Skessuhorn - 16.12.2020, Page 15
Jólakúlujól fjölskyldunnar
Á jólunum er gleði og gaman þó við lifum í jólakúlunni út af „svolitlu“.
Mikilvægt er að hlúa hvort að öðru og njóta saman.
Hér eru nokkrar hugmyndir að samverustundum fyrir þig og þína.
Jólagleði í Garðalundi
Jólastemning er í Garðalundi um þessar mundir.
Skemmtileg rafræn leiðsögn er í boði og gott að
hafa með í för vasaljós og farsíma. Heitt kakó og
piparkökur passa vel með.
Jólasund
Jaðarsbakkalaug og Guðlaug hafa verið opnaðar á
ný, tilvalið að taka jólabaðið þar.
Þau allra hugrökkustu geta skellt sér í sjóinn og
farið í Guðlaugu að því loknu.
Jólafjöruferðir
Akranes er þekkt fyrir fjölbreyttar fjörur eins og
Langasand, Kalmansvík, Leyni, Skarfavör, Höfða-
vík og Krókalón. Skoðaðu fjörur!
Jólainnkaup
Verslum í heimabyggð og styðjum við okkar
verslanir enda úrvalið fjölbreytt og
framúrskarandi þjónusta.
Jólakósí
Baka, spila, leika og föndra saman.
Opna jólaglugga á facebooksíðunni „Skaginn
syngur inn jólin“ og njóta ljúfra tóna Skagamanna.
Heimsækja Bókasafn Akraness og velja sér
skemmtilega bók til lesturs.
Panta heimsókn í Akranesvita með því senda
skilaboð í gegnum facebooksíðu vitans.
Jólaheilsubót
Ratað um Akranes, ratleikur í Ratleikja Appinu.
Hreyfistöðvar í Garðalundi og við Akraneshöll.
Renna sér í brekkum ef snjórinn mætir á svæðið.
Útivist og fræðandi gönguferð eins og Baskagangan
á Elínarhöfða.
Gönguferð um nýja Krókalónsstíginn með
viðkomu á Breið.
Listarverkaganga um Akranes þar sem fjölmörg
listaverk bæjarins eru skoðuð.
Vetrargrínin eru opin hjá Leyni.
Leiðangur um leikvelli á Akranesi.
Gerum þetta saman
Gleðileg kúlujól