Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2020, Síða 53

Skessuhorn - 16.12.2020, Síða 53
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 53 Kveðjur úr héraði Jólakveðja úr Eyja- og Miklaholtshreppi „Ekkert hefur breyst þó ekkert sé hið sama“ Það eru að koma jól! Og það þó árið sé 2020. Það er líka eins gott fyrir svona jólabarn eins og mig! sjúkket, hefði ég sagt í gamla daga. Þetta blessaða ár verður lengi í minnum haft og fyrir hvað ná- kvæmlega á eftir að koma í ljós – það fer þó klárlega af því misjafnt orð í sögubókum framtíðarinnar! Í lok þessa árs sem markar 25 ára kennsluferil minn er mér þó þakk- læti efst í huga. Ég er ævinlega þakklát fyrir starfið mitt, nemend- ur mína og samstarfsfólk. Það er mikil blessun að hlakka til að fara í vinnuna á næstum hverjum degi starfsævinnar. sú tilhlökkun hefur jafnvel aldrei verið meiri en ein- mitt á þessu herrans ári, 2020. Ég kenni við lítinn skóla, einn af síð- ustu litlu skólum þessa lands. Í ár hefur samfélagið sameinast um að vanda sig í sóttvörnum, hlýða Víði og huga að því hverja við hittum og umgöngumst. Jólakúlan okkar varð til strax í mars þegar við í skól- anum ákváðum að takmarka ferðir okkar sem mest og umgangast bara hvert annað. Við vildum gera allt til þess að halda skólanum gangandi, og við viljum það enn. skólinn er fjöregg hvers samfélags og í okkar litla sveitarfélagi, langfjölmennasti vinnustaðurinn. Á næstum hverjum morgni í 25 ár hef ég hlakkað til þess að hitta samstarfsfólk mitt og taka á móti krökkunum, sinna starfi mínu og áhugamáli um leið. Þetta er mikil blessun sem ég vildi að sem flestir fengju að upplifa þó ekki væri nema einhvern tíma ævinnar. Að vanda ræddum við krakkarn- ir um hvað jólin væru, til hvers við hlökkuðum mest til og hvað við ætlum að gera í fríinu. Í huga minn komu minningar um bernsku minn- ar jól. Minningar um mömmu sem virtist geta ,,gert og græjað“ jólin á nokkrum dögum. Aðföngin komu oft ekki fyrr en undir 20. desemb- er og þá var byrjað að baka, sauma og ganga frá gjöfum til stórrar fjöl- skyldu. Ég skil ekki almennilega enn hvernig hún fór að þessu, en jólafötin héngu tilbúin á hurðinni þegar ég kom úr jólabaðinu, kræs- ingarnar biðu okkar og mamma stóð við eldavélina. Hún hlýtur oft að hafa verið þreytt, jafnvel stress- uð en aldrei bar á neinu slíku. Verk- efni pabba voru annars lags, dagana fyrir jól skrifaði hann löng og efnis- mikil jólakort sem oft fóru nú ekki í póst fyrr en á Þorláksmessu – eða á milli jóla og nýárs og á aðfangadag sat hann inni á skrifstofu og pakk- aði inn bókum til okkar barnanna sem voru þó á ýmsum aldri. Alltaf svolítið seinn hann pabbi – sem út- skýrir kannski ýmislegt hjá mér í jólakortagerð og skrifum! Jólin komu með systkinum mín- um úr Reykjavík. Þau voru komin í menntó, eða háskólann, jafnvel búin að eignast börn og maka. Ég á níu systkini sem mér fannst nú á köflum misskemmtileg en einhvern veginn voru þau öll alveg hreint frábær á jólunum og ég hlakkaði til þess að fá þau heim í fásinnið á Þingvöllum. Ég man eftir Hildi sem vann hjá RÚV á þessum árum, koma másandi inn úr snjókófinu rétt um fimm á aðfangadag, hafði