Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2020, Page 97

Skessuhorn - 16.12.2020, Page 97
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 97 Guðrún Fjeldsted frá Ölvaldsstöð- um í borgarhreppi er vel kunnug skötuveislunni á Hundastapa og er hún ein þeirra sem passar sig á að taka daginn frá á Þorláksmessu til að mæta í veisluna. síðustu ellefu ár hefur hún mætt galvösk til Agnes- ar og Dóra full tilhlökkunar „Þetta er mikið tilhlökkunarefni allt árið. stemningin í veislunni er einstök og móttökurnar engu líkar. Þarna hittir maður Dalamenn, unga og aldna, borgfirska bændur auk eg- ilsættarinnar og fleira áhugavert fólk sem gaman er að spjalla við um lífið og tilveruna á meðan maður ryður í sig skötunni, hamsatólginu, kartöflunum og ekki síst nýbakaða rúgbrauðinu frá húsfreyjunni. Tala nú ekki um brennivínið sem bætir og kætir! en nú verða aldeilis sorg- leg jól hjá mér,” segir Guðrún döp- ur í bragði þar sem útlit er fyrir að engin skötuveisla verði í ár út af dá- litlu. Þekkir hjónin vel Guðrún hefur þekkt húsfreyjuna á Hundastapa, hana Agnesi, alveg frá því hún var í skóla með syni henn- ar sigga í barnaskóla á Varmalandi. „Dóri og siggi hafa verið vinir í gegnum árin, báðir miklir áhuga- menn um tæki og bíla. Það er allt- af gaman þegar Dóri og strákarn- ir koma í heimsókn. Þá fara fram líflegar umræður um nýjustu trak- tora, vörubíla og rútur. Þá eru ekki síðri umræður heldur en þeg- ar hestamenn ræða sín mál,“ bæt- ir hún við en Guðrún rekur með- al annars reiðskóla á bænum sín- um fyrir börn og unglinga yfir sumartímann. „Núna verður mað- ur að láta sig dreyma um að kom- ast í skötuveislu á næsta ári og ylja sér við gamlar minningar frá fyrri veislum.“ Minnir á skerpikjötveislu skötuveislan á Hundastapa er orð- in að rótgróinni hefð hjá Guðrúnu og hennar fólki og er árið nánast skipulagt í kringum þennan árlega viðburð. „Þetta er orðinn fastur punktur hjá minni fjölskyldu. Þessi hefð minnir mig mikið á skerpi- kjötveislur sem ég hef upplifað í Færeyjum. Þvílík er gestrisnin á Hundastaða enda er húsfreyjan hálf færeysk,“ segir Guðrún og blaða- maður forvitnast umhvort einhver veislan hafi staðið upp úr frekar en aðrar. „Fyrsta skiptið sem ég fór í skötuveisluna þá hreinlega borðaði ég yfir mig og var á leiðinni heim. Þá bar Agnes fram þvílíkar hnall- þórur. Það var ekki hægt að neita að smakka þær! Ég var varla búin að jafna mig á yfiráti á aðfangadag,“ segir hún létt í lund. Guðrún gefur skötunni hjá Agnesi og Dóra hæstu mögulegu einkunn. „Alltaf passlega kæst og söltuð. ekki spillir að hafa nýbakað rúgbrauð eftir Agnesi og smjöri,“ segir hún dreymin að end- ingu. glh. Á tímum atvinnuleysis og samdrátt- ar er mikilvægt að hvetja fyrirtæki til framþróunar og arðbærra fjár- festinga. samfélagið þarf á virkri at- vinnuþróun, fjölgun starfa og verð- mætasköpun að halda. Aðstæður kalla á að stjórnvöld fari í aðgerðir sem styrkja atvinnulífið í bráð og lengd. Auk hvata og stuðnings við nýsköpun þarf aðgerðir til að halda atvinnulíf- inu gangandi, koma í veg fyrir stöðn- un, skapa nýjar tekjur og störf hratt. Þingmenn Framsóknarflokks- ins hafa þess vegna lagt fram tillögu um ríkisábyrgð á viðspyrnulán til at- vinnuþróunar. Í tillögunni er lögð áhersla á að veita allt að 200 milljón kr. ábyrgð á lán til fjölbreyttra at- vinnuþróunarverkefna hjá ólíkum aðilum. Ríkisábyrgð yrði veitt fyrir allt að 70% lánsfjárhæðar samkvæmt nánari útfærslu. Til að aðgerðin hafi marktæk áhrif við að örva útlán til at- vinnusköpunar þarf heildarupphæð lána sem njóta ríkisábyrgðar nema að lágmarki 10 – 