Skessuhorn - 16.12.2020, Side 67
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 67
Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru
ófullnægjandi á mörgum heimilum
og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir
eldsvoðum. Hættan er mest þegar
líður að jólum, þegar skreytingum
fjölgar. svo um sjálfar hátíðirnar
þarf að passa upp á enn fleira, svo
sem raforkunotkun, ástand reyk-
skynjara, logandi kerti og margt
fleira.
Í ljósi þess að nú gengur í garð
sá árstími þar sem hætta er á elds-
voðum af völdum kertaljósa og
jólaskreytinga hefur bjarni K. Þor-
steinsson slökkviliðsstjóri í bor-
garbyggð tekið saman lista með
atriðum sem nauðsynlegt er að
hafa í huga um hátíðirnar. bjar-
ni tekur fram að hann mælir fyrir
hönd allra slökkviliða í landshluta-
num, sömu heilræða eiga allsstaðar
við. Ábendingar bjarna fylgja hér á
eftir.
Lágmarkseldvarnir á
heimilum eru:
Virkir reykskynjarar, tveir eða •
fleiri.
Léttvatns- eða duftslökkvitæki •
við helstu flóttaleið.
eldvarnateppi á sýnilegum stað í •
eldhúsi.
Gætum varúðar um
jól og áramót
Reykskynjarar eru sjálfsögð og •
ódýr líftrygging, skipta skal um
reykskynjara á tíu ára fresti. Og
rafhlöður í byrjun desember ár
hvert eða oftar ef þörf er á.
Átt þú handslökkvitæki? er það •
í lagi? Hvenær var það síðast yf-
irfarið?.
slökkvitæki á að vera á sýnilegum •
stað, ekki í felum inni í skáp!
Ofhlöðum ekki fjöltengi og gæt-•
um að gömlum og lélegum raf-
búnaði.
Notum ávalt viðurkenndar raf-•
vörur og fjöltengi með slökkvara
og gaumljósi.
eldvarnateppi skal vera í hverju •
eldhúsi og á aðgengilegum og
sýnilegum stað.
Gerum flóttaáætlun úr íbúð-•
inni vegna eldsvoða með öllum
á heimilinu og æfum hana reglu-
lega. Tvær greiðar flóttaleiðir úr
hverri íbúð!
Gætum varúðar í umgengni við •
kertaljós og skreytingar, skilj-
um börn aldrei eftir eftirlitslaus
nærri logandi kertum eða eldi.
Aðgætum íbúðir okkar áður en •
gengið er til hvílu, eða þær eru
yfirgefnar að degi til, hvort nokk-
ursstaðar logi á kerti eða skreyt-
ingum.
Logandi kertaljós séu aldrei höfð •
í gluggum vegna dragsúgs og
lausra gardína.
Dreifið sem mest raforkunotk-•
un við matseld um jól og áramót.
Það kemur í veg fyrir hugsan-
leg óþægindi vegna mikils álags á
dreifikerfi rafmagns.
Ullar- eða leðurvettlingar á •
höndum og öryggisgleraugu á öll
nef við meðferð flugelda um ára-
mót.
Munum 112 Neyðarlínuna ef •
slys, veikindi eða eldsvoða ber að
höndum.
• mm
Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna
og slysahættu um hátíðarnar
Starfsfólk og sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar sendir íbúum
og landsmönnum öllum hugheilar
jóla- og nýárskveðjur með
þökkum fyrir ánægjulegt
samstarf á líðandi ári
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9