Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 27
- Hentar vel íslenskum aðstæðum -
- Hagstætt verð -
Sími 480 5600
Gunnbjarnarholti, 804 Selfossi
Fylgstu með okkur á
FACEBOOK
Sími 480 5610
Kaupvangi 10, 700 Egilsstöðum
Landstólpi - Traust í 20 ár
Loftræstimænir fyrir gripahús
Finnsk gæði sem henta vel
fyrir íslenskar aðstæður
VETRARBÚNAÐUR
HILLTIP
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík
551 5464 / wendel.is
Nemendur við Blönduskóla á Blönduósi tóku sig til á dögunum og settu niður 600 krókusa í kirkjuhólinn.
Myndir / Blönduskóli
Nemendur í Blönduskóla á Blönduósi:
Settu niður 600 krókusa í kirkjuhólinn
til að fegra og gleðja
Nemendur við Blönduskóla á
Blönduósi tóku sig til á dögunum
og settu niður 600 krókusa í
kirkjuhólinn.
Starfsfólk skólans var þeim
til aðstoðar ásamt Snjólaugu,
starfsmanni áhaldahúss, og Björk
Bjarnadóttur, fyrrverandi nemanda
Blönduskóla. Björk, sem er
umhverfisþjóðfræðingur, hafði
yfirumsjón með verkefninu en
hugmyndina fékk hún í vor þegar
hún dvaldi hjá foreldrum sínum og
gekk mikið um bæinn með son sinn
í barnavagni. Þá blasti kirkjuhóllinn
við, gulur og líflaus, og Björk sá að
þarna væri svæði sem gaman væri
að fegra með krókusum.
Björk setti sig í samband við
skólastjóra Blönduskóla og hann
ásamt öðru starfsfólki skólans tóku
vel í hugmyndina um að fegra
kirkjuhólinn. Hún fékk upplýsingar
frá starfsfólki Grasagarðsins í
Reykjavík og var það henni innan
handar um pöntun á laukum og
hvernig ætti að bera sig að við
gróðursetningu.
Allir nemendur Blönduskóla
tóku þátt í verkefninu en þess er
vænst að litir og fegurð krókusanna
muni gleðja heimamenn og
vegfarendur á vorin. Krókusar
eru fjölærir og fjölga sér þannig
að hægt verður að gleðjast yfir
þeim í áratugi. Þeir byrja yfirleitt
að blómstra í mars og fram í apríl.
Þeir eru fjólubláir, hvítir og gulir
á litinn.
Markmið verkefnisins er að
gleðja augað og fræða fólk á
Blönduósi sem og annars staðar
um hve gaman og auðvelt sé að
fegra umhverfi sitt, segir í frétt á
vefsíðu Blönduskóla. „Að skilja
eitthvað eftir sig sem blómstrar
á hverju vori er fagurt og göfugt
verkefni.“ /MÞÞ
Allir nemendur skólans tóku þátt í verkefninu en þess er vænst að litir og
fegurð krókusanna muni gleðja heimamenn og vegfarendur á vorin.
VELFERÐARSJÓÐUR BÍ
AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM
Allir félagsmenn Bændasamtaka Íslands teljast til
sjóðsfélaga og geta sótt um:
# Styrki til endurgreiðslu aukins rekstrarkostnaðar vegna
veikinda þess sem að búrekstri stendur eða slyss
- Útlagður launakostnaður, verktakagreiðslur, aðkeypt þjónusta
eða sambærileg útgjöld.
# Styrkir til forvarnarverkefna
- Verkefni tengd forvörnum og vinnuvernd, slysavarnir og önnur
verkefni sem hafa það að markmiði að bæta velferð sjóðsfélaga.
Nánari upplýsingar á bondi.is og umsóknareyðublað
má nálgast á félagsmannasíðum á Bændatorginu.
Umsóknir skulu berast fyrir 15. október nk. með
rekjanlegum bréfpósti (ábyrgðarbréf) merkt:
Velferðarsjóður BÍ
Bændasamtök Íslands
Bændahöllinni við Hagatorg 1
107 Reykjavík
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur vel
og vanda umsóknir.