Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 55
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 55
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
erna Kristín Hjaltadóttir fluttist að
Fellsenda 1968 en þar voru tengda-
foreldrar hennar bændur ásamt
sonum sínum Vésteini og Magn-
úsi Arngrímssonum. síðar tók
yngra fólkið við búskapnum en þar
var tvíbýli. Jörðina leigðu ábúend-
ur af Minningarsjóði Ólafs Finns-
sonar og Guðrúnar Tómasdóttur
frá Fellsenda. Þau hjónin hættu bú-
skap árið 2006 þegar Hjalti sonur
ernu og Vésteins tók við búskapn-
um ásamt eiginkonu sinni Lindu
Traustadóttur. Þau keyptu íbúð-
arhúsið af Magnúsi og báru konu
hans, sem jafnframt er systir ernu.
erna og Vésteinn bjuggu áfram á
Fellsenda þar sem erna býr enn í
dag og samhliða búskap hefur erna
lengst af starfað á Hjúkrunarheim-
ilinu Fellsenda. Um síðustu mán-
aðamót urðu tímamót í lífi ernu
þar sem hún ákvað að láta af störf-
um eftir samfelldan 44 ára starfs-
aldur á Hjúkrunarheimilinu Fells-
enda.
„Það er gott að geta ákveðið sjálf-
ur að hætta að vinna en ég varð sjö-
tug 21. mars og þetta er fínn tími.
en reyndar segist ég ennþá vera 69
ára því ég hef ekki náð að halda upp
á afmælið mitt út af heimsfaraldr-
inum,“ segir erna og hefur gaman
að því að geta nýtt sér annars bág-
legt ástandið til að telja sig yngri en
ártalið gefur til kynna.
Eins og okkar álver
„Það var nærtækt að starfa á Hjúkr-
unarheimilinu Fellsenda. en það
má kalla það forréttindi að hafa
vinnustaðinn svona rétt við heimil-
ið sitt þegar maður býr út í sveit. Ég
held að það sé varla til það heim-
ili hér í sveit, þ.e. í Miðdölum, þar
sem enginn hefur sótt starf á Fells-
enda. Þetta er eins og okkar álver.“
erna og Vésteinn stunduðu
sauðfjárbúskap auk þess að hafa
fyrstu árin verið með nokkrar kýr.
„Það veitti ekki af að hafa einhverja
aukavinnu. ef það gengur illa í bú-
skap núna þá hefur það alltaf ver-
ið,“ segir erna og hlær við. „Það
hefur alltaf verið basl í sauðfjárbú-
skap. en það fór alltaf í taugarnar á
mér hvað þessi stétt var töluð niður.
Með aldrinum hættir það að bíta á
mann, maður veit betur,“ bætir
erna við.
Í ýmsum störfum
Á 44 ára starfsferlinum á Fells-
enda hefur erna komið víða við.
Fyrstu árin var þar dvalarheim-
ili fyrir aldraða Dalamenn en síð-
ar var farið í samstarf við geðsv-
ið Landsspítalans og tekið á móti
eldri geðfötluðum einstakling-
um. „smátt og smátt færðist eldra
fólkið meira yfir í búðardal eft-
ir að Dvalarheimilið silfurtún var
byggt þar upp. Þá hóf minningar-
sjóðurinn samvinnu við Klepps-
spítala, eins og hann var þá kallað-
ur. Fyrsti vísir að þessari samvinnu
var þegar hingað komu fjórar kon-
ur utan úr stykkishólmi sem höfðu
verið á geðdeildinni á sjúkrahúsinu
í stykkishólmi. Ég man eftir því að
þegar ég var í gagnfræðiskólanum í
stykkishólmi að þá var alltaf talað
um þriðju hæðina á sjúkrahúsinu
og var þá átt við geðdeildina,“ segir
erna sem stundaði nám í stykkis-
hólmi í þrjá vetur.
Frá upphafi hefur erna sinnt
hinum ýmsu störfum á Fellsenda.
Þá hefur hún m.a. verið í aðhlynn-
ingu, eldhúsi, fylgt skjólstæðingum
í bæjarferðir og í sjúkraflutningum
en síðustu árin hefur hún starfað
í þvottahúsinu. erna viðurkennir
að oft hefur þetta reynst krefjandi
starf.
„Um leið og það er krefjandi
er það náttúrulega líka gefandi og
oft á tíðum skemmtilegt. Það eru
margir ógleymanlegir karakterar
sem maður hefur fengið að kynnast
í gegnum starfið. Það komu alveg
erfiðir dagar þar sem maður kom
heim og hugsaði með sér að nú
væri komið gott. en starfsandinn
var yfirleitt góður og það hefur allt
að segja á svona vinnustað,“ segir
erna ánægð með ævistarfið.
Njóta lífsins
og tilverunnar
erna hefur engar áhyggjur af því að
verða aðgerðarlaus nú þegar hún
er hætt að vinna. Prjónaskapur er
hennar yndi og erna býr svo vel að
tvö af þremur börnum hennar búa
í nágrenninu. Og það þarf heldur
ekki að fara langan veg til að heim-
sækja gamla vinnustaðinn. erna er
félagsvera sem hlakkar mjög til að
rækta félagsskapinn þegar hömlur
vegna Covid faraldurs verða yfir-
staðnar.
„Ég fattaði á fimmtudagsmorg-
uninn í seinustu viku að ég væri
raunverulega hætt að vinna. Það
var óveður og mér þótti ósköp gott
að þurfa ekki að fara út. Þótt það
sé ekki langt á milli húsa þá getur
það verið strembið að fara á milli
í vonskuveðrum, það getur orðið
hvasst og mikið kóf. Þegar maður
eldist þá er maður heldur ekki eins
lipur,“ segir erna hlæjandi og stað-
ráðin í því að njóta lífsins og tilver-
unnar.
sm
Hættir störfum eftir 44 ár á sama vinnustað
Erna Kristín Hjaltadóttir á Fellsenda.