Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2020, Qupperneq 38

Skessuhorn - 16.12.2020, Qupperneq 38
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202038 Viðkvæmt land brann Í maí kom upp eldur í þurrum og viðkvæmum gróðri í Grá- brókarhrauni í Norðurárdal. eldsupptök voru skammt frá Paradísarlaut. Tiltækur mannskapur frá slökkviliði borgar- byggðar var kallaður til sem og mannskapur frá slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar. síðar um kvöldið barst auk þess liðsauki frá brunavörnum suðurnesja. Þannig voru hátt í eitt hundrað manns sem börðust við eldana og sinntu gæslu, en slökkvistarfi lauk tólf tímum eftir að eldsins varð fyrst vart. Lauslega áætlað brunnu um 15 hektarar lands, einkum mosi og kjarr sem vex í úfnu hrauninu á svæði milli þjóðvegarins og Norðurár, gegnt Veiðilæk. Gríðarlegt tjón varð í þessum eldum og langur tími mun líða þar til ásýnd svæðisins verð- ur söm og fyrr. Óttaðist vöruskort Í upphafi fyrstu bylgju kóvidfaraldursins í mars fór að gæta skorts á nokkrum vörutegundum í verslunum. Þó varð ástand- ið hér á landi aldrei viðlíka eins slæmt og víða erlendis þar sem segja má að múgæsing hafi gripið um sig. Jafnvel voru þess dæmi að þar hafi verið slegist um mat en ekki síst salernis- pappír. Hér á landi voru um tíma bökunarvörur uppseldar í verslunum og salernispappír var á þrotum. Aldrei skapaðist þó neyðarástand. Meðfylgjandi mynd sýnir tómar brauðhillur í verslun bónus á Akranesi, sjón sem reyndar var ekki algeng svo því sé til haga haldið. Góð aflabrögð og Íslandsmet Fádæma góð aflabrögð voru hjá bátum og skipum sem gera út frá snæfellsbæ á vetrarvertíðinni síðustu. Meðal annars gerði áhöfnin á steinunni sH frá Ólafsvík risaróður á drag- nót í byrjun mars þegar komið var með 84,2 tonn að landi. Fékkst aflinn í þremur köstum. Í því síðasta óttaðist skipstjór- inn að nótin myndi hreinlega springa, svo mikill var aflinn. Þá sló áhöfnin á netabátnum bárði sH-81 frá Ólafsvík Ísland- met í vertíðarafla netabáta á síðustu vertíð. Aflinn var 2.311 tonn af óslægðum afla upp úr sjó en fyrra metið átti áhöfnin á Þórunni sveinsdóttur Ve sem landaði 1.917 tonnum um vertíðina 1989. „Þetta var erfið vertíð vegna stöðugrar ótíð- ar,“ sagði Pétur Pétursson útgerðarmaður og skipstjóri í sam- tali við skessuhorn, en þrátt fyrir rysjótta tíð lönduðu þeir á bárði sH 1.019 tonnum í mars. Á meðfylgjandi mynd er Gísli bjarnason, skipstjóri á línubátnum signýju HU, eftir góðan róður í byrjun mars. Tveir Norðurgarðar stækkaðir Á þessu ári hafa talsverðar hafnarframkvæmdir verið í gangi bæði í Grundarfirði og snæfellsbæ. Í Grundarfirði var Norð- urgarður lengdur töluvert og sér nú fyrir endann á þeirri framkvæmd. Þá réðist hafnarsjóður snæfellsbæjar í dýpkun- arframkvæmdir við hafnirnar í Ólafsvík og Rifi og sömuleiðis lengingu Norðurgarðs í Ólafsvík. Heimsóknatakmarkanir mestallt árið Frá því í mars hafa verið í gildi miklar takmarkanir á heim- sóknum til íbúa á hjúkrunar- og dvalarheimili um land allt. Nokkuð er þó breytilegt milli heimila hversu víðtækar þessar takmarkanir eru. Fram til þessa hefur tekist að koma í veg fyr- ir smit á þessum heimilum á Vesturlandi og má þakka starfs- fólki, íbúum og aðstandendum þeirra hversu vel hefur tekist til. Í nýrri reglugerð um forgangsröðun við bólusetningar eru heilbrigðisstarfsmenn í forgangi og þvínæst íbúar á hjúkrun- ar- og dvalarheimilum. Kvenfélagskonur voru orðnar drulluleiðar Kvenfélag Hvítársíðu sendi á fyrra hluta árs opið bréf til Vega- gerðarinnar þar sem bágborið ástand malarvegarins um Hvít- ársíðu var fært í tal. Í upphafi bréfsins var rifjað upp að á ár- unum 1930-1933 gengu konur í Kvenfélaginu Heklu í skaga- hreppi í það verkefni að leggja veg um sveitina. Þær unnu að þessu verkefni í sjálfboðavinnu þrjá daga á hverju sumri í þrjú ár. „Þetta var fyrir löngu síðan, en núna er árið 2020 og mikl- ar breytingar hafa átt sér stað. Í