyrir framkvæmd-
um sé von á snjóhengju skulda hjá
sveitarfélaginu eftir tvö ár þegar
ljóst er að á árunum 22-24 er gert
ráð fyrir skuldabyrði sveitarfélags-
ins aukist um einungis 30 milljón-
ir eða 0,01% þar sem á sama tíma
verða greiddar niður skuldir um
871 milljónir. Áfram er gert ráð
fyrir stórum afborgunum á lánum á
árunum á eftir sem lækkar greiðslu-
byrði. skuldahlutfall er langt undir
viðmiðum eftirlistnefndar og vaxta-
kjör einstaklega hagstæð. Auk þess
sem virðisaukaskattur af vinnu fæst
endurgreiddur á árinu 2021. Það
má því í raun segja að það væri
ákveðið ábyrgðarleysi að halda ekki
áfram að fjárfesta þó svo það krefj-
ist lántöku.
Álagning
fasteignaskatts óbreytt
sú fjárhagsáætlun sem nú var sam-
þykkt fyrir árið 2021 krefst þess
ekki að álagning fasteignaskatta
verði aukin, áfram verður fjárfest í
mikilvægum innviðum, reksturinn
verður rýndur og aðlagaður breytt-
um veruleika en Covid 19 hefur
haft mikil áhrif á reksturinn þó svo
að Framsókn í borgarbyggð haldi
því fram að borgarbyggð sé eina
sveitarfélagið sem ekki hefur orðið
fyrir áhrifum af heimsfaraldrinum.
Börn og starfsfólk í
heilnæmt húsnæði eða
hreppapólitík
Í umræddri grein er farið fögrum
orðum um nauðsyn þess að börn og
ungmenni í sveitarfélaginu fái að
eflast og þroskast í öflugu félags-
legu umhverfi með bestu aðstöðu
til tómstunda og heilsueflingar. Að
okkur beri skylda til að tryggja að
allt skólahúsnæði verði eins gott og
kostur er en á sama tíma fjargviðrast
yfir því að útbúa eigi sparkvöll við
Kleppjárnsreyki þar sem nú hefur
risið leikskóli og framundan nauð-
synlegar endurbætur á skólahús-
næði. Þarna erum við þó sammála.
en svo er talað um hreppapólitík
en með því að ýja að því að full-
trúar í sveitarstjórn séu eingöngu
að gæta hagsmuna nágranna sinna
er einmitt verið að gera tilraun til
draga umræðuna á slíkt plan. All-
ar þær greiningar
sem gerðar hafa
verið á skólahús-
næði styðja það
að nauðsynlegt sé að fara í miklar
endurbætur á húsnæðinu á Klepp-
járnsreykjum vegna rakavandamála
og mikils skorts á viðhaldi og alveg
ljóst að þar verður framtíðarsvæði
skóla.
sveitarfélagið borgarbyggð hefur
á undanförnum árum verið vel rek-
ið og verður það áfram, þrátt fyr-
ir tímabundnar áskoranir. Mögu-
leikar til vaxtar eru miklir og nauð-
synlegt að þær innviðaskuldir sem
höfðu safnast upp verði greiddar.
Meirihluti sveitarstjórnar í borgar-
byggð lagði á það áherslu í sínum
samstarfssamningi að bæta aðstöðu
nemenda og starfsfólks skóla, við
það verður staðið. en það verður
líka hafin vinna við heildarhönn-
un á íþróttasvæðinu í borgarnesi
þar sem gert verður ráð fyrir nýjum
íþróttamannvirkjum og eru áætl-
aðar í það 96 milljónir króna strax
á árinu 2022, fyrr en nokkur hefði
þorað að vona. Vandséð er að hægt
hefði verið að byrja fyrr á því verk-
efni þar sem undirbúa þarf bygg-
ingarsvæðið og leysa ýmis hönnun-
armál.
Það er full ástæða til að vera
bjartsýnn á að áfram verði hægt að
efla borgarbyggð sem sveitarfélag
og bæta búsetuskilyrði í öllu sveit-
arfélaginu.
Magnús Smári Snorrason
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í Borgarbyggð.
Umhverfisráðherra mælti í vikunni
sem leið fyrir frumvarpi um stofn-
un hálendisþjóðgarðs.
strax vakti athygli hversu mikil
andstaða er við málið hjá samstarfs-
flokkum VG í ríkisstjórn. Almenn
og vel ígrunduð andstaða er við
málið hjá hagsmunaaðilum landið
um kring, svo sem bændum, sveitar-
félögum og fyrirtækjum sem starfa
í og við fyrirhugaðan þjóðgarð svo
ekki sé talað um einstaklinga og
félagasamtök sem hafa áhyggjur af
frjálsri för fólks um svæðið, en and-
staða samstarfsflokka VG í ríkis-
stjórn er meiri en reiknað var með.
