Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 107
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 107
Pennagrein
Árið 2020 hefur verið mjög sérstakt
fyrir okkur öll og sennilega eru
margir fegnir því að það renni nú
bráðum sitt skeið. Ég er sannfærð-
ur um að 2021 verði okkur betra og
það eru mjög jákvæð teikn á lofti
að svo verði. Þegar ég horfi yfir
árið 2020 og þau verkefni sem við í
félagsmálaráðuneytinu höfum ver-
ið að vinna, horfi ég til baka stolt-
ur en árið litaðist að mörgu leyti
af viðbrögðum við heimsfaraldri
Covid-19. Ég er hins vegar mjög
ánægður og stoltur af því að hafa
náð að koma þremur stórum bar-
áttumálum mínum á dagskrá þrátt
fyrir aðstæður í heiminum en þau
eiga það öll sameiginlegt að styrkja
búsetu á landsbyggðinni.
Aukinn kraftur í húsnæð-
ismál á landsbyggðinni
Í byrjun september var frumvarp
mitt um hlutdeildarlán samþykkt
en þar erum við að stíga myndar-
legt skref til þess að aðstoða ungt
fólk og tekjulága inn á fasteigna-
markaðinn. Hlutdeildarlánin munu
hafa mikil og jákvæð áhrif á fast-
eignamarkað á landsbyggðinni
sem hefur víða verið nálægt frost-
marki undanfarna áratugi, en eitt
að markmiðunum með þeim er að
styrkja það kallað hefur verið köld
markaðssvæði. Þá er gaman að sjá
kraftinn í framkvæmdum víða um
land sem fjármagnaðar eru með
stofnframlögum, sérstöku byggð-
arframlagi og lánum frá HMs, að-
gerðir sem samþykktar voru í fyrra.
Mér telst til að alls séu 89 íbúðir í
byggingu eða undirbúningi víða um
land þar sem byggingaraðilar nýta
sér þessi úrræði, má þar nefna 12
íbúðir á Húsavík, 10 íbúðir í bol-
ungarvík, átta íbúðir á Vopnafirði
og fjórar á borgarfirði eystri.
Sérstakur styrkur til
barnshafandi ein-
staklinga sem búa fjarri
þjónustu
Annað stórt mál sem ég er stoltur
af eru ný lög um fæðingarorlof en
samkvæmt nýju lögunum er fæð-
ingarorlofið lengt
í 12 mánuði, en
lögin taka gildi
1. janúar 2021.
sjálfstæður réttur hvors foreldris
um sig verður sex mánuðir en for-
eldrum verður heimilt að framselja
einn mánuð sín á milli, og því getur
annað foreldrið tekið fæðingaror-
lof í sjö mánuði en hitt í fimm. Ég
er mjög ánægður með aukin rétt-
indi fyrir fólk á landsbyggðinni sem
býr oftar en ekki fjarri þjónustunni
og þarf oft að dvelja fjarri heimili
sínu, fyrir áætlaðan fæðingardag,
í tengslum við nauðsynlega þjón-
ustu vegna fæðingar barnsins. Með
nýju lögunum komum við til móts
við þessa hópa og barnshafandi for-
eldri verður veittur sérstakur styrk-
ur vegna skerts aðgengis að fæð-
ingarþjónustu í þeim tilvikum þeg-
ar það þarf að mati sérfræðilæknis
að dvelja fjarri heimili sínu.
Breyting í þágu barna
síðast en ekki síst er ég gríðar-
lega stoltur af þremur frumvörp-
um sem ég hef lagt fram á Alþingi
og miða að því að breyta kerfinu
okkar í þágu barna. Allt frá því ég
tók við ráðherraembætti hefur for-
gangsverkefni mitt verið að bæta
enn frekar hvernig við þjónustum
börn og fjölskyldur þeirra. Í víð-
tæku samráði og samstarfi fjöl-
margra aðila, leikinna, lærðra, inn-
an þings og utan, hefur verið unn-
ið að því í hartnær þrjú ár að smíða
undirstöður undir kerfi sem trygg-
ir að börn og fjölskyldur þeirra falli
ekki á milli kerfa. Verkefnið er risa-
vaxið og felur sennilega í sér ein-
hverjar mestu breytingar sem gerð-
ar hafa verið á umhverfi barna á Ís-
landi í áratugi.
