Skessuhorn - 16.12.2020, Síða 59
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 59
Við tökum að okkur færslu bókhalds, gerð
ársreikninga og skattframtala fyrir einstaklinga,
einstaklinga með rekstur og fyrirtæki af öllum
stærðum og gerðum.
Hafðu samband við starfsfólk okkar á
skrifstofum KPMG á Vesturlandi í
síma 545 6000 eða með tölvupósti
á kpmg@kpmg.is
Einblíndu á það
sem skiptir máli
__
kpmg.is
Fáir erlendir listamenn hafi get-
að notið dvalar í gestavinnustofum
landsins undanfarið og hafa margar
þeirra því staðið auðar fyrir vikið.
en á því eru undantekningar. Alix
Philippe, belgísk listakona búsett
í London, hefur frá því í október
dvalið í Gestavinnustofu Artak350
að Grundargötu 26 í Grundar-
firði. Alix er nú að ljúka dvöl sinni
hér á landi, en vegna erfliðleika
með flug og lokanir í bretlandi þar
sem hún er búsett, varð það úr að
hún dvaldi þrjá mánuði í Grundar-
firði. „Það er mikill fengur fyrir lít-
ið bæjarfélag eins og Grundarfjörð
að hafa gestavinnustofu sem tekur
á móti alþjóðlegum listamönnum.
Listamaður staðarins, hann Lúð-
vík Karlsson, segir það mikilvægt
að fá tækifæri til að hitta aðra lista-
menn og ná spjalli og að spegla sig
í því sem aðrir eru að gera. Lista-
mennirnir setja svip sinn á bæjarlíf-
ið og vekja forvitni fólks á því hvað-
an þeir koma og hvað þeir eru að
sýsla,“ segir í tilkynningu frá Ar-
tak350.
Alix opnaði dyrnar á gestavinnu-
stofunni síðastliðinn mánudag. Þar
sýnir hún þau verk sem hún hefur
málað í Grundarfirði síðastliðnar
vikur og mánuði. „spennandi og
falleg sýning, margir gætu séð fólk
sem það þekkir eða kannast við eða
jafnvel sjálft sig á striganum. All-
ir eru hjartanlega velkomnir. Far-
ið verður í einu og öllu eftir sótt-
varnarlögum,“ segir í tilkynningu.
Alix sýnir þar stórt verk og marg-
ar skissur, portrettmyndir og lands-
lagsmálverk sem unnin eru úti sem
og olíu- eða akrýlmálverk á striga
unnin á vinnustofunni. mm
Alix að störfum.
Opin vinnustofa í
Grundarfirði
Á myndinni má
sjá Alix mála
portrett af Liston
bæjarlistamanni í
Grundarfirði.
Eitt af verkum Alix Philippe frá Grundarfirði.