Morgunblaðið - 04.06.2020, Side 4

Morgunblaðið - 04.06.2020, Side 4
SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fuglalífið í Skúmey dafnar og fram- vinda í lífríkinu þar er mjög áhuga- verð,“ segir Kristín Hermannsdóttir, veðurfræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands á Hornafirði. Vísindamenn og land- verðir Vatnajökulsþjóðgarðs fóru nú í vikunni í Skúmey, hólma í Jökuls- árlóni á Breiðamerkursandi, og töldu þar hreiður og gerðu ýmsar rann- sóknir og mælingar. Dylst vel frá alfaraleiðum Með undanhaldi Breiðamerkur- jökulsins djarfaði fyrir klettum við sporð hans, fyrst í kringum 1980. Eftir því sem jökullinn gaf meira eftir varð myndin skýrari og í kringum aldamótin stóð úti í lóninu eyja, sem er rétt rúmir 10 hektarar að flatar- máli. Eyjan er lág og dylst vel frá um- hverfi og alfaraleiðum. Hún hefur því orðið griðastaður fugla svo sem hels- ingja, sem eru af stofni gæsa, en einn- ig verpa þar æðarkollur og skúmar, en af þeim er nafn eyjunnar dregið. Hún er að mestu gróðurvana, en urð, grettistök og jökulset áberandi á yfir- borði. „Í fyrstu rannsóknarferðinni í Skúmey árið 2014 fundust þar hels- ingjahreiður en nú teljast þau um 1.400. Þetta er án neinna tvímæla stærsta varp helsingja á Íslandi, sem halda sig nær alfarið á sunnanverðu landinu. Helsingi sem fer hér um verpir annars mest á Grænlandi,“ segir Kristín. Mikilvægar rannsóknir Meðal vísindafólks þykir jafnan spennandi að fylgjast með hvernig líf- ríki myndast á nýju landi, eins og hægt hefur verið í Surtsey. Frá því hún myndaðist í eldgosi, sem hófst 1963 og stóð í fjögur ár, hafa ferðir þangað ekki verið heimilar nema í rannsóknarskyni. Sama gildir um Skúmey, sem fræðimenn úr ýmsum greinum hafa kannað. „Rannsóknir í eynni eru mikilvægar, enda áhugavert þegar land kemur undan jökli svo þar kviknar líf og framvinda gróðurs og dýralífs fer af stað. Sömuleiðis fellur þetta vel inn í rannsóknir á loftslags- hlýnun og undanhaldi jökla, sem vís- indamenn hafa mikinn áhuga á,“ segir Kristín Hermannsdóttir. Á heimsminjaskrá Meðal þátttakenda í Skúmeyjar- ferð í vikunni var Sigrún Sigur- geirsdóttir á Fagurhólsmýri í Ör- æfum, landvörður í Vatnajökuls- þjóðgarði. „Já, eitt af því skemmti- legasta í starfi mínu er ferðir með vísindamönnum og að vera þeim til aðstoðar. Slík verkefni koma alltaf öðru hvoru,“ segir Sigrún. Bætir við að Skúmey sé um margt sveipuð dul- úð í vitund fólks, rétt eins og aðrir staðir þar sem takmörk gilda um mannaferðir. Þá má geta þess að Vatnajökulsþjóðgarður og þar með Skúmey eru á heimsminjaskrá UNESCO. „Þróun náttúrufars hér um slóðir er áhugaverð. Jöklar gefa eftir og gróður dafnar og þar hefur hærra hitastig vafalaust sitt að segja,“ segir Sigrún. Helsingi haslar sér völl í Skúmey Ljósmynd/Lilja Jóhannesdóttir Helsingjar Í ferðinni í Skúmey á dögunum fundust þar nokkuð á fjórtánda hundrað hreiður helsingja og er þetta stærsta varpstöð fuglsins á hér á landi. Ljósmynd/Sigrún Sigurgeirsdóttir Vísindaferð Sigrún Sigurgeirsdóttir til vinstri og Kristín Hermannsdóttir frá Náttúrustofu Suðausturlands. Ljósmynd/Lilja Jóhannesdóttir Flug Skúmurinn er einkennisfugl á söndunum miklu austur við Vatnajökul. Hann flýgur vel og er fimur mjög.  Eyja á Jökulsár- lóni vettvangur vísindastarfs Ljósmynd/Sigrún Sigurgeirsdóttir Hreiður Vor er tími varps og þá er áhugavert að fara um fuglaslóðir. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020 „Það á ekki að vera mjög erfitt að af- skrá sig hjá okkur. Þegar mest lét var sennilega erfitt að ná í gegn símleiðis en það er mjög einfalt að gera þetta á netinu,“ segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar. Vísar hún í máli sínu til einstaklinga sem fengu hlutabætur þrátt fyrir að hafa verið komnir í fullt starf að nýju. Dæmi eru um að einstaklingum hafi borist fullar hlutabætur án þess þó að fá skert laun í sama hlutfalli. Að sögn Unnar er mikilvægt að fyrirtæki komi upplýsingum áleiðis til starfsmanna. Ábyrgðin liggi hjá starfsmönnum. „Það eru starfsmenn- irnir sem fá greiðslur og þeir sækja um bæturnar. Fyrirtæki verða að koma þessu áleiðis. Það á jafnframt ekki að vera mjög erfitt að skrá sig af þessu,“ segir Unnur og bætir við að ekki sé nóg að fyrirtæki sendi stofn- uninni tilkynningu. „Hlutabæturnar byggjast á samkomulagi atvinnurek- enda og starfsmanna. Þegar starfs- menn hætta í úrræðinu verða þeir að tilkynna okkur það,“ segir Unnur. Undanfarnar vikur hefur gríðar- legur fjöldi einstaklinga skráð sig úr hlutabótaleið ríkisstjórnarinnar. Alls nam fjöldinn 16 þúsundum í maí- mánuði. „Eftir því sem samkomu- bannið hefur verið rýmkað þeim mun meira líf er í bænum. Veitingastaðir og verslanir eru að opnast og um leið streymdi fólk úr úrræðinu hjá okkur,“ segir Unnur. Spurð hversu mörg fyrirtæki muni á næstu dögum endurgreiða veittar hlutabætur segir Unnur að þau séu 50-60 talsins. „Þau fá senda reikninga næstu daga. Um leið og hann hefur borist geta fyrirtækin millifært fjár- hæðina,“ segir Unnur. aronthordur@mbl.is Ábyrgðin liggur hjá starfsfólkinu  50-60 fyrirtæki endurgreiða hluta- bætur næstu daga Morgunblaðið/Ómar Vinnumálastofnun Mikið hefur verið um að vera hjá stofnuninni. Mörkinni 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: fim-fös: 11-18. Lau: 10-17. Sun: 12-16. LAGERSALA! DAGANA 4.-7.júní - 40-80% AFSLÁTTUR! Í sal Ferðafélags Íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.