Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 54
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202054
Kveðjur úr héraði
Jólakveðja úr Skorradal
Hefðir og venjur
við jólahald
Ástæður þess að fólk heldur jól á
Íslandi eru margvíslegar. sum-
ir gera það til að fagna fæðingu
Frelsarans, aðrir til að fagna því að
daginn fer að lengja á ný og enn
aðrir vegna þess að það er hefð fyr-
ir því í þeirra fjölskyldu.
Hefðir
Hefðir eru oftast af hinu góða en
kannski eru þær líka að festa okkur
í viðjar vanans. Hefðir, eða kannski
bara venjur á mínu æskuheimili,
voru mjög formfastar. Mig langar
að rifja upp aðfangadag þegar ég
er sjö ára.
Pabbi sótti okkar fyrsta lita-
sjónvarp á aðfangadagsmorgun
árið 1980 og ég sat hugfangin og
horfði á teiknimyndir í lit á með-
an eldri systkinin sýsluðu við sitt
og mamma og pabbi hófu jóla-
undirbúninginn. eftir hádegi fór
ég svo með pabba í kirkjugarðana
til að kveikja á kertum og fara með
skreyttar greinar á leiði ástvina.
svo sóttum við móðurömmu mína
og hún hafði ofan af fyrir mér með
spilum.
Amma fylgdist vel með tímanum
og spilin voru lögð til hliðar hálf
sex, því klukkan sex varð stundin
heilög og það mátti ekki snerta á
spilum fyrr en annan í jólum, svona
var hennar hefð, vani eða uppeldi,
en hún var guðhrædd kona fædd
árið 1900.
Frómans og
„brúðarterta“
Matseðillinn var alltaf sá sami; as-
passúpa með rúnstykki sem var
sérstaklega pantað með fyrirvara
í björnsbakaríi, hamborgarhrygg-
ur og eplasalat með rauðbeðum
og rjóma ásamt öðru hefðbundnu
meðlæti. Í eftirrétt var ananas-
frómans og svo undir miðnætti var
„brúðkaupsterta“. ekki kann ég
skil á því hvers vegna þessi tiltekna
terta fékk þessa nafngift, en tert-
an hafði sinn fasta sess og það eina
sem ég man varðandi þessa tertu er
hve óskaplega mikið maus það var
að setja hana saman, stress að þeyta
eggjarauðurnar, brúna möndlurnar
og koma þessu á kremið sem þakti
tertuna. Jú, og líka hve sérlega
þurr og óspennandi þessi terta var.
einnig fannst mér þessi ananasfró-
mas ofmetinn.
Kyrrðin
Það eftirminnilegasta við jól æsku
minnar var þegar kirkjuklukkurn-
ar í Neskirkju, Landakotskirkju
og Dómkirkjunni ómuðu inn um
gluggann klukkan sex á aðfanga-
dag og pabbi sótti frímúrarakertið
sitt, kveikti á því og gekk svo með
það um stofuna og kveikti á öllum
öðrum kertunum sem áttu að loga
þessa heilögu stund. Á þessu augna-
bliki var sem kyrrð færðist yfir allt,
sama kyrrð og færist yfir þegar
stirnir á nýfallna mjöll í tungsljósi
eftir dimman kafaldsbyl. Að borð-
haldi loknu las pabbi svo fyrir okk-
ur jólakveðjur af jólakortunum og
áður en nokkur fékk að opna jóla-
gjöf, þá las hann Jólaguðspjallið.
enginn dæsti eða lét óþolinmæði í
ljós, þetta var hefð.
Jólin á Grund
Jólahefðir hafa einnig skapast hjá
mér og mínum hér í skorradalnum.
Matseðill okkar hjóna var í fyrstu sá
sami og á mínu æskuheimili, nema
ég gerði eplasalat eins og tengda-
mamma með smá tvisti, bara epli
og smá sýrðan rjóma út í svo salatið
héldist ferskt daginn eftir. Núna er
aspassúpan fastur liður í okkar jóla-
haldi í hádeginu á jóladag eða ann-
an í jólum. Fer eftir hversu viljug
ég er. Aðlögunin frá því að jólahá-
tíðin hæfist stundvíslega klukkan
sex á aðfangadag yfir í að hún hæf-
ist þegar komið væri úr fjósi voru
mikil viðbrigði fyrir mig. Matur-
inn fór á borðið þegar allir voru til-
búnir og maturinn tilbúinn en ekki
klukkan sex með tilheyrandi stressi
að allir væru sestir og orðnir þöglir,
sötrandi súpu undir predikun dóm-
kirkjuprests. Þetta var bara svolít-
ið notalegt, mér fannst samt ákveð-
inn missir að sitja ekki yfir matnum
og hlusta á jólamessuna. Fyrst eft-
ir að kýrnar fóru héðan frá Grund
reyndi ég að koma á þeirri hefð af
mínu æskuheimili að jólahaldið
hæfist klukkan sex og þá ættu all-
ir að vera prúðbúnir, brúnuðu kart-
öflurnar gullgljáandi og frímúr-
arakertið á sínum stað. (Ég gift-
ist nefnilega frímúrara, en ég held
að það sé hvorki að skapast hefð né
vani fyrir því í þessari fjölskyldu).
Ég hef haft tíu ár til að koma þess-
ari hefð á laggirnar og það hefur
ekki enn tekist. Ég saknaði þess af
mínu bernskuheimili að hefja ekki
jólahaldið við matarborðið á slag-
inu sex og hlusta á jólamessuna.