15 milljörðum króna. Betur má ef duga skal Ríkisstjórnin hefur nú þegar bætt verulega í fjárveitingar til nýsköpun- ar og unnið er að endurskipulagningu nýsköpunarumhverfisins. stjórn- völd hafa þegar farið í ýmsar mikil- vægar aðgerðir til að viðhalda fyrir- tækjum og verkefnum, almennar að- gerðir á borð við frestun gjalddaga, stuðningslán með ríkisábyrgð, tekju- fallsstyrki og viðspyrnustyrki og stór- aukið framlög til nýsköpunar. Þrátt fyrir ofangreindar aðgerðir er þörf á almennari hvötum til tekju- og at- vinnusköpunar sem komast hratt til framkvæmda. Tillögunni er ætlað að bregðast við vísbendingum um að niðursveiflan í hagkerfinu magnist vegna þess að fyrirtæki hafi ekki aðgang að láns- fjármagni fyrir góð og arðbær verk- efni. Með aðgerð af þessu tagi gætu stjórnvöld gefið skýr skilaboð um að framtíðin á Íslandi sé björt og stigið nauðsynlegt skref til að örva atvinnu- lífið, draga úr atvinnuleysi og glæða hagkerfið. Atvinnuþróun skapar verðmæti Hvatinn sem felst í ríkisábyrgðum ætti að geta nýst fyrirtækjum af öll- um stærðum og gerðum þó verk- efnin sem ráðist verður í verði flest lítil og meðalstór. Þetta eru verkefni sem lánveitendur teldu vænlegan fjár- festingarkost í hefðbundnu árferði en gjalda nú fyrir óvissuna. Íslenskt sam- félag hefur ekki efni á að bíða eft- ir að faraldurinn líði hjá heldur þarf framþróun og nýting tækifæra að halda áfram. Aðgerðinni er ekki ætlað að raska samkeppni heldur styðja við þróun og uppbyggingu í sem flestum greinum sem geta skapað verðmæti og gjaldeyristekjur fyrir samfélagið. Má þar nefna iðnað, skapandi grein- ar, þróun umhverfislausna, landbún- að, fiskeldi, kvikmyndagerð, sjávar- útveg og afleiddan tæknigeira, heil- brigðisþjónustu og lyfjaiðnað, auð- lindanýtingu o.fl. Þingmenn Framsóknarflokksins hafa lagt fram fleiri mál til eflingar at- vinnulífsins, s.s. endurskoðun á laga- umhverfi fyrir smávirkjanir, breyt- ingu á búvörulögum til að heimila samstarf afurðastöðva í kjötiðnaði, aðgerðaáætlun um nýtingu þörunga, tillögu um mótun efnahagslega hvata til að efla ræktun orkujurta á Íslandi og tillögu um mótun klasastefnu sem nú er komin í vinnslu. eitt er víst að Íslendingar hafa dugnað, þekkingu og þor en við þurfum að tryggja fjár- magn til atvinnuuppbyggingar. Áfram veginn. Halla Signý Kristjánsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir Höf. eru þingmenn Framsóknar- flokksins Að þeir sem eldri eru séu að kvarta undan ungu kynslóðinni er ekk- ert nýtt, í raun er þetta eldgöm- ul hefð sem nær langt aftur í ald- ir. elsta skráða heimildin sem ég hef séð er þegar Aristóteles er að kvarta undan þeim ungu fyrir um það bil 2400 árum síðan - en mig grunar að kvartað hafi verið und- an þeim ungu í babýlon, við smíði pýramídans í Giza og jafnvel með orgum og óhljóðum mannapa til forna. Ég ætla hinsvegar ekki að kvarta undan ungu kynslóðinni hér í þessum pistli - þvert á móti vil ég segja ykkur frá því hvað unga fólk- ið kom mér gleðilega á óvart í síð- ustu viku. Í 28 ár hefur það tíðkast í borgar- nesi að í desember fái grunnskóla- krakkar að setja upp og sjá um jóla- útvarp Óðals FM 101,3. Ég man hvað ég var ótrúlega spenntur að fá að taka þátt í þessu sem barn og unglingur, sérstaklega man ég eftir andvökunóttunum þar sem ég var að hugsa um hvernig handrit við ættum að skrifa og hvaða tónlist við mættum velja. Að vísu valdi ég að tala um geimverursamsæri og að spila suður-ameríska panflaututón- list, en við þurfum ekkert að fara dýpra í það. Það sem skiptir máli í þessu er að þetta er frábært verkefni í útvarpinu. Þetta gefur ungmenn- um