Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2020, Side 78

Skessuhorn - 16.12.2020, Side 78
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202078 Það má kannski segja að þau hafi verið nokkrir flakkarar í sér, hjón- in Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Gunnar Jökull Karlsson í Grund- arfirði. Áður en þau settust að í bænum höfðu þau búið á selfossi, Danmörku, bifröst og aftur á sel- fossi. en þeim finnst gott að búa í Grundarfirði sem þau segja að tek- ið hafi vel á móti sér og sínum en samtals eiga þau fimm börn, þrjá ketti og einn hund. Tekið var hús á þeim hjónum sem þrátt fyrir ann- ir við málningarvinnu í eldhúsinu, gáfu sér tíma til að ræða fjölbreytt líf og skemmtilega tilveru. Nám og ævintýramennska Við hefjum samtalið á árinu 2010 þegar þau hjón rugla saman reitum og fara að búa saman á selfossi en ákveða síðan að taka vinkilbeygju og fara til náms eða starfa í Dan- mörku og þar með að prófa að búa í útlöndum. Þau höfðu kynnt sér málin, komin með húsnæði og vitn- eskju um að Danir væru ekkert sér- staklega harðir á því að nemendur væru með stúdentspróf, en annað kom á daginn segir Guðrún Lilja. „Það hafði kitlað okkur að prófa að búa í öðru landi, en þegar við kom- um út var orðin breytt staða. Meiri aðsókn var í nám en fyrr svo regl- urnar höfðu verið hertar. Og þeir skólar sem við hefðum getað innrit- ast í buðu upp á nám sem við hefð- um ekki fengið metið hér heima. Við fórum því bara að vinna sem líka var allt í lagi. en dvölin varð styttri en við ætluðum í upphafi. Pabbi lést í september þetta ár og mér fannst gríðarlega erfitt að vera ekki heima með mömmu þegar áfallið dundi yfir. börnin voru ekki heldur alveg sátt þannig að dvöl- in í Danmörku varð endaslepp, við bjuggum þar aðeins í ár. Hins vegar komumst við inn í Háskólagáttina í bifröst árið eftir og fluttum þangað í því augnamiði að mennta okkur, sem við og gerðum.“ Bifröst-Selfoss er prófi í Háskólagáttinni var lok- ið, þurfti að taka ákvörðun um hvað svo. Átti að búa áfram í borgarfirð- inum eða fara aftur heim á selfoss. Þegar mál voru skoðuð, möguleikar vegnir og metnir var sammælst um að flytja aftur á selfoss og stunda fjarnám. „Við höfðum lent í nokkr- um hremmingum fyrsta árið okk- ar á bifröst,“ segir Guðrún Lilja og heldur áfram. „Leigjandinn að hús- inu okkar á selfossi gekk bara út sí- svona svo við vorum tekjulaus um tíma áður en nýr leigjandi fannst. börnin voru ekki alveg nógu sátt í borgarfirðinum, okkar vin- ir og samstarfsfólk í skólanum var flest að flytja í burtu svo við mát- um hlutina þannig að best væri að fara bara aftur. Fjarnámið gekk al- veg ágætlega en við kláruðum ekki bs-gráðuna okkar, eigum bæði að- eins eftir ritgerðina. Það er nú að mörgu leyti fúlt, en höfum ákveð- ið að láta það ekki trufla okkur í bili. Það voru bara ýmsar aðstæður sem ollu því að við gátum ekki klár- að, kannski ekki síst skortur á fjár- magni, en það kemur að því,“ segir hún brosandi. Flutt í Grundarfjörð en af hverju Grundarfjörður spyr blaðamaður og uppsker skellihlát- ur frá þeim hjónum. Guðrún Lilja verður fyrir svörum og segir að á þessum tíma hafi þau verið kom- in aftur á selfoss, eins og fyrr seg- ir. erfitt hafi verið um vinnu svo Gunnar hafi á endanum fengið vinnu í Ólafsvík. „Það gekk alveg um tíma að vera í fjarbúð, en þar sem við höfðum prófað það áður, vorum við samt orðin leið á því. Ég var einnig bara með hlutastarf á selfossi, þess utan sem börnin sem þá voru heima, voru ekki vel sátt í skólanum og fundu sig illa í félags- lífinu. Gunnar fékk því þá flugu í höfuðið að ég myndi athuga með vinnu nærri Ólafsvík. Á heima- síðu Grundarfjarðarbæjar var aug- lýst eftir starfsmanni á leikskóla. Ég sótti um og var komin með vinnu þar næsta morgun. Þá var að athuga með húsnæði sem einnig reyndist til reiðu. svo á tveimur dögum var ég bæði komin með vinnu og húsnæði án þess að hafa nokkurn tímann komið í Grundarfjörð. Við skrupp- um hingað með börnin til að sýna þeim umhverfið og kanna þeirra hug. Þau keyptu hugmyndina þegar þau sáu þessa flottu aparólu á leik- svæði skólans auk þess sem þar er brekka til að renna sér í. Þetta var í júlí 2015 og í ágúst fluttum við.