Bændablaðið - 24.09.2020, Síða 11
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 11
Fyrir skemmstu var tilkynnt um
hvaða tíu sprotafyrirtæki myndu
verða þátttakendur í viðskipta-
hraðlinum Til sjávar og sveita
– frá hugmynd í hillu – sem
Icelandic Startups hefur umsjón
með. Meira en sjötíu umsóknir
bárust um þátttöku, en í hraðl-
inum eru lagðar áherslur á sjálf-
bærar lausnir í landbúnaði og
sjávarútvegi.
Viðskiptahraðallinn fer nú fram
í annað sinn og stendur næstu tíu
vikurnar og er markmiðið að hraða
vinnsluferlinu frá því að hugmynd
kviknar og þar til vara er komin á
markað.
Hvatt til aukinnar nýsköpunar í
grunnatvinnugreinunum
Í tilkynningu frá Icelandic Startups
kemur fram að með hraðlinum sé
hvatt til aukinnar nýsköpunar í
þessum grunnatvinnugreinum
þjóðarinnar og fá frumkvöðlarnir
aðstoð við að byggja upp næstu
kynslóð fyrirtækja með því að þeim
er veitt fagleg undirstaða og hraða
þróunarferlinu.
„Mikið hefur verið fjallað um
matvælaöryggi í kjölfar kóróna-
veirufaraldursins. Verkefnið er til
þess fallið að efla verðmætasköp-
un og samkeppnishæfni íslenskr-
ar matvælaframleiðslu, enda snýr
stór hluti þeirra verkefna sem valin
hafa verið að framleiðslu og vinnslu
matvæla. Fjölmargar afurðir þeirra
sem tóku þátt í hraðlinum í fyrra
eru nú þegar fáanlegar í helstu
matvöruverslunum hér heima
og sumar erlendis,“ er haft eftir
Salóme Guðmundsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Icelandic Startups.
Undir leiðsögn sérfræðinga
Hraðallinn er unninn í samstarfi við
Íslenska sjávarklasann og er verk-
efnið styrkt af Matarauði Íslands,
Nettó og Landbúnaðarklasanum.
Þau fyrirtæki sem valin eru til
þátttöku fá tækifæri til að vinna að
hugmyndum sínum undir leiðsögn
sérfræðinga með aðgang að breiðu
tengslaneti leiðbeinenda.
„Það er okkur sönn ánægja að
styðja við hraðalinn og hafa versl-
anir okkar reynst frábær stökk-
pallur fyrir þátttakendur. Íslenski
dagvörumarkaðurinn er lítill og
því liggur vel við að koma nýjum
vörum á koppinn og fá skjóta endur-
gjöf frá viðskiptavinum verslana.
Það er eftirsóknarvert að tengjast
háskólaumhverfinu og starfa náið
með frumkvöðlum. Hlutverk og
þátttaka stjórnenda Nettó sem ráð-
gjafar fyrirtækjanna í hraðlinum,
veitir okkur tækifæri til að kynn-
ast verkefnunum og stofnendum
þeirra vel,“ segir Ingibjörg Ásta
Halldórsdóttir, markaðsstjóri Nettó,
um samstarfsverkefnið.
Eftirtalin tíu fyrirtæki
voru valin til þátttöku:
Vegangerðin
Framleiðir matvöru, sem inni-
heldur engar dýraafurðir, úr hrá-
efni í nærumhverfi til að halda
niður kolefnisspori hennar
Ovis Cosmetics
Framleiðir keratín úr hornum og
klaufum sauðfjár og nýtir við
framleiðslu snyrtivara
Broddur
Heilsuskot úr broddmjólk mjólk-
urkúa
Nielsen Restaurant
Framleiðir salatolíur úr vannýtt-
um íslenskum villtum jurtum
HorseDay
Stafræn þjálfunardagbók fyrir
hesta sem styðst við æfingasafn
viðurkenndra þjálfunaraðferða frá
Háskólanum á Hólum
Eylíf
Heilsuvörulína sem samanstendur
af hreinum íslenskum hráefnum
og framleidd á Íslandi með sjálf-
bærum hætti
Jöklavín
Fyrsti íslenski rjómalíkjörinn sem
er framleiddur af megninu til úr
innlendum hráefnum.
Sauðagull
Vinnur matarafurðir úr íslenskri
sauðamjólk
Sælkerar ehf.
Rækta mismunandi tegundir
sveppa og míkrógrænmeti ásamt
því að fara í þróunarvinnu á
byggðarræktun
Marea – Íslenskt lífplast
Notar sjávarþang sem fæst á
Íslandi sem grunnefni í fram-
leiðslu á niðurbrjótanlegum
vörum sem koma í stað einnota
plasts
/smh
Reykir ber með sér
ljúfan birkireykjarilm
og hefur kröugt
eirbragð.
Greir hefur milt bragð
og auelsmjúka áferð
sem er er að standast.
Feykir hefur fengið að
þroskast í 12 mánuði sem
gefur honum einstakt
bragð og áferð.
Reykir Feykir Greir
Tíu sprotafyrirtæki valin inn í viðskiptahraðalinn Til sjávar og sveita:
Heilsuskot úr broddmjólk mjólkurkúa, matarafurðir úr íslenskri
sauðamjólk og salatolíur úr vannýttum íslenskum villtum jurtum
Frá uppskeruhátíðinni á síðasta ári. Hér kynnir Álfur, sem var þátttakandi
í síðasta hraðli, en þar er bjór bruggaður úr kartöfluhýði sem er vannýtt
hráefni úr landbúnaði. Myndin er frá kynningu á uppskeruhátíðinni á síðasta
ári í Tjarnarbíói. Mynd / smh