tækifæri til að koma hugsunum sínum niður á blað sem og að æfa sjálfstraustið og framsögu með því að deila þessu með hlustendum. Frá því í haust hef ég verið svo heppinn að fá að vinna í Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit og í 301 Félags- miðstöðinni í Heiðarskóla. Út af Covid hefur því miður mörgu ver- ið frestað eða aflýst fyrir blessuðu ungmennin, og mér hefur fundist það voða leitt að útskýra af hverju ekki er hægt að halda ball eða fara í ferð, eitthvað sem var bara sjálf- sagður hlutur í minningum okkar sem eldri eru þegar við hugsum til baka til þessara „bestu ára“ í gaggó. Ég var þess vegna voða glaður þeg- ar Kristín Valgarðsdóttir í Grunn- skólanum í borgarnesi bauð ung- mennunum okkar á miðstigi og unglingastigi að vera með í útvarp- inu þetta árið. Í borgarnesi byrja krakkarn- ir venjulega að skrifa handrit sem hluta af íslenskuáfanga í nóvember og æfa sig vel áður en útvarpið byrj- ar í desember, en við vorum með aðeins styttri fyrirvara. Þau hérna í Heiðarskóla fengu að vita af þessu á föstudegi og á mánudegi og þriðju- degi áttum þau að vera tilbúin að fara í upptökur. Út af covid var skiljanlega ekki hægt að fara í beina útsendingu í borgarnesi. Það voru auðvitað ekki allir sem vildu vera með, en samt þónokkuð af brosandi andlitum sem voru alveg staðráðin í að vera tilbúin eftir helgina. eftir skólatíma á mánudegi var ég mættur með hljóðnema og aðr- ar upptökugræjur og búinn að setja upp heimagert hljóðver í hann- yrðastofunni í Heiðarskóla. Það hafði ekki verið tækifæri til að lesa yfir handritin þannig að ég vissi ekkert hvaða efni þau höfðu valið fyrir þættina sína. Ég fór bara yfir svona almennar kurteisisreglur og sagði að það væri alveg eðlilegt að finna fyrir spenningi og galsa, og ef eitthvað færi úrskeiðis þá gæti ég klippt þetta til áður en við sendum þetta í útvarpið. Við byrjuðum að taka upp og ég varð alveg gáttað- ur, þessir dásamlegu krakkar komu mér svo á óvart. skemmtilegar pælingar um jól- in og lífið komu upp, en svo komu hugleiðingar um trú, fíkn, þung- lyndi, einelti, sjálfsmyndir, kyn- vitund og jafnrétti. Allt þetta ein- kenndist af virðingu gagnvart hvort öðru og einlægri beiðni um að við reynum að sýna hvort öðru skiln- ing. Ég varð bara alveg orðlaus. Þarna var ég tilbúinn að taka upp eitthvað léttmeti og klippa inn ein- hver jólalög, en í staðinn var ég bara skælbrosandi og kinkandi kolli yfir öllu því sem kom frá þessum ungu spekingum. Það er kannski hægt að kvarta undan skjánotkuninni og auðvitað glíma sum ungmenni við vandamál og valda okkur áhyggjum - en eitt- hvað eru foreldrar, forráðamenn og skólar að gera rétt. Þegar ung- menni okkar fá tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri þá er alveg magnað að sjá þau taka svona jákvæð og þroskuð efnistök, í stað- inn fyrir geimverusamsæri og pan- flautur. Það er greinilegt að þau hafa hjartað á réttum stað. Kannski ætti að snúa hinu fornkveðna, að ungur nemur og gamall temur, á haus - kannski er kominn tími á að við hlustum og lærum líka af þeim sem yngri eru. Ég held að þrátt fyr- ir erfiða tíma í dag, að ef við bara hlustum og tökum tillit til visku allra kynslóða, þá getur framtíðin okkar verið björt. Geir Konráð Theódórsson Pstiill - Geir Konráð Theódórsson „Alltaf passlega kæst og söltuð“ Heyrt í Guðrúnu Fjeldsted, fastagesti í skötuveislunni á Hundastapa Guðrún Fjeldsted mætir ár hvert í skötuveisluna á Hudastapa. Ljósm. Skessuhorn/hb. Ungur temur, gamall nemur Pennagrein Tillaga um hvatningu til atvinnuþróunar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.