Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2020, Síða 34

Skessuhorn - 16.12.2020, Síða 34
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202034 Fréttaannáll ársins 2020 í máli og myndum þótt veðurham hefði verið spáð og sterklega varað við ferða- lögum. Hluti hópsins þurfti að grafa sig í fönn og taldi fólk- ið þetta verða sitt síðasta. Margir voru orðnir afar kaldir og hraktir þegar björgin barst. Lögregla rannsakaði í kjölfarið ástæður þess að farið var með ferðafólk í fyrrgreinda ferð. Um vítavert gáleysi var að ræða af hálfu ferðaþjónustufyrirtækis- ins. Oft var bræla síðasta vetrarvertíð var erfið sjómönnum sem gera út frá snæfellsnesi. sífelldur lægðagangur einkenndi tíðarfarið. Oft þurfta því að sæta lagi til að ná að róa og komast að landi fyr- ir næsta hvell. Fiskverð var gott í fyrravetur og því má segja að sæta hafi þurft lagi. Þegar veður gekk niður eftir kvöldmat einn daginn í janúar var haldið til sjós frá Ólafsvík, en veð- urspá gerði ráð fyrir blíðu fram í morgunsárið og síðan vax- andi vindi þegar liði á morguninn. Þá var glufan hins veg- ar nýtt í þaula. Kristinn HU kemur hér til hafnar í Ólafsvík í leiðindaveðri. Aflinn var um 12 tonn. Þrjú stór snóflóð féllu á Vestfjörðum Á tólfta tímanum að kvöldi þriðjudagsins 14. janúar féllu alls þrjú stór snjóflóð á Vestfjörðum; tvö á Flateyri og eitt úr fjall- inu handan suðureyrar í súgandafirði. Það flóð olli flóðbylgju sem skall á höfninni og strandlengjunni við þorpið á suður- eyri. enginn slasaðist á suðureyri en eignatjón var talsvert. Á Flateyri féllu tvö stór snjóflóð með tveggja mínútna millibili um svipað leyti. Annað úr skollahvilt en hitt úr Innra-bæj- argili. Flóðvarnargarðar í hlíðinni ofan við þorpið tóku það mesta úr báðum flóðunum, en þó fóru spýjur yfir garðinn. Í öðru tilfellinu lenti flóð á húsi við Ólafstún. Fjórir voru þar inni; kona og tvö ung börn sluppu en unglingsstúlka grófst undir snjó í herbergi sínu. Heimamenn í björgunarsveitinni höfðu snör handtök og tókst að grafa niður á stúlkuna á inn- an við hálftíma. Var hún lítið slösuð og bar sig vel þegar fjöl- miðlafólk ræddi við hana næsta dag. ekki urðu því slys á fólki. Hins vegar var eignatjón á Flateyri gríðarlegt, einkum á höfn- inni þar sem flóðið olli flóðbylgju sem sökkti flestum bátun- um sem voru í höfninni, skemmdi flotbryggju og sópaði með sér olíutönkum og öðru lauslegu. einnig varð tjón á landi á bílum, mannvirkjum, gámum og fleiru. Óhætt er að segja að óhug hafi sett á landsmenn minnugir mannskæðra slysa af völdum náttúruhamfara. Kjötlokumálið reyndist fúsk eftirlitsaðilans Fyrirtækinu Kræsingum ehf. í borgarnesi, áður Gæðakokk- um, voru í janúar á þessu ári dæmdar skaðabætur úr ríkissjóði, alls 69 milljónir króna auk vaxta og kostnaðar, vegna óná- kvæmra og rangra vinnubragða Matvælastofnunar við sýna- töku úr framleiðslu fyrirtækisins í byrjun árs 2013. Þetta sjö ára ferli hefur tekið verulega á í rekstri fyrirtækisins eins og lesa mátti um í ítarlegu viðtali í skessuhorni. Fyrirtækið var að ósekju „tekið af lífi“ eins og sannanlega mætti kalla það, fyrir það eitt að eftirlitsmenn höfðu ekki staðið rétt að reglu- legri sýnatöku af framleiðslu fyrirtækisins. eigendur ákváðu að breyta um nafn og halda áfram starfsemi en leituðu jafn- framt réttar síns fyrir dómstólum þar sem þeir unnu fulln- aðarsigur. Á meðfylgjandi mynd eru tengdafeðgarnir Magnús Níelsson hjá Kræsingum og Ágúst Örn Guðmundsson að út- búa fyrstu þorrabakkana úr húsi í janúar á þessu ári. Húsnæðismál oft í fréttum segja má að húsnæðismál hafi oft borið á góma í fréttum árs- ins. Í janúar sögðum við t.d. frá því að leigufélagið Heima- vellir sagði upp húsaleigu allra þeirra sem leigðu af fyrirtæk- inu íbúðir í fjölbýlishúsinu Holtsflöt 4 á Akranesi, alls 18 fjöl- skyldum. Fyrirtækið hafði nokkrum árum áður keypt þessar íbúðir á sérkjörum af Íbúðalánasjóði og leysti út gríðarleg- an hagnað með að selja eignina og vísa leigjendum út á Guð og gaddinn. Fleiri íbúar fjölbýlishúsa í bæjarfélaginu lentu í sambærilegum vandræðum og um tíma var útlitið svart því ljóst var að mikill skortur yrði á leiguhúsnæði. Töluverð upp- bygging íbúðarhúsnæði hefur verið á Akranesi á árinu og hluti þeirra íbúða farið á leigumarkaðinn, þannig að segja má að úr hafi ræst með samstilltu átaki verktaka, bæjaryfirvalda og ríkis. Á árinu var stofnað opinbera leigufélagið bríet í eigu ríkisins. Hlutverk þess er að bæta virkan leigumarkað á landsbyggð- inni