verið samferða brúsastaðakrökk- unum. Ferðin hafði tekið fimm klukkustundir í slæmri færð. Þetta var löngu fyrir tíma snjómokst- urs. Þegar Hildur var komin í hús var tími til kominn að fara í jóla- baðið, fara í ný og hrein nærföt, jólakötturinn mátti ekki éta mann þetta árið. Ég skellti mér í jólafötin og nú hófst biðin. Þessi endalausa bið eftir að stofudyrnar opnuð- ust og við fengjum að sjá jólatréð. stóru strákarnir höfðu náð í það, skreytt og lokað svo kyrfilega fyrir allan aðgang að stofunni að meira að segja skráargötin voru fyllt með pappír svo ekkert sæist inn. Við dyrnar voru verðir svo ég og yngri krakkarnir sæum nú ekki inn! Ég gleymi ekki þegar dyrnar opn- uðust og tréð blasti við í allri sinni dýrð. Við settumst inn andaktug og hlustuðum á bjöllurnar hringja inn jólin og á aftansöng í Dómkirkj- unni. en heilagleikinn fór fljótt af okkur og við tók besta verkefni jólanna, nefnilega að flytja pakk- ana af efri hæðinni niður í stofu og þetta voru margir pakkar, því við vorum sjaldnast færri en 15 á jól- unum í litlu borðstofunni okkar. Dísa systir sat uppi og afhenti okk- ur pakkana með skýrum reglum um hvernig skyldi halda, hversu hratt skyldi ganga og að ekki mætti þukla pakkana né lesa á merkimiðana. Á einum stað í stiganum var ,,blind- ur” blettur, þá sáu hvorki Dísa né Ási hvað var gert við pakkana. en allt þukl, lestur og aðrar rannsókn- ir varð að gera á göngu því ef tím- inn var of langur frá eftir hæð og niður var gerð alvarleg athuga- semd við það. en stundum náðist að kíkja og já, það leit út fyrir að maður fengi pakka, jafnvel bók sem var það besta! Í dag skreyti ég jólatréð í byrj- un desember. Í dag skrifa ég sjálf á flesta merkimiðina og í dag er það ég sem fer til barnanna minna á jól- um. Í dag hlakka ég alveg jafn mik- ið til jólanna og ég gerði þegar ég var lítið stelpuskott á hvítum sokk- um hlaupandi á milli hæða Þing- vallabæjarins. Í lok ársins 2020 er ég þakk- lát fyrir árið sem er að baki, þakk- lát fyrir samstarfsfólk mitt, starfið mitt, nemendur mína alla, fyrr og nú, og fjölskylduna mína. Nú er elsti bróðir minn áttræður, ég 55 ára og ekkert hefur breyst þó ekk- ert sé hið sama. Ingveldur Eiríksdóttir Laugargerði Það er ró yfir mannlífinu þetta haustið eftir Covid glennu í sum- ar með ferðalögum til landshluta sem við ætluðum alltaf að vera búin að heimsækja. Þetta var góð upp- stytta í miðju samkomubanni og indælt að hitta Íslendinga í upplýs- ingamiðstöðinni okkar og spjalla á móðurmálinu til tilbreytingar. Nú kemur enginn ferðamaður og spjall um bækur á bókasafninu hefur tek- ið við í vinnunni. Á svo litlum stað eins og Grundarfirði er hægt að koma við í sögumiðstöðinni þar sem finna má sýningar, bókasafn og upplýsingamiðstöð, þó ekki nema til að komast út og horfa út um aðra glugga en heima hjá sér. Viðburð- ir og mannamót hafa færst inn á streymisveitur og allt í einu er heil- mikið framboð af námskeiðum og tónlistarviðburðum að velja úr og bæta þannig við þekkingu sína og þörf fyrir skemmtun og samskipti við náungann. Netheimar bjóða upp á samskipti um menningarviðburði og hvatn- ingu um hreyfingu úti eins og veður