Formaður Framsóknarflokksins
birti runu fyrirvara sem minnti helst
á það þegar flokkurinn var forðum
til í aðild að evrópusambandinu, að
því gefnu að evrópusambandið að-
lagaði sig Íslandi en ekki öfugt, úr
því varð auðvitað ekki neitt. Þessir
fyrirvarar voru settir fram nokkrum
dögum eftir að þingmenn og ráð-
herrar sama Framsóknarflokks af-
greiddu málið í gegnum ríkisstjórn
og eigin þingflokk.
Á sama tíma hafa þingmenn
sjálfstæðisflokksins allt á hornum
sér hvað hugmyndina varðar, ný-
búnir að samþykkja í eigin þing-
flokki að málið gangi til þinglegrar
meðferðar. Vafalaust í trausti þess
að Miðflokkurinn spyrni kröftug-
lega við fótum.
stuttur pistill sem þessi býður
ekki upp á djúpa greiningu efn-
isatriða í máli sem þessu, en það
verður að draga fram kjarnarök-
stuðninginn í málinu öllu, það er
að þarna verði til sTÆRsTI þjóð-
garður í evrópu og að með stofn-
un hans náist fram sjálfstæð ímynd-
ar- og markaðsleg markmið. Þessi
nálgun er ættuð frá Texas, þar sem
allt er „stærst og best“. Hamborg-
ararnir eru svo stórir að þú getur
ekki borðað þá, kók glösin eru svo
stór að þú getur ekki haldið á þeim,
allt er „stærra en lífið“. Ég er ekki
viss um að það séu skilaboðin sem
haganlegt sé að setja fram gagn-
vart þeirri stórkostlegu náttúru og
á köflum viðkvæmu, sem við eigum
á hálendinu.
Málið er ótímabært og þeirrar
gerðar að alls ekki er skynsamlegt
að ana að ákvörðun. Í öllu falli er
ótækt, líkt og umhverfisráðherra
hefur sjálfur sagt, að afgreiða málið
án þess að rammaáætlun um orku-
nýtingu hafi komið til meðferðar
Alþingis og verið afgreidd. sjálf-
ur mun ég áfram tilheyra hinum
„örlitla grenjandi minnihluta“ eins
og steingrímur J. sigfússon kýs að
kalla þá sem hafa efasemdir um að
leggja 30% landsins undir svokall-
aðan hálendisþjóðgarð.
Bergþór Ólason
Höf. er þingmaður fyrir Miðflokk-
inn í Norðvesturkjördæmi.
Prestarnir þrír hafa slegið alger-
lega í gegn með myndbandi sem
gert var fyrir verkefnið Aðventu-
dagatal Akraness – „skaginn syng-
ur inn jólin.“ Myndbandið birtist
á Facebook síðu verkefnisins auk
þess sem það birtist á Youtube. Í
myndbandinu flytja sérarnir Jón-
ína Ólafsdóttir, Þóra björg sig-
urðardóttir og Þráinn Haraldsson,
sóknarprestar í Garða- og saurbæj-
arprestakalli lagið „beðið eftir Jes-
úsi“ eftir baggalút. Myndbandið
var fyrst birt 11. desember og hef-
ur þegar þetta er ritað á mánudegi,
verið deilt 240 sinnum, rúmlega
27.000 hafa horft á það og „like-in“
eru orðin rúmlega 7.300. Athuga-
semdir hafa verið mjög jákvæð-
ar við flutning þeirra á laginu og
meðal annars hafa verið dæmi um
yfirlýsingar frá fólki sem sagst hef-
ur vilja flytja á Akranes eftir að hafa
séð og heyrt lagið.
Það eru Hlédís sveinsdóttir og
Ólafur Páll Gunnarsson sem standa
að verkefninu „skaginn syngur inn
jólin.“ Um er að ræða tuttugu og
fjögur söngatriði sem flutt eru af
Akurnesingum nær og fjær. einn
gluggi er opnaður alla morgna frá
1. til 24. desember og eins og í öðr-
um jóladagatölum hvílir leynd yfir
því hvað birtist í gluggunum þar til
þeir eru opnaðir.
frg
Prestarnir þrír slá í gegn
Hálendisþjóð-
garður vinstri
grænna?
Orð í tilefni jóla
og nýs árs
Talað í hringi