Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 73
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 73
Ég óska ykkur gleðilegra
jóla og farsældar
á komandi ári og þakka
ykkur fyrir samstarfið og
stuðninginn á árinu
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Gleðileg jól
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
0
Kæru nemendur, foreldrar og starfsfólk
Grunnskólans í Borgarnesi
Sendum ykkur okkar bestu jóla- og
nýárskveðjur með þökk fyrir ánægjulegt
samstarf á árinu sem er að líða
Skólastjórnendur
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Sjóvá Akranesi, sími 440-2360
Sjóvá Borgarnesi, sími 440-2390
Óskum Vestlendingum og
landsmönnum öllum gleðilegra
jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum ánægjulegt samstarf
á árinu sem er að líða.
Þar sem töfrarnir verða til.
Kristín pússar og kembir gærur sem hún hefur sjálf sútað.
Falleg kaffistofa
í fjárhúsunum
Fjárhúsin hennar Kristínar byggði
hún úr tveimur 40 feta frystigám-
um. „Þeir voru settir hlið við hlið
með þrjá metra á milli og svo þak
yfir, málað og gert fín. Í bilinu á
milli gámanna eru sjálf fjárhúsin en
í öðrum gámnum er hlaða og í hin-
um er kaffistofa. Þetta er eiginlega
lítil sæt íbúð, sem er fáránlegt því
við búum ekki þarna,“ segir Krist-
ín og hlær. „Þó ég segi sjálf frá er
þetta ótrúlega hugguleg kaffistofa
og í hana fékk ég næstum allt not-
að. Hún er panilklædd með panil
sem ég fékk úr húsi sem var ver-
ið að rífa, innréttingin var notuð
og svo er ég með fallegan skenk
sem ég fann á öskuhaugum,“ segir
Kristín. „Í betri stofuna splæsti ég
samt í kúlupanil og parket og þar
safna ég ýmsu skemmtilegu, falleg-
um bollum, myndum af ömmum
og öfum og fleiru. Þar er ég líka
með svefnsófa og sef alltaf á hon-
um í sauðburðinum,“ segir Kristín
og bætir við að fjárhúsin séu meira
eins og sumarbústaður en útihús.
„Dóttir mín hefur meira að segja
komið hingað í sumarfríinu sínu
frekar en að bóka sumarbústað,“
segir Kristín.
Ekki á skónum
í kaffistofuna
Fjárhúsin er Kristín með í Ný-
ræktinni í stykkishólmi en þar eru
12-15 fjárhús á litlu svæði. „Þetta
er alltaf kallað Nýræktin þó fram-
kvæmdir hér hafi byrjað upp úr
1930,“ segir hún. „Við frístunda-
bændurnir hér fáum alltaf einhvern
til að telja fósturvísa í fénu okkar
allra í einu og að því loknu er hefð
fyrir að koma saman í kaffistofunni
hjá mér og fá kaffi og kökur. Það
eru allir bændur velkomnir ef þeir
fara úr skónum,“ segir Kristín og
hlær. Aðspurð segir hún þó ekki
skyldu að fara úr skónum á öðr-
um stöðum í fjárhúsinu. Fyrir utan
fjárhúsin er hún með lítinn mat-
jurtagarð og gróðurhús þar sem
hún ræktar jarðarber, hindber, sal-
öt og fleira. „Við kaupum afskap-
lega lítið af mat, við ræktum næst-
um allt sjálf,“ segir Kristín.
arg/ Ljósm. sá
Þeir sem koma í kaffistofuna í fjárhúsunum hjá Kristínu þurfa fyrst að fara úr
skónum, svo fínt er þar inni.