leyfir. Hægt er að taka sér göngu- ferð eða bíltúr á milli jólaglugga hér í Grundarfirði, sem birtast nú hver af öðrum, einn á dag til jóla. Listaverk sem spretta upp úr veru- leika eigenda glugganna og margir uppgötva leynda eða gleymda hæfi- leika á listasviðinu. Ákveðið var að leggja saman krafta söngfólks í bænum og Listvinafélags Grund- arfjarðarkirkju til upptöku á jóla- söngvum sem eru frumfluttir í syrp- um, hvern sunnudag á aðventunni. Á aðventukvöldi kirkjunnar verður boðið upp á helgistund með hefð- bundinni ræðu og söng í streymi en helgistundum og messum hefur verið streymt síðan fyrir páska. Það mæðir mikið á aðalhljóðmanninum okkar og organista kirkjunnar, hon- um Mána, sem stýrir upptökum og hljóðsetningu flestra streymisvið- burða menningarlífsins í Grundar- firði. Máni er meðal margra brott- fluttra barna okkar sem hafa farið og menntað sig og komið heim aft- ur, ýmist einn á ferð eða með fjöl- skyldu sína en öll með kunnáttu og framtakssemi sem þau nýta sér í starfi hjá öðrum eða byggja upp sitt eigið fyrirtæki. börnum er aftur far- ið að fjölga í leik- og grunnskólun- um okkar og þau hafa staðið sig vel í nýjum sótthreinsuðum veruleika Covid-19 tímans með kennurum sínum og starfsfólki skólanna. eftir fallegan bleikan október breytir bærinn um svip með fjöl- breyttari litum jólanna sem lífga upp á sál og sinni okkar sem lif- um þessa óvenjulega tíma með tak- mörkuðum samskiptum við ná- granna og ættingja í raunheimum. bærinn er óvenju mikið skreytt- ur og sumir settu ljósin upp fyrir Rökkurdaga í lok október. Torgtré bæjarins stendur nú ljós- um prýtt á bæjarhólnum, upprunn- ið úr brekkuskógi ofan við bæinn. elstu trén þar eru komin yfir þrí- tugt og eru mátulega stór fyrir okk- ur Grundfirðinga sem fáum rífleg- an skammt af hvassviðri sem feyk- ir öllu burt sem ekki er vel fest eða rótfast og er nú orðið langt síðan síðasta „háa“ jólatréð brotnaði á festingu sinni í stóra sunnan, sem við köllum svo. svo miklar varúð- arráðstafanir eru gerðar að hér fýk- ur sjaldan nokkur hlutur hjá þeim sem eru vanir veðrinu og veður- spár eru farnar að vara sérstaklega við þessu veðurfyrirbrigði í öllum spám. Og þá fylgir með að, öfugt við okkur hérna norðan megin, þá fá þau sunnanfjalls ekki síðri „stóra norðan“. Veturinn er genginn í garð af alvöru með frosti og snjó. Mörg tækifæri eru gripin til að fitja upp á hreyfingu og skautasvelli er þrykkt upp þegar veðrið býður upp á kuldakast á veturna. Fólk lítur skíðasvæði snæfellsness hýru auga en það er steinsnar frá grunnskól- anum, ofan við bæinn og enginn fúlsar við snjó og frosti sem á skíði og sleða í geymslunni. sjósund eru stundað af miklum móð í frosti og kulda. Verðlaunin eru yndisfögur fjallasýn og ánægjulogi í kroppinn meðan kuldinn víkur fyrir hitanum í bílnum. Ég sendi Vestlendingum inni- legar jólakveðjur með von um að jólaljós og tónlist létti okkur lund- ina sem lengst. Jólakveðja frá Grundarfirði Ljósin í Grundarfirði Hrannarstígur 18, íbúðir eldri borgara í Grundarfirði. Ljósmynd SuN. Sunna Njálsdóttir, bókasafns- og upp- lýsingafræðingur í Grundarfirði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.