Morgunblaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020
+ Akureyri
Nú er rétti tíminn til að njóta Íslands
og alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Hvort sem þú vilt vera sóló, í hópi eða í rómans geturðu fundið þína
flugleið til Akureyrar þar sem Listasafnið á Akureyri, Icelandair Hotels
Akureyri og fleiri eðalviðkomustaðir taka þér og þínum fagnandi.
Flug og bíll eða flug og gisting eru á sérkjörum í allt sumar þannig
að núna er rétti tíminn til að kynnast Akureyri upp á nýtt.
+ Bókaðu á airicelandconnect.is
Flug og gisting frá
í eina nótt á mann
29.900kr.
Flug og bíll frá
í einn sólarhring á mann
28.900kr.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ríkiskaup hafa fyrir hönd ríkissjóðs
auglýst eftir leiguhúsnæði miðsvæð-
is á höfuðborgarsvæðinu fyrir nýjar
höfuðstöðvar Skattsins og skatt-
rannsóknarstjóra. Umsjónaraðili er
Framkvæmdasýsla ríkisins. Hús-
næðisþörfin er áætluð um 9.800 fer-
metrar. Æskilegt er talið að hús-
næðið sé ekki meira en 6 hæðir.
Ný ríkisstofnun, Skatturinn, tók
til starfa um síðustu áramót. Þá
sameinuðust embætti tollstjóra og
ríkisskattstjóra. Snorri Olsen ríkis-
skattstjóri stýrir stofnuninni.
Afgreiðslur embættisins eru fyrst
um sinn óbreyttar á Tryggvagötu 19
(Tollhúsinu) og Laugavegi 166. Nú
stendur til að sameina starfsemina
undir sama þaki ásamt embætti
skattrannsóknarstjóra, sem nú er til
húsa í Borgartúni 7.
Þegar Skatturinn flytur í nýtt
húsnæði losnar húsnæði á góðum
stað í borginni til annarra nota.
Annars vegar á Laugavegi 166, sem
er fimm hæða bygging, og hins veg-
ar í Tollhúsinu, sem er sex hæða
bygging. Tollurinn hefur verið með
hluta hússins til afnota.
Fram kemur í auglýsingu Ríkis-
kaupa að miðað sé við að húsnæðið
verði tekið á langtímaleigu til 30
ára, fullbúið til notkunar með föst-
um innréttingum og búnaði, án
lauss búnaðar. Gerð er krafa um
sérhúsnæði á góðum stað miðsvæðis
á höfuðborgarsvæðinu, gott að-
gengi, þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða,
hjólandi og gangandi og næg bíla-
stæði bæði fyrir viðskiptavini og
starfsfólk. Einnig er gerð krafa um
að húsnæðið liggi vel við almenn-
ingssamgöngum, m.a. fyrirhugaða
borgarlínu. Skilyrði er að húsnæðið
verði tilbúið til notkunar eigi síðar
en 18 mánuðum eftir undirritun
leigusamnings.
Leigutilboðum skal skila eigi síð-
ar en fimmtudaginn 30. júlí 2020.
Leita að húsnæði fyrir Skattinn
Húsnæðisþörfin er áætluð um 9.800
fermetrar Leigan verður til 30 ára
Morgunblaðið/sisi
Skatturinn Höfuðstöðvar embættisins eru á Laugavegi 166, þar sem Ríkisskattstjóri hefur verið til húsa lengst af.