“ Þau bæta við að þeim finnist fólk- ið opið og skemmtilegt, það sé alla vega þeirra reynsla. Íbúar eru til- búnir að hlusta á nýjar hugmyndir og þau velta fyrir sér hvort viðmót- ið sé arfleið frá fyrri tíma. Grund- arfjörður er jú fyrst og fremst sjáv- arpláss og bæjarbúar vanir að taka á móti nýju fólki þegar verkamenn streymdu að til að vinna í fiski. Fall er fararheill Reyndar byrjaði vera þeirra í Grundarfirði ekki nógu vel. eins og áður segir voru þau í leiguhús- næði. einn dag þegar Gunnar sefur á efri hæðinni eftir næturvakt heyr- ir hann umgang niðri í stofunni. „Ég rauk niður til að vita hvað væri um að vera. Þar stendur sýslumað- ur í fullum skrúða og er að bjóða húsnæðið upp. Við vorum ekki með þinglýstan leigusamning svo hann hafði enga hugmynd um að það væru íbúar í húsinu. Þetta var eig- inlega svolítið vandræðalegt,“ seg- ir Gunnar og glottir. „Í ljós kom að eigendur höfðu ekkert greitt af húsinu svo því var þessi staða kom- inn upp. sem betur fer tókst okk- ur fljótlega að finna annað húsnæði til leigu, þar sem við búum núna og erum afar sátt, fluttum hingað inn árið 2016,“ segir hann brosandi. Gaurar fá að vera gaurar börnin eru alveg himinsæl í þessu umhverfi, segja þau hjón. Hafa hreinlega blómstrað. Nú er son- urinn einn eftir heima því dótt- irin er komin í framhaldsskóla í höfuðborginni. eldri dætur Guð- rúnar Lilju eru báðar að klára há- skólanám, sú elsta í svíþjóð en sú næstelsta í Háskóla Íslands. Gunn- ar segir alvarlegur að stráksa finn- ist svo gott að búa í Grundarfirði að hann hafi tekið af þeim loforð að flytja ekki fyrr en grunnskólagöngu hans væri lokið og bætir við að það sé kannski ekki síst vegna þess að gaurar fái að vera gaurar. „Dreng- urinn er ekkert mesta ljósið í bæn- um, ef svo má að orði komast, og er þar í hópi margra jafningja. en þeir fá að vera gaurar, eru ekki stimpl- aðir fyrir að vera fyrirferðamikl- ir. Hann er á fimmtánda ári. Hefur smávegis vinnu með skóla, m.a. fer hann með ruslabílnum einu sinni í viku sem honum finnst meirihátt- ar. Ég held að það sé bara í minni plássum sem þessum að ungling- ar geta enn stundað svona vinnu, en auðvitað allt innan þeirra marka sem þeir ráða við. Hér á bæ eru allir sáttir við þetta fyrirkomulag.“ Allir fá vinnu sem vilja vinna „Það hefur aldrei verið eins mik- ið að gera hjá okkur og eftir að við fluttum hingað,“ segir Guðrún Lilja aðspurð um atvinnu og af- komu. „Hér fá eiginlega allir sem vilja atvinnu. Til marks um það þá hefur, eftir að við fluttum hingað, alltaf dottið inn á okkar borð ein- hver atvinna, hafi okkur skort hana. en það er ekki bara vinnan það er líka félagslífið sem nóg framboð er af. Gunnar hefur reyndar ekki haft mikinn tíma í félagslíf eða tóm- stundir því hann sækir Morgun- blaðið í borgarnes á nóttunni sem er hans fasta atvinna og starfar í af- leysingum á Kvíabryggju, starf sem honum líkar gríðarlega vel. Hann hefur raunar lent í hremmingum í þessum Moggaferðum. „eitt sinn vaknaði ég á aðfangadagsmorgun og hann var ekki kominn heim. Þar sem ég átti svipaða minningu um þegar pabbi týndist, á Þorláksmessu fyrir mögum árum, varð mér ekki um sel. Hringdi út um allt.“ Gunn- ar glottir yfir orðum konu sinn- ar og segir í rólegheitum að færð- in hafi verið frekar slæm og svo hafi þurft að bíða eftir blaðinu í borg- arnesi. „en ég skilaði mér heim og það var nú aðal atriðið.“ Guð- rún Lilja tekur upp þráðinn að nýju og segist vera hætt í leikskólanum. „Ég starfa nú við skólabókasafn- ið í grunnskólanum fyrir hádegi. Það er minn fasti póll í atvinnutil- verunni og stekk síðan inn í auka- vinnu í apótekinu ef vantar. Það er alveg prýðileg ráðstöfun og ég gæti jafnvel hugsað mér að læra bóka- safnsfræði einhvern tímann, en við sjáum nú til með það. svo má ekki gleyma spinningkennslunni í Lík- amsræktinni, en nú á tímum Covid tökum við tímana upp og leigjum út hjólin svo fólk geti stunda sína hreyfingu í þessu skrítna ástandi.“ Félagslífið er gríðarlega gefandi Fyrir tæpum fimm árum stofnaði Guðrún Lilja ásamt tveimur öðr- um konum leshóp sem síðan hefur vaxið og dafnað og telur nú fimm- tán konur. síðustu tvö sumur hef- ur þessi hópur starfrækt bókamark- að sem er opinn allar helgar frá júlí til ágústloka. en frá markaðn- um koma inn tekjur sem helst hefur verið varið til lestarhvetjandi verk- efna í grunnskólanum. „Við gáfum sem dæmi farandgrip sem sá nem- andi hlýtur ár hvert sem mest hefur bætt sig í lestri. einnig ætlum við að styrkja foreldrafélagið í grunn- skólanum þar sem fá tækifæri hafa gefist til að fjáraflana hjá félaginu sökum Covid. en við gerum ýmis- legt fleira. Við lásum nokkrar bæk- ur fyrir gamla fólkið í vor í mesta covid-faraldrinum, og streymdum því beint. Leshópurinn hittist svo einu sinni í mánuði yfir vetrartím- „Grundfirðingar taka vel á móti nýjum íbúum“ -segja hjónin Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Gunnar Jökull Karlsson Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Gunnar Jökull Karlsson á heimili sínu í Grundarfirði. Á kosningavöku með Guðna Th. Jóhannessyni fyrir fjórum árum. Lagt af stað að sækja Morgunblaðið í Borgarnes, Gunnar Jökull og Aron Ingi Þráinsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.