dag eru vegir um allar koppa- grundir en ekki er annað hægt að segja en þessum vegum er misvel haldið við. sá vegur sem við búum við er malarveg- ur sem væri svo sem allt í lagi ef um hann væri vel hugsað og honum haldið við,“ sagði í bréfi kvenfélagskvenna. Þá sagði um ástand vegarins: „Um malarveginn í Hvítársíðu í borgar- firði þurfa heimamenn að fara í skóla og margir fara til vinnu á hverjum degi og allir þurfa að afla aðfanga til heimilis og bú- skapar. einnig fara þar um margir ferðamenn sem þekkja mis- vel á malarvegi. Að keyra um lélega, holótta og óslétta vegi fer ekki vel með bílana og önnur farartæki. Okkur, sem við þenn- an veg búum, finnst að nú sé komið nóg og skorum á Vega- gerðina að koma veginum í betra ástand.“ Myndin sýnir kon- urnar þar sem þær tóku til sinna ráða og byrjuðu að sleikja í holurnar. Vissulega táknræn aðgerð, en hitti í mark. Ætla að framleiða rafeldsneyti Í fjáraukafrumvarpi sem samþykkt var á Alþingi í lok mars var ákveðið að leggja til fjármuni til ýmissa fjárfestingar- og þró- unarverkefna um nýtingu orku og þróun á eldsneyti til sam- gangna. Þar var meðal annars horft til að gera hagkvæmni- og fýsileikakönnun á einu af þeim verkefnum sem Þróunarfélag Grundartanga hafði unnið í samstarfi við elkem. Um er að ræða framleiðslu á svokölluðu rafeldsneyti til notkunar á bíl- um og skipum. Hugtakið rafeldsneyti er notað sem samheiti fyrir það eldsneyti sem fæst þegar þekktar eldsneytistegundir eru búnar til úr vetni sem fengið er með rafgreiningu vatns og íblöndun koltvísýrings. Rafeldsneytið telst kolefnishlutlaust þegar raforkan til framleiðslunnar fæst frá endurnýjanlegum orkugjöfum og koltvísýringi sem fangaður er frá losandi iðn- aðarstarfsemi eða úr andrúmsloftinu. Á Grundartanga starfa tvær stóriðjur sem losa alls um eina milljón tonna af CO2 á ári og því er svæðið talið kjörinn staður til að binda CO2 til framleiðslu á rafeldsneyti. Flækjustig og hagkvæmni fram- leiðslunnar ræðst svo af því hvaða tegund eldsneytis verður framleidd. Rafmagn er vara sem hefur þá sérstöðu að hún er notuð á sömu stundu og hún er framleidd. eina leiðin til að geyma rafmagn er annað hvort að hlaða því niður á rafgeyma eða umbreyta því í vetni. síðarnefndi kosturinn er sá sem nú á að taka til skoðunar á Grundartanga. Afar spennandi verður að fylgjast með framvindu þessa verkefnis á næstu árum. Sungu fyrir samborgarana Covid-19 veiran breiddi ört úr sér hér á landi í mars og apríl. segja má að veiran hafi hreinlega breytt heimsmyndinni. samgöngur milli landa takmörkuðust og fjölmörg starfsemi lagðist í dróma. Fyrsta dauðsfallið af völdum veirunnar hér á landi var í mars og ástandið á sjúkrahúsum versnaði. sett- ar voru strangar takmarkanir og jafnvel bönn á heimsóknir til íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum landsins. eðli málsins samkvæmt var það mikil röskun á högum íbúa og aðstandenda þeirra. Þá má heldur ekki gleyma hlut starfsfólks sem jafnvel lagði á sig að fara í sjálfskipaða sóttkví utan vinnustaða til að lágmarka hættuna á að það bæri smit inn á heimilin. Til að létta stundir með íbúum sem voru þannig komnir í einangrun frá mannlegum samskiptum utan heimilanna var ýmsum ráð- um beitt. Meðal annars brugðu kórar, skólahópar, félagasam- tök og einstaklingar á það ráð að syngja framan við glugga og sýna þannig væntumþykju. Fréttir um slíka hugulsemi voru fjölmargar í skessuhorni á árinu. Á meðfyljandi mynd eru nemendur í fimmta bekk Grunnskóla snæfellsbæjar að gleðja eldri samborgara sína sem búa á Jaðri. Kjarabætur eftir sjö ára þóf Í mars var undirritaður nýr stofnanasamningur í Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi, milli skólameistara og félags- manna í KÍ. Þetta var engan veginn eini kjarasamningurinn sem undirritaður var á árinu, en þessi var hins vegar gerður Fréttaannáll ársins 2020 í máli og myndum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.