Pétur þurfti að aðlagast því að vera
ekki í fjósi og tutla beljur þegar jól-
in hringdi inn í útvarpinu sem óm-
aði svo friðsællega í takt við mjalta-
tækin. Hefðir og venjur vilja festa
okkur í skoðunum.
Eftirminnilegur
aðfangadagur
einhver jólin gleymdi ég að sjóða
hamborgarhrygginn og fattaði það
klukkan fimm. Þessi tiltekni að-
fangadagur var sá eftirminnileg-
asti fyrir þær sakir að það var allt
svo notalegt. Við borðuðum þeg-
ar maturinn var til og þegar við
byrjuðum að skoða gjafirnar und-
ir trénu voru fjölskyldur okkar í
Reykjavík búnar að opna sínar gjaf-
ir og hringja og þakka fyrir sig. síð-
an þá höfum við bara lagt áherslu
á að vera komin í okkar bestu föt
áður en messan byrjar og kveikja á
messunni til að missa ekki af einu
einasta orði, meðan hrært er í sósu
eða skorin niður epli. Við setjumst
svo að borðum í rólegheitum, oftast
þegar messu er lokið og ég hef fellt
nokkur tár í sósuna vegna söknuð-
ar og gleði þess liðna og núverandi
stundar. Það er í raun orðin hefð
fyrir því að ég tárist svolítið yfir há-
tíðirnar, já eða vani. Það er eitthvað
sem gerist þegar við bregðum út af
hversdagsleikanum, allir hjálpast að
við að leggja lokahönd á jólamáltíð-
ina, eru í sínu fínasta pússi og kyssa
og knúsa hvort annað með ósk um
gleðileg jól.
Þetta „dotla“
Árið sem senn líður undir lok hef-
ur svo sannarlega hrært upp í öllum
hefðum og venjum sem við jarðar-
börn höfum skapað okkur, hvort
heldur í kringum afmæli, páska, jól
eða ákveðna helgi að sumri.
snemma árs var ég skikkuð í veik-
indaleyfi og ég fer af fullum krafti í
það verkefni að verða betri, ná bata
og hvílast. Viku eftir að ég byrja í
veikindaleyfi er sonurinn kominn
heim frá Akureyri, heimavist VMA
var lokað og engin kennsla fór fram
innan veggja skólans. Til að spila
öruggum trompum var sú yngsta
tekin úr hefðbundnu námi heim í
heimaskóla og að lokum var frum-
burðurinn líka kominn heim og
búin að losa sig undan starfi á einu
stærra pósthúsinu í Reykjavík. Að-
stæður okkar voru slíkar að okk-
ur þótti skynsamlegast að við vær-
um bara heima. Ég sem átti bara að
hvíla mig var allt í einu komin í fullt
starf sem húsmóðir. en út af þessu
„dotla“ í heiminum þá hægði á öllu.
Ég fékk tækifæri til að verja öll-
um stundum með börnunum mín-
um. sambúð okkar varði í sex mán-
uði. Við vorum aftur fimm manna
fjölskylda í sex mánuði samfellt, en
það hafði ekki gerst síðan frum-
burðurinn fór haustið 2016 í skóla
í Reykjavík.
Ég gæfi mikið fyrir að það yrði
hefð hjá minni fjölskyldu að börnin
flytji heim í mars og verði hjá okk-
ur fram yfir sauðburð í maí, svona
í það minnsta. Þakklæti fyrir aukna
samveru okkar á árinu fæ ég seint
fyllilega lofað.
Óraunhæfar væntingar
Núna í nóvember var skipt um
glugga af illri nauðsyn. Í haust var
ég búin að sjá fyrir mér að ég væri
komin með hvítar gluggakistur, ge-
reft og fallegar seríur og skrautmuni
í gluggakisturnar í byrjun aðventu.
Væntingarnar voru mjög óraunhæf-
ar en þá datt mér í hug að ég gæti
að minnsta kosti málað stofuna, ég
ætlaði alltaf að gera það þegar búið
væri að skipta um glugga. Mála stof-
una, svefnherbergið, eldhúsið, baka
sörur, spesíur, súkkulaðibitakök-
ur, steikja laufabrauð, taka til, þrífa
gólf, kaupa gjafir og velja þá full-
komnu fyrir hvern og einn. Þetta
voru áform mín í byrjun aðventu
þegar ég áttaði mig á því að ég var
á villigötum. Allt átti að vera tilbúið
áður en prófum lyki hjá þessum
tveimur elstu svo þau kæmu heim
í hið fullkomna umhverfi sem ég
var búin að búa til í höfðinu. Hug-
myndin um fullkomna umgjörð í
kringum samveru okkar fjölskyld-
unnar blindaði mig fyrir raunveru-
leikanum. ef ég ætlaði að vera með
börnunum mínum og eiginmanni
á þann hátt sem við njótum okkar
best, þá var ég ekki að fara að vinna
mig niður listann sem var svo ein-
faldur í huga mér.
Góðar minningar
Jólahefðir og aðrar hefðir eða venj-
ur eiga að mínu mati að skapast í
kringum það sem veldur okkur vel-
líðan en ekki í kringum eitthvað
sem hefur alltaf verið. stærstu sigr-
arnir á þessu ári voru að finna mörk-
in og setja mér mörk. Þessa jólahá-
tíð ætla ég að njóta samveru með
mínu fólki, hundinum og sjálfri
mér. Verja tíma utandyra og innan-
dyra við það sem er skemmtilegt og
vekur ánægju. ef eitthvað af þessu
verður að nýrri venju eða hefð þá
er það frábært, því þá tengjum við
fjölskyldan það við góða minningu.
Megi jólahátíðin vera ykkur
friðsæl og ánægjuleg.
Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir,
Grund