Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2020, Síða 68

Skessuhorn - 16.12.2020, Síða 68
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202068 „Ég hef alltaf verið mjög félagslynd. Ég mætti á minn fyrsta skátafund níu ára gömul fyrir tilstilli Fríðu frænku, eða Málfríðar Þorvalds- dóttur föðursystur minnar, sem var skátaforingi í skátafélagi Akraness til fjölda ára,“ segir sigríður ei- ríksdóttir í samtali við skessuhorn. Hún hefur ásamt því að vera virk í félagsmálum lagt ýmsum góðum málum lið, eins og Hollvinasam- tökum Heilbrigðisstofnunar Vest- urlands, í gegnum tíðina auk þess að starfa í Félagi eldri borgara á Akra- nesi. Hún var í hópi fyrstu skipti- nema sem fór til bandaríkjanna frá Íslandi og kynntist þar meðal ann- ars lífi Amish fólks í Pennsylvan- íu, sem er grein af trúarhreyfingu mannonita sem stunda landbúnað og lifa einföldu lífi og klæðast fatn- aði sem fólk klæddist í evrópu á 17. og 18 öld. Hún rak ásamt eigin- manni sínum fyrirtækið Vignir G. Jónsson ehf. sem er öflugt fyrirtæki í lagmeti og eitt farsælasta fyrirtæki landsins í hrognavinnslu. sigríður hefur haft ánægju af að ferðast og segir okkur í stuttu spjalli frá sín- um áhugaverðustu stöðum sem hún hefur komið til. Virk í skátum „Ég hef allar götur síðan ég var níu ára starfað innan skátafélags Akra- ness en þó með hléum því ég bjó er- lendis um tíma og fór út sem skipti- nemi í eitt ár. en í dag er ég virk í starfi svannasveitarinnar, sem er félagsskapur eldri skáta á Akranesi, en þar eru um 90 konur starfandi í góðum félagsskap. skátastarfið hefur alla tíð gefið mér mjög mik- ið og margar dýrmætar minningar úr starfinu og frá skátamótum víðs vegar um landið að ógleymdum botnsdalsmótunum sem skátafé- lag Akraness hélt inn í Hvalfirði um árabil. „Ég hef verið svo hepp- in að að hafa létta lund og það hef- ur verið mér farsælt í gegnum líf- ið. „sól úti, sól inni, sól í hjarta og sól í sinni,“ syngjum við oft saman á skátafundum. Hugsa ég oft um þessar ljóðlínur úr þessum kveð- skap þegar ég hef átt skemmtilegar stundir í félagsstarfi og getað látið gott af mér leiða á öðrum vettvangi. Þrátt fyrir allt eru það við sjálf sem gerum okkur hamingjusöm og að læra að njóta líðandi stundar. Það er undir okkur sjálfum komið hvern- ig við tökum á þeim verkefnum og uppákomum sem verða á vegi okk- ar. Þess vegna tel ég svo mikilvægt öllum að taka þátt í félagsstarfi sem fellur að hverjum og einum og dreg ekki úr mikilvægi þess að rækta góð vinasambönd.“ Í sama saumaklúbbi frá 12 ára aldri „Varðandi vinasamböndin er gam- an að segja frá því að við vorum tíu vinkonur og bekkjarfélagar úr 1944 árganginum sem höfum verið saman í saumaklúbbi síðan við vor- um 12 ára gamlar. Á fyrstu árun- um varð saumaklúbburinn að heita eitthvað og var skólabróðir okkar, Guðjón heitinn bergþórsson, ekki lengi að finna nafn á klúbbinn sem honum fannst viðeigandi, en það var „Tíu á tali.“ Við vinkonurn- ar í saumaklúbbnum höfum haldið vel hópinn og ferðast saman innan- lands sem utan og gert okkur eitt og annað til skemmtunar. Þá er ár- gangurinn allur mjög samhentur og hittist nú árlega í seinni tíð og við förum í dagsferð saman. Auk þess hef ég lengi tengst góðum vinahópi þar sem við hittumst og syngjum og borðum sama og höfum við einnig ferðast mikið.“ Fjölbreytt starf í FEBAN sigríður er í stjórn Hollvinasamtaka HVe og virk í starfi eldri borgara á Akranesi. Hún segir það afar gef- andi að vera í stjórn hollvinasam- takanna. „Það er virkilega ánægju- legt að sjá og finna allan þann hlý- hug sem er til Hollvinafélags HVe, en þann hlýhug sýna bæði félaga- samtök og einstaklingar á Vestur- landi. Afrakstur þess er m.a. full- komið sneiðmyndatæki sem búið er að kaupa og fjölmörg ný sjúkra- rúm.