Skessuhorn - 16.12.2020, Qupperneq 46
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202046
Fréttaannáll ársins 2020 í máli og myndum
Humar er að finna víða á svæðinu á miðunum við utanvert
snæfellsnes. Fyrst voru gildrurnar lagðar ellefu mílur vestur
að Öndverðarnesi og var afli með ágætum en veður hamlaði
þó veiðum. Nýverið voru gildrurnar svo færðar á Jökuldýpi
sem er þekkt humarsvæði, en fyrr á árum voru humartogskip
þar að veiðum. ein trossa var þó lögð í Faxaflóann, 12 mílur
suður af Arnarstapa, þar sem ekki hefur verið reynt að veiða
áður. Kom það mönnum á óvart að þar var góður afli af væn-
um humri.
Veitur byggja starfsstöð
Framkvæmdir við nýja húsbyggingu Veitna hófust í haust í
Lækjarflóa á Akranesi. Veitur eru annað fyrirtækið sem bygg-
ir í hverfinu, en nokkru áður hafði efnagreining byggt þar
og flutt starfsemi sína frá Hvanneyri. Nýbygging Veitna mun
hýsa nýja starfsstöð fyrirtækisins á Vesturlandi og er hún hluti
af svokölluðum viðspyrnuverkefnum OR.
Skertur skottími
sala flugelda verður einungis heimil 30. og 31. desember og
6. janúar ár hvert, samkvæmt reglugerðarbreytingu. einungis
verður heimilt að skjóta upp flugeldum frá kl. 16:00 á gaml-
ársdag til 02:00 á nýársnótt og á nýársdag og þrettándanum
milli kl. 16:00 og 22:00. Þannig verður heimilt að skjóta upp
flugeldum í 22 klukkustundir samtals, þessa þrjá daga sitt-
hvorum megin við áramót. Áður kváðu reglurnar hins vega á
um að bæði mætti selja og skjóta upp flugeldum frá 28. des-
ember til 6. janúar, en þó er ekki heimilt að sprengja milli kl.
22:00 á kvöldin og 10:00 á morgnana.
Baader keypti meirihluta
í Skaganum 3X
Í byrjun nóvember var gengið frá samningi um kaup þýska
stórfyrirtækisins baader á meirihluta hlutafjár í skaganum
3X sem m.a. hefur starfsstöðvar sínar á Akranesi og Ísafirði.
Kaupin hafa átt sér talsverðan aðdraganda. Rekja má söluna
til þeirrar ákvörðunar stjórnar skagans 3X að leita eftir öfl-
ugu samstarfsfyrirtæki sem stutt gæti við frekari vöxt með það
að markmiði að koma lausnum skagans 3X betur á framfæri
í mun öflugra markaðs- og dreifikerfi. ekkert bendir til að til
standi að draga úr starfsemi fyrirtækisins hér á landi, heldur
þvert á móti.
Telja þörf á nýrri og
stærri Breiðafjarðarferju
stærð og búnaður í breiðafjarðarferjunni baldri sætti vaxandi
gagnrýni á árinu, ekki síst eftir að bilun kom upp í sumar og
vélarvana skipið var statt úti á miðjum breiðafirði. Vakti það
óhug margra um takmarkað öryggi. Hagsmunaaðilar, þeirra á
meðal stykkishólmsbær og sveitarfélög á suðurfjörðum Vest-
fjarða, leggja áhersla á mikilvægi þess að styrkja verði ferju-
siglingar um breiðafjörð með stærri og nýrri ferju til að mæta
aukinni þörf samfélagsins og bæta öryggi.
Fréttamynd ársins
Í annálaskrifum undanfarinna ári hefur skapast hefð fyrir því að valin er frétta-
mynd ársins í skessuhorni. Að þessu sinni var úr fjölmörgum myndum að velja
þrátt fyrir ýmsar hömlur sem settar voru á samskipti blaðamanna, ljósmynd-
ara og almennings. Verðlaunamyndina að þessu sinni tók sumarliði Ásgeirsson
ljósmyndari skessuhorns í stykkishólmi. Myndin er tekin þegar vika var liðin af
árinu, í hávaðaroki og áhlaðanda, þegar djúp lægð gekk yfir vestanvert landið.
björgunarsveitarmenn í berserkjum eru þarna að vinna við tryggja báta við flot-
bryggjuna í Hólminum.