Morgunblaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020
+ Birna Baldursdóttir
Íþróttafræðingur og einkaþjálfari á Akureyri.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa
Reykjavíkurborgar hefur kært
ákvörðun Vinnueftirlitsins um merk-
ingar á salernum á skrifstofum
Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-
14 til félagsmálaráðuneytisins. Er
þess krafist að ráðuneytið taki efnis-
lega afstöðu í málinu.
Vinnueftirlitið framkvæmdi svo-
kallaða takmarkaða úttekt á skrif-
stofuhúsnæði Reykjavíkurborgar 14.
september 2019. Í kjölfarið var borg-
inni gert að kynjaskipta salernum þar
á ný og fékk til þess frest til 14. októ-
ber. Frestur til úrbóta hefur síðan þá
verið framlengdur í nokkur skipti,
seinast til 29. maí sl.
Í bréfi Vinnueftirlitsins til Reykja-
víkurborgar, dagsett 4. maí 2020, um
framlengingu á fresti til úrbóta segir
meðal annars: „Á hverri hæð eru sal-
erni sem skiptast í fjögur ómerkt sal-
erni og tvö merkt fyrir fatlaða. Sal-
ernin eru ekki kynjaskipt.“ Fyrirmæli
eftirlitsins eru skýr og stutt: „Salerni
skal vera kynjaskipt“ og rann upphaf-
legur frestur til úrbóta út fyrir um
átta mánuðum. Reykjavíkurborg hef-
ur ekki enn brugðist við.
Samþykktu að gera ekkert
Á fundi mannréttinda-, nýsköpun-
ar- og lýðræðisráðs Reykjavíkur-
borgar, sem haldinn var 28. maí sl.,
samþykktu fulltrúar Samfylkingar,
Viðreisnar, Pírata og Sósíalistaflokks
Íslands að ráðast ekki í að merkja sal-
erni í stjórnsýsluhúsum Reykjavíkur-
borgar fyrr en ákvörðun félagsmála-
ráðuneytisins lægi fyrir um fyrr-
greinda kæru.
Tillaga ráðsins um ókyngreind sal-
erni er í kærunni sögð byggjast á
mannréttindastefnu borgarinnar og
áherslum hennar að vinna gegn mis-
munun borgaranna. „[Þ]á sérstaklega
mismunun á grundvelli kyns, kynvit-
undar, kyntjáningar og kynein-
kenna,“ segir meðal annars þar.
Í ákvörðun sinni vísar Vinnueftir-
litið til 22. gr. reglna nr. 581/1995 um
húsnæði vinnustaða. Í kærunni segir
að frá þeim tíma sem reglugerðin tók
gildi hafi „umtalsverð þróun orðið í
samfélaginu þegar kemur að því
hvernig kyn er skilgreint og er ljóst
að kyntvíhyggja sem áður var
ríkjandi nær ekki yfir þann veruleika
sem við búum við í dag“. Að mati
mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu
verður ekki komist hjá því að túlka
reglur um húsnæði vinnustaða til
samræmis við lög nr. 80/2019 um kyn-
rænt sjálfræði.
Gætu endurskoðað reglur
Þingmaðurinn Andrés Ingi Jóns-
son spurði félags- og barnamálaráð-
herra að því hvenær vænta mætti
þess að ráðherra endurskoðaði lög,
reglugerðir og reglur á málefnasviði
sínu með hliðsjón af því að ákvæði
þeirra um búningsaðstöðu og salerni
gera ekki ráð fyrir hlutlausri skrán-
ingu kyns, samanber lög um kynrænt
sjálfræði.
Í svari ráðherra segir að vert sé að
skoða hvort og þá með hvaða hætti
rétt sé að breyta reglum, meðal ann-
ars með tilliti til fyrrgreindra laga.
„Slík vinna er þó enn ekki hafin í fé-
lagsmálaráðuneytinu og fer það eftir
verkefnastöðu innan ráðuneytisins
hvenær unnt verður að ráðast í slíka
vinnu,“ segir í svarinu.
Borgarklósett inn á borð ráðuneytis
Liðnir eru um átta mánuðir frá því að Vinnueftirlitið gerði Reykjavíkurborg skylt að kynmerkja sal-
erni í skrifstofuhúsnæði sínu Borgin hefur enn ekki farið að tilmælum og hefur nú kært ákvörðunina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tregða Reykjavíkurborg vildi ókyngreind klósett í stjórnsýsluhúsum sínum
en Vinnueftirlitið segir það ekki ganga upp og bendir á gildandi reglugerð.