Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 98

Skessuhorn - 16.12.2020, Blaðsíða 98
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202098 Vilhjálmur Arnórsson hefur unn- ið við brúarsmíðar í 15 ár og seg- ist líka það starf mjög vel. Hann er í dag verkstjóri yfir öðrum af tveimur brúarflokkum Vegagerð- arinnar. „Þetta er skemmtileg vinna, maður fær að ferðast um landið og er er alltaf að hitta nýtt fólk. Maður þekkir orðið fólk um allt land og er kominn með mjög gott tengslanet,“ segir Villi þeg- ar blaðamaður skessuhorns ræddi við hann. Villi kemur úr Reyk- hólasveitinni en er í dag búsettur í búðardal ásamt Dagnýju Láru Mikaelsdóttur eiginkonu sinni og þremur börnum þeirra. „búð- ardalur er mjög miðsvæðis fyrir mig, þaðan er stutt í Húnavatns- sýslu, út á snæfellsnes og bara í allar áttir,“ segir Villi. Sótti um í fikti „Ég er yfirleitt í burtu virka daga og kem heim um helgar og annan hvern föstudag. stundum fær mað- ur meiri tíma heima fyrir tölvu- vinnu milli verkefna,“ segir Villi spurður hvernig vinnunni sé hátt- að. „Ég á alveg rosalega þolin- móða konu, sem er mjög mikil- vægt svo þetta gangi upp,“ bæt- ir hann við. en hvernig kom það til að hann fór að vinna við brúar- smíðar? „Þetta var nú bara tilvilj- un. Ég var að vinna á sveitabæjum heima í Reykhólasveit þegar systir mín, sem er búsett á Hvammstanga þaðan sem brúarflokkurinn er gerður út, benti mér á að það væri laust starf hjá Vegagerðinni þar. Hún sagði að þetta væri kjörið fyrir mig, að fá mér loksins alvöru laun- aða vinnu,“ svara Villi og hlær. „Ég sótti bara um í algjöru fikti,“ bætir hann við. Villi fékk þó ekki starfið en nokkrum mánuðum seinna var haft samband við hann og honum boðið annað starf hjá brúarflokkn- um. „Það var hringt á föstudegi og ég spurður hvort ég gæti mætt á mánudegi. Ég sagði bara já og svo var ég sóttur á gulum bíl á mánu- dagsmorgni og við fórum norður á Húsavík og ég hef verið í þessu síð- an,“ segir hann. Erfiðar aðstæður Aðspurður segir Villi mikið hafa verið að gera í brúarsmíði og við- haldi á brúm síðustu ár. „brýr á Ís- landi eru orðnar mjög gamlar og það eru margar sem þurfa nauðsyn- lega viðhald. Það hafa fáar brýr ver- ið byggðar frá hruni og meðalaldur brúa á landinu orðinn hár, ég held hann sé alveg um eða yfir 40 ár,“ segir Villi og bætir við að það taki oft mikinn tíma að sinna viðhaldi við hverja brú. „Ég held að fáir geri sér grein fyrir hversu mikil aðgerð er í kringum þessa vinnu. Þetta eru oft erfiðar aðstæður, við erum mik- ið að vinna í vatni og það fer oft mikill tími bara í að koma okkur fyrir og svo erum við í eilífum slag við vatnið á meðan vinnu stendur. svo er oft kalt, það eru mikil læti og þessu fylgir gjarnan tillitslaus umferð,“ segir Villi en bætir þó við að erfiðar vinnuaðstæður breyti því ekki að vinnan er skemmtileg. Borgarfjarðarbrúin eilífðarverkefni eitt af stærstu verkefnunum sem Villi hefur komið að sem brúar- smiður var viðhald á borgarfjarð- arbrú sem stóð yfir í nokkur ár og lauk árið 2017. „Þetta virtist ætla að verða eilífðarverkefni, sérstaklega þegar við vorum að brjóta yfirborð brúarinnar því þá fundu ökumenn svo vel fyrir vinnunni. Við þurft- um að stýra umferð með ljósum og margir voru þreyttir á þessu,“ seg- ir hann. Aðspurður segir Villi öku- menn heilt yfir frekar tillitsama en þó séu of margir sem beri ekki virðingu fyrir lægri hámarkshraða þegar ekið er framhjá vinnusvæði. „Það er alltaf einn og einn sem læt- ur bara vaða og það getur verið mjög óþægilegt,“ segir hann. „Oft- ast getum við lokað vinnusvæðið af og þá er minni hætta en stundum bjóða aðstæður ekki upp á það. Það eru margir sem mættu aðeins sýna meiri skilning á þessum aðstæð- um,“ segir hann. Frítíma varið í veiðar Þegar Villi er ekki að byggja brýr um landið er hann oftar en ekki úti í móa með byssuna að veiða mink, tófu eða fugla. „Frítíminn á vorin fer eiginlega allur í að þvælast um í leit að mink hér í Dölunum og Reykhólahreppi. Maður tekur al- veg nokkrar vikur í þetta á hverju vori. svo erum við félagi minn sam- an með harðbotna gúmmíbát sem ég hef notað til að fara á veiðar. Ég hef gjarnan farið á bátnum að skjóta skarf og svoleiðis en líka til að fara með krakkana á sjóstöng,“ segir Villi. Aðspurður segir hann minka- og tófuveiðarnar fyrst og fremst hugsjónastarf. „Maður er ekkert að hafa upp úr þessu. Ég hugsa það á hverju ári að fara að hætta en það „Maður fær að ferðast um landið og er er alltaf að hitta nýtt fólk“ segir brúarsmiðurinn og veiðimaðurinn Vilhjálmur Arnórsson í Búðardal Vilhjálmur Arnórsson brúarsmiður og veiðimaður í Búðardal. Ljósm. sm Partur af starfi brúarsmiðs er að berjast við vatnið. Með öryggið á hreinu. Ánægðir krakkar að komast í veiði. Spjallað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.