Skessuhorn - 16.12.2020, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 21
Hvanneyrardeild Grunnskóla borgarfjarðar fékk síðastliðinn fimmtudags-
morgun sinn tíunda Grænfána fyrir framúrskarandi mennta- og umhverf-
isverkefni. er skólinn fyrstur allra skóla á Íslandi til að hljóta Grænfánann í
tíunda skipti. Af því tilefni var Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands við-
staddur þegar skólinn fékk fánann afhentan. Grænfáninn er alþjóðleg við-
urkenning til skóla sem vinna að menntun til sjálfbærni og má finna fánann
víða um heim. Hvanneyrardeild Grunnskóla borgarfjarðar, áður Andakíls-
skóli, hefur unnið að menntun til sjálfbærni í um tvo áratugi og fékk fyrsta
Grænfánann þann 4. júní 2002.
arg
Á fundi hreppsnefndar skorra-
dalshrepps síðastliðinn mið-
vikudag var tekin til afgreiðslu
fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftir-
lits Vesturlands fyrir árið 2021
og tillaga stjórnar HVe að
gjaldskrárhækkun. sveitarstjórn
hafnaði tillögunni vegna hækk-
ana sem í henni felast á þeirri
forsendu að gjaldskrárheimildir
séu hærri en raunkostnaður sem
í þjónustunni felst. Jafnframt
skoraði hreppsnefnd á önnur
sveitarfélög á starfssvæði Heil-
brigðiseftirlits Vesturlands að
hafna gjaldskrárhækkun. Fjár-
hagsáætlun HeV fyrir árið 2021
er því vísað til baka til stjórnar til
endurgerðar.
„Hækkanir á leyfisgjöldum í
gjaldskrártillögunni eru alltof
miklar miðað við eldri gjaldskrá.
Ætla má að gjaldskrátillögur séu
hærri en raunkostnaður við eft-
irlitið, en samkvæmt 46 gr. laga
um hollustuhætti og mengunar-
varnir má ekki taka hærra gjald
en raunkostnað. sést það á sam-
anburði við gjaldskrár annarra
heilbrigðisumdæma. einnig eru
rangar heimildir í gjaldskrártil-
lögunni um heimild til gjaldtöku
og í ljósi þess hafnar hrepps-
nefnd gjaldskrártillögunni og
leggur einnig til að önnur sveit-
arfélög á starfssvæðinu geri það
sama,“ segir í bókun hrepps-
nefndar skorradalshrepps.
mm
Tíundi Grænfáninn dreginn að húni.
Fyrsti íslenski skólinn til að fá
Grænfánann í tíunda sinn
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands með nemendum Hvanneyrardeildar
Grunnskóla Borgarfjarðar.
Margrét Hugadóttir, sérfræðingur hjá Landvernd, afhenti skólanum Grænfánann.
Börnin sungu fyrir gesti við afhendingu á Grænfánanum. Eftir athöfnina var gott að fá smá heitt kakó og piparkökur.
Helga Jensína Svavarsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar, og Guðni Th.
Jóhannesson, forseti Íslands. Á myndinni er Guðni með poka sem börnin bjuggu til
og gáfu honum.
Hafna
gjald-
skrár-
hækkun
HeV