Skessuhorn - 16.12.2020, Page 103
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 2020 103
Óskum viðskiptavinum og
Vestlendingum öllum gleðilegra
jóla,árs og friðar með þökk
fyrir árið sem er að líða
Sími: 899 6160
Smáprent
Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi
gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og
styðja við aðstandendur. „Rótarý-
klúbbur borgarness telur að for-
varnarstarf sé mikilvægt og mik-
ill ávinningur ef hægt er að bjarga
mannslífum. einnig er hjá Píeta
unnið gott starf þar sem unnið er
að því að hlúa að eftirlifendum.
Rótarý klúbburinn í borgarnesi af-
henti í vikunni Píetasamtökunum
styrk að upphæð 200.000 krónur,“
segir í tilkynningu.
„styrkurinn kemur sér einstak-
lega vel þar sem aðsókn í þjónustu
samtakanna eykst stöðugt. Tæplega
500 viðtöl voru veitt í húsi Píeta í
nóvember þetta árið. samtökin eru
alfarið rekin af styrkjum þar sem
öll okkar þjónusta er gjaldfrjáls. Til
okkar geta leitað allir sem glíma við
sjálfsvígshugsanir og aðstandendur
þeirra. Hjá okkur starfa sálfræð-
ingar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar
og læknar. Við veitum meðferð og
stuðning og leitumst við að vera
til staðar, alltaf. samtökin eru afar
þakklát fyrir þennan styrk,“ segir
Kristín Ólafsdóttir, framkvæmda-
stjóri Píeta.
Píeta samtökin eru sjálfsvígs- og
sjálfskaða forvarnarsamtök staðsett
að baldursgötu 7 í Reykjavík. boð-
ið er upp á viðtöl hjá fagmenntuðu
heilbrigðisstarfsfólki fyrir 18 ára og
eldri sem eru með sjálfsvígshugsan-
ir og/eða sjálfsskaðavanda. einnig
er boðið upp á viðtöl og stuðnings-
hópa fyrir aðstandendur. Öll þjón-
usta samtakanna er endurgjalds-
laus, en vert er að benda á að Píeta
síminn 552-2218 er opinn allan
sólarhringinn. Vefsíða samtakanna
er www.pieta.is, en Píeta samtökin
eru einnig á Instagram og Facebo-
ok undir notendanafninu @pieta-
samtökin.
mm/fréttatilk.
Rótarýklúbbur Borgarness
styrkir Píetasamtökin
Það var mikið fjör að morgni 15.
desember á leikskólanum sólvöll-
um í Grundarfirði. Þá voru hin ár-
legu litlu jól haldin en þó með að-
eins óhefðbundnara sniði. Fögnuð-
urinn var haldinn utandyra að þessu
sinni og voru nemendur leikskól-
ans því klæddir eftir veðri frekar
en í sínu fínasta pússi eins og oftast
áður. Jólasveinninn mætti á forláta
sexhjóli enda dugar ekkert minna
til að komast til byggða. Það ríkti
svo mikil kátína í bland við spennu
þegar sveinki útdeildi gjöfum til
nemenda leikskólans.
tfk Mikil spenna hjá börnunum þegar jólasveinninn las upp nöfnin.
Jólasveinninn heimsótti Sólvelli