í samstarfi við sveitarfélög. slíkar íbúðir eru nú farnar að rísa. Lögreglan nýtir tæknina Á árinu tók Lögreglan á Vesturlandi í notkun nýjar bifreið- ar enda mikilvægt að viðbragðsbílar séu ávalt traustir. Þá tók lögreglan einnig í notkun þrjá hitasjónauka á árinu, búnað sem hannaður er sérstaklega fyrir lögreglu. Hitasjónaukar eru nú á Akranesi, borgarnesi og á snæfellsnesi, staðsettir í út- kallsbílum og nýtast t.d. við leit að týndu fólki. Þá er sömu- leiðis hægt að rekja spor og sjá í bílslysum hvort setið hefur verið í öllum sætum bifreiðar, ef einhver hefur kastast út, og er þá farið að leita ef myrkur er. Lögregla á með hitasjónauka að geta greint manneskju sem gefur frá sér hita í 1,3 km fjar- lægð. búnaðurinn er mjög fullkominn, spor sjást í görðum ef þau eru nýleg og ef einhver leggur lófann á vegg og horfir síð- an á vegginn í gegnum hitasjónaukann þá sést lófafarið. Hita- sjónaukar sem þessir hafi verið notaðir af viðbragðsaðilum og reynst vel. Nefna má að í jarðeldum í Norðurárdal í vor kom hitasjónauki að góðum notum við að meta útbreiðslu elds og skipuleggja þannig slökkvistarfið. Meðfylgjandi mynd er úr hitasjónauka sem settur var í dróna og sýndi slökkviliðsbíla og jaðar eldsins í Grábrókarhrauni. Andrea er Skagamaður ársins Tilkynnt var á þorrablóti í vetur að Andrea Þ. björnsdóttir væri skagamaður ársins 2019. Andrea hlaut verðlaunin fyrir óeigingjarnt starf sitt við aðstoð við þá sem glíma við alvar- leg veikindi. Andrea hefur selt ýmsan varning, mest þó lakkr- ísafskurð frá Góu. Þess má geta að þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún er verðlaunuð fyrir mannúðarstörf sín, en hún var kjörin Vestlendingur ársins 2016, af lesendum skessuhorns, fyrir starf sitt í þágu sjúkra og annarra sem þurft hafa aðstoð. Á þessu ári hefur Andr- ea fengið til liðs við sig ýmis fyrirtæki og ein- staklinga sem kost- að hafa lakkrískaup til áframsölu. Hún hefur með þeim hætti safn- að um þremur milljón- um króna á árinu, pen- ingur sem runnið hefur til þeirra sem þurft hafa vegna veikinda. Víða leynast hætturnar Við greindum frá því í febrúar að sprengjusveit Landhelgisgæslunnar gerði þá óvirka sprengju sem geymd hafði verið ásamt öðrum safngrip- um á byggðasafninu í Görðum á Akranesi frá 1978, handfjötluð reglu- lega og sýnd almenningi. sprengja þessi var upp- haflega úr el Grillo, ol- íubirgðaskipi sem sökkt var á seyðisfirði í síðari heimsstyrjöldinni, en gefandi sprengjunnar á safnið taldi hana vera óvirka. Önnur sprengju úr sama skipi hafði verið geymd á safni í Vestmannaeyjum og var einnig eytt á árinu. „sprengju- sérfræðingar LG töldu sig nokkuð vissa að sprengjan væri virk en vildu leita af sér allan vafa. svo fékk ég þau skilaboð nokkr- um dögum síðar að hún hefði verið eyðilögð vegna þess að hún hafi verið „vel“ virk. Mér var tjáð að lítið væri eftir af henni, þannig að ég tel nokkuð víst að hún hafi verið sprengd upp,“ sagði Jón Allansson safnstjóri í Görðum í samtali við skessuhorn í febrúar. Íbúar reikna með fækkun sveitarfélaga Á árinu greindum við frá ýmsum skýrslum og könnunum sem gerðar hafa verið og snerta okkur íbúa á Vesturlandi. Í skýrsl- unni „Atvinnulíf á Vesturlandi árið 2040 - sviðsmyndir um framtíð atvinnulífs á Vesturlandi til ársins 2040,“ sem KPMG vann fyrir ssV, voru meðal annars birtar niðurstöður net- könnunar meðal íbúa í landshlutanum. svarendur voru beðn- ir um að leggja mat á það hversu mörg sveitarfélög þeir telja að verði á Vesturlandi árið 2040. Í dag eru tíu sveitarfélög í landshlutanum og íbúafjöldi um 16.500. Meðalsvar þátttak- enda var að fimm sveitarfélög verði á Vesturlandi árið 2040. 68% telja að þau verði sex eða færri. Þegar könnunin var gerð hafði hvorki landsþing sambands íslenskra sveitarfélaga né Al- þingi samþykkt ályktun um að mæla með að samþykkja þings- ályktunartillögu um stefnumótandi áætlun í málefnum sveit- arfélaga. Þar er m.a. miðað við að lágmarks íbúafjöldi sveit- arfélaga verði 250 fyrir næstu kosningar til sveitarstjórna og að þeir verði eitt þúsund árið 2026. Nú þegar tillagan hefur verið samþykkt munu að öllum líkindum a.m.k. sex af núver- andi sveitarfélögum á Vesturlandi þurfa að sameinast öðrum, komi ekki til nægilegrar íbúafjölgunar fyrir árið 2026. sveit- arstjórnaráðherra kynnti frumvarp um fækkun sveitarfélaga í febrúar. samkvæmt því verður lágmarksíbúafjöldi í sveitarfé- lagi 250 árið 2022 og 1000 árið 2026.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.