“ sigríður viðurkennir að hún hafi verið ein af þeim sem í fyrstu hafi sýnt starfi eldri borgara á Akranesi lítinn áhuga þegar hún sjálf náði eftirlaunaaldri. „Ég var alltof ung fyrir þann félagsskap, að eigin mati. en ég lét síðan tilleiðast að fara á línudansæfingar hjá félaginu og fór svo á mót með línudanshópnum sem haldið var á Kanaríeyjum. eftir þá ferð sá ég loksins hversu ánægju- legt þetta var og fólkið lífsglatt og skemmtilegt sem var í þessu. Ég hvet því alla þegar þeir komast á eftirlaunaaldur að kynna sér starf- semi FebAN. Ég get fullyrt að þar finna allir eitthvað við sitt hæfi og ekki er verra að koma inn í starf- semi félagsins fyrr en seinna. starf- andi er kór, bókaklúbbur, spila- klúbbur, pútt, boccia og gönguhóp- ur og leikfimi undir frábærri stjórn Önnu bjarnadóttur svo eitthvað sé nefnt. Nú styttist í að starfsemi FebAN færist í nýtt og glæsilegt húsnæði að Dalbraut 4 á Akranesi og verð ég að hrósa stjórnendum Akraneskaupstaðar fyrir það hversu vel þeir hafa staðið að uppbygg- ingu á aðstöðu fyrir eldri borgara á Akranesi.“ Var í hópi fyrstu skiptinema Árið 1962 var sigríður ein í hópi þeirra fyrstu sem fóru erlendis sem skiptinemar á vegum Þjóðkirkjunn- ar. „Þetta var heilmikið ævintýri að fara sem skiptinemi til bandaríkj- anna á þessum tíma. Mig minnir að hópurinn sem ég fór með hafi verið annar hópurinn sem fór til banda- ríkjanna sem skiptinemar. Fljót- lega eftir að ég fékk það staðfest að ég kæmist til dvalar sem skipti- nemi hafði Páll Gíslason skátafor- ingi á Akranesi samband við mig og bauð mér að fara á skátamót í Finn- landi. Ég var lengi á báðum áttum og var að hugsa um að hætta við að fara sem skiptinemi. en sem bet- ur fer ákvað ég að láta slag standa og fór til Pennsylvaníu þar sem ég dvaldist í Leola sem er í Lancas- ter County. bara það eitt að fljúga til bandaríkjanna var ævintýri út af fyrir sig. Flugvélin fór frá Reykja- víkurflugvelli og lenti síðan í Kefla- vík til þess að taka eldsneyti og aft- ur var millilent á Nýfundnalandi til að taka eldsneyti að nýju eftir flug- ið yfir Atlantshafið áður en lent var í New York. Ég var síðan afskap- lega heppin með fjölskylduna sem ég dvaldi hjá og reyndist hún mér vel.“ Meðal Amish fólks Í Lancaster County er ein fjöl- mennasta byggð Amish fólks í bandaríkjunum. „Við bjuggum eig- inlega úti í sveit fyrir utan borgina Lancaster og var Amish fjölskylda sem bjó á býli við hliðina þar sem ég bjó. Fjölskyldan mín átti vini meðal Amish fólksins og kynnt- ist ég því í gegnum þau. ein þeirra kom ásamt dóttur sinni og heim- sótti mig á Akranes í sinni einu ut- anlandsferð um ævina og þurfti að fá sérstakt leyfi til þess að fljúga til Íslands þar sem trúarhefð Amish fólksins leyfði því ekki að fljúga.“ Það var algerlega nýr heimur sem blasti við ungu stúlkunni frá Akra- nesi þegar hún kom til bandaríkj- anna. „Ég man eftir því að það voru sóttir ferskir ávextir út í garð og heimalagaðar niðursoðnar ferskj- ur voru á boðstólum. Ég gekk að sjálfsögðu í skátanna ytra. Það voru fundir reglulega og einnig fórum við einu sinni í viku og aðstoðuðum á heimili fyrir fjölfötluð börn. Ég fór þarna í framhaldsskóla, High school, sem hét Connestoga Valley og var þar á lokaári og útskrifaðist þaðan með jafnöldrum mínum. Ég hef síðan haldið góðu sambandi við fjölskylduna og afkomendur þeirra og einnig við vini sem ég eignað- ist og hafa nokkrir þeirra komið og heimsótt mig til Íslands.“ „Mikilvægt öllum að taka þátt í félags- starfi og rækta góð vinasambönd Spjallað við Sigríði Eiríksdóttir á Akranesi sem í dag nýtur efri áranna Sigríður Eiríksdóttir. Hjónin ásamt vinahópi í ferð við Taj Mahal á Indlandi. Frá vinstri: Rósa Halldórs- dóttir, Sigríður Eiríksdóttir, Valdimar Lárusson, Vignir G. Jónsson, Nína Áslaug Stefánsdóttir og Daníel Daníelsson. Eiríkur sonur Sigríðar ásamt fjölskyldu sinni. Katrín Björk, Vignir Gísli, Ólöf Linda Ólafsdóttir eiginkona Eiríks og Eiríkur Hilmar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.