Að lokum óska ég ykkur öllum
gleðilegra jóla og farsældar á kom-
andi ári og vona að þið njótið hátíð-
anna með ykkar nánustu.
Ásmundur Einar Daðason
Höf. er félags- og barnamálaráð-
herra og þingmaður Framsóknar-
flokks í NV kjördæmi.
Þau lýsa fegurst,
er lækkar sól,
í blámaheiði
mín bernsku jól.
Ljóð stefáns frá Hvítadal sem ber
einfaldlega heitið Jól hefur allt-
af verið mér hugleikið og þá einnig
einstaklega fallegt lagið sem Jórunn
Viðar samdi við það. Það er í því ein-
hver tærleiki og fegurð barnæskunn-
ar og barnatrúarinnar.
Aðventan er venjulega líflegur
tími hjá okkur flestum. Vinir og fjöl-
skyldur hittast og gera sér glaðan dag
og á flestum vinnustöðum er hefð
fyrir einhvers konar jólagleði. Árið í
ár verður frábrugðið því sem við eig-
um að venjast vegna baráttunnar við
veiruna. Þær skorður sem veiran set-
ur okkur varðandi félagslíf eru vissu-
lega íþyngjandi en eru nauðsynlegar
til að vernda líf og heilsu fólks.
Viðbúin bjartari dögum
Það er hins vegar ekki aðeins
félagslíf okkar sem breytist því fjöl-
margir, fólk og fyrirtæki, hafa orð-
ið fyrir alvarlegu höggi vegna veir-
unnar. Ríkisstjórnin hefur brugðist
við því með fjölmörgum aðgerðum
til að skapa viðspyrnu fyrir Ísland.
Ríkissjóður stóð vel vegna ábyrgr-
ar stjórnunar síðustu ár og getur
því betur tekið á sig auknar byrð-
ar tímabundið með skuldsetningu.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem
síðast voru kynntar eiga að stuðla
að öflugri viðspyrnu þegar heim-
urinn opnast að nýju. Hlutabóta-
leiðin verður framlengd til sum-
ars, atvinnuleysisbætur hækkað-
ar, boðið upp á fleiri félagsleg úr-
ræði og boðið upp á sérstaka við-
spyrnustyrki sem hafa það að mark-
miði að þekkingin hverfi ekki úr
fyrirtækjunum með uppsögn lykil-
starfsfólks, að fyrirtækin verði ekki
lömuð þegar við loks lítum bjartari
daga. sérstökum ívilnunum verð-
ur einnig beitt til að auka kraft og
fjárfestingu í einkageiranum sem
er nauðsynlegt til að skapa störf
og auka verðmætasköpun í samfé-
laginu.
Þessar aðgerðir ríma við það sem
ég sagði í umræðum um stefnuræðu
forsætisráðherra: Verkefni okkar í
stjórnmálunum næstu mánuði væri
skýrt: atvinna, atvinna, atvinna. Við
þurfum að vernda störf og skapa
störf. Þar erum við í Framsókn á
heimavelli því saga okkar er sam-
ofin atvinnuuppbyggingu landsins.
Það er í kjarna flokksins að þekkja
mikilvægi þess að hafa vinnu, að
skilja sjálfstæðið sem felst í því að
hafa trygga atvinnu, að vita hvað
það er átakanlegt að vera án vinnu
og án tekjuöryggis.
Fleiri sterkar greinar
Þótt ég sé kannski ekki mjög aldr-
aður maður, hef ég lifað þá tíð að
horfa uppá íslenskt efnahagslíf rísa
og hníga til skiptis. Það mun halda
áfram. en ég er búinn að átta mig
á því að það er beinlínis óskynsam-
legt að treysta of mikið á eitthvað
eitt. Við þurfum að fjölbreytt at-
vinnulíf. Við þurfum að styðja við
nýjar greinar en hlúa áfram að rót-
grónari atvinnuvegum. eitt á ekki
að útiloka annað. Við verðum að
byggja á samvinnu, málamiðlunum
og árangri. Við finnum leiðir.
