Morgunblaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020 55
Tónlistarskóli Rangæinga
auglýsir
Okkur vantar áhugasaman
píanókennara til starfa á næsta skólaári.
Um er að ræða 80 – 100 % starfshlutfall.
Hér gefst gott tækifæri til þess að taka
þátt í öflugu tónlistarlífi með frábæru
samstarfsfólki.
Skólinn er starfræktur á þremur stöðum
í héraðinu þ.e. á Hvolsvelli, Hellu og
Laugalandi í Holtum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Sigurgeir Guðmundsson skólastjóri
í síma 894 8422
Embætti héraðsdómara
laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm
Reykjaness. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. ágúst 2020.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010
er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum,
3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og
öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra
o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum
við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um
andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 10) upplýsingar um tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/
yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni
umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 620/2010 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega
eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf héraðsdómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlega fluttum
málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum
sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem
umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda.
Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi
á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 15. júní nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og
bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu með rafrænum hætti á netfangið
starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
29. maí 2020.
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Hótel Dalvík, Aurora Leisure ehf
Skíðabraut 18, 620 Dalvík, sími 466 3395
www.hoteldalvik.is
HÓTELSTJÓRI
Óskum að ráða hótelstjóra
að Hótel Dalvík
Umsækjendur skulu hafa reynslu af hótelstjórnun
eða úr ferðaþjónustu. Þeir þurfa m.a. að búa yfir
góðri þjónustulund, góðri málakunnáttu, reynslu
af mannauðsstjórnun, þekkingu á tölvukerfum og
markaðssetningu.
Umsóknir með ferilskrá sendist fyrir 12. júní til
Hótel Dalvík, Skíðabraut 18, 620 Dalvík.
GENERAL
SERVICES CLERK
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu
General Services Clerk lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júní
2020. Frekari upplýsingar er að finna á
heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic
Recruitment Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking
an individual for the position of General
Services Clerk. The closing date for this
postion is June 7, 2020. Application in-
structions and further information can be
found on the Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA)
200 mílur