Mér þykir það augljóst að styðja
verður dyggilega við íslenska mat-
vælaframleiðslu, hvort heldur hún
felst í því að yrkja jörðina, rækta
búpening eða veiða fisk. Það er
mikilvægt að standa vörð um mat-
vælaöryggi og þá framleiðslu sem er
hér á landi. Það er ekki síður mikil-
vægt að við breikkum þann grund-
völl sem verðmætasköpun á Íslandi
stendur á. Ég hef einnig nefnt mik-
ilvægi þess að styðja við vöxt skap-
andi greina og þá sérstaklega nefnt
til sögunnar kvikmyndagerð og
tölvuleikjagerð. Það er eftirspurn
eftir íslenskri sköpun og í skapandi
greinum búa mikil tækifæri.
Eftir vetur kemur vor
Ég óska þér, lesandi góður, gleði-
legra jóla og vona að þú finnir
leið til að njóta aðventu og hátíð-
ar við þessar einkennilegu aðstæð-
ur. Fréttirnar sem
okkur berast þessa
dagana af bólu-
efnum gefur okk-
ur von um að með
vorinu sjáum við
aftur glitta í eðli-
legt líf. Vetur-
inn verður erfið-
ur fyrir marga en með krafti sam-
félagsins, með krafti samvinnunnar
þá mun hann verða auðveldari. Og
eftir vetur kemur vor og þá verðum
við vonandi aftur farin að faðma
fólkið okkar og getum horft grímu-
laus fram á veginn.
Ég sé þær sólir,
mín sál er klökk
af helgri hrifning
og hjartans þökk.
Lýstu þeim héðan
er lokast brá,
heilaga Guðsmóðir,
himnum frá.
Sigurður Ingi Jóhannsson
Höf. er formaður Framsóknar
og samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra.
Velgengni enska knattspyrnu-
félagsins Tottenham Hotspur er
í hæstu hæðum um þessar mund-
ir, en ansi langt er síðan liðið hef-
ur trónað á toppnum í ensku knatt-
spyrnunni eins og raunin hefur
verið undanfarið. Vegna þessa hafa
stuðningsmenn félagsins sprottið
fram á ýmsum vettvangi enda oft-
ar en ekki þurft að láta lítið fyrir
sér fara á undanförnum árum. eftir
glæstan sigur liðsins á erkifjendun-
um í Arsenal nýverið, var stofnað-
ur sérstakur aðdáendaklúbbur liðs-
ins hér á landi sem ber hinn merka
titil Tottenham-klúbbur Kjósar- og
borgarfjarðarsýslna hinna fornu.
„Klúbburinn hefur stofnað hóp
á facebook sem lokaður hópur fyr-
ir eðalborna spurs-aðdáendur með
tengingar á Akranes, borgarnes,
borgarfjörð og Mosfellsbæ, sem-
sagt Kjósa- og borgarfjarðarsýslur
hinar fornu. Þar sameinast félagar
í umræðum og vangaveltum um
þetta stórfenglega knattspyrnulið
- og fagna litlum sem stórum sigr-
um,“ segir í tilkynningu.
Af sóttvarnarástæðum mættu að-
eins tveir á stofnfundinn en það
voru þeir Gísli einarsson fulltrúi
borgfirðinga og borgnesinga og
Pétur Magnússon fulltrúi skaga-
manna og Mosfellinga. Við það
tækifæri gæddu þeir félagar sér á
dýrindisköku sem sérbökuð var fyr-
ir stofnfundinn. Þrátt fyrir fámenni
á stofnfundinum eiga þeir félagar
von um að fjöldi meðlima í klúbbn-
um nái hæstu hæðum strax næstu
vikur enda margir vaskir sveinar
og glæstar meyjar á upptökusvæði
klúbbsins sem tilheyra hinum róm-
aða hópi Tottenham aðdáenda.
Tottenham-aðdáendur á umrædd-
um svæðum eru hvattir til að melda
sig inn í hópinn og taka þátt.
Til viðbótar er gaman að segja
frá því að Gísli og félagi hans hafa
sett upp ansi glæsilegt skilti í borg-
arnesi við Þjóðveg 1 en skiltið má
sjá á meðfylgjandi mynd. mm
Pennagrein
Styrkjum búsetu
á landsbyggðinni
Baráttuskilti klúbbsins er nú komið
upp í Borgarvík í Borgarnesi.
Tottenhamklúbbur Kjósar- og
Borgarfjarðarsýslna hinna fornu
Stofnfélagarnir Pétur og Gísli.
Brátt hækkar sól