Morgunblaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Yrki arkitektar hafa beint fyrir-
spurn til Reykjavíkurborgar um
mögulega uppbyggingu á lóðum nr.
11, 13 og 15 við Geirsgötu sem felur í
sér að reisa fjölnotabyggingu á Mið-
bakkanum við Gömlu höfnina. Fyrir-
spurninni var vísað til umsagnar
verkefnisstjóra skipulagsfulltrúa.
Fram kemur í greinargerð að
fyrirspurnin sé lögð inn til skipulags-
sviðs fyrir hönd Geirsgötu 11 ehf.
Húseignin Geirsgata 11, gömul
vöruskemma, er eina byggingin á
svæðinu. Hún er í eigu Berjaya Land
Berhad, sem lýtur stjórn malasíska
auðkýfingsins Vincents Tans. Hann
er einnig eigandi meirihluta Iceland-
air Hotels, sem hann keypti af Ice-
landair Group. Þekktastur er hann
fyrir að vera eigandi knattspyrnu-
félagsins Cardiff City. Geirsgata 11
verður rifin nái áform um uppbygg-
ingu á Miðbakka fram að ganga.
Áætlað er að nýja byggingin verði
33.500 fermetrar með bílakjallara og
byggingarkostnaður verði allt að 40
milljarðar króna. Reiknað er með að
þar verði til um 400 ný störf. Áætluð
fasteignagjöld til borgarinnar af
byggingunni eru um 650 milljónir
króna árlega.
Markmiðið með uppbyggingu á
Miðbakka er sagt vera að tengja aft-
ur borgina við bryggjuna með því að
gæða bakkann lífi. Sé það gert með
því að koma fyrir fjölnotabyggingu á
bakkanum með starfsemi og þjón-
ustu fyrir almenning, skapa borgar-
rými fyrir iðandi mannlíf og göngu-
leiðir þar í gegn og meðfram hafnar-
bakkanum. Uppbygging á Miðbakka
eigi að tengja saman og vera brú á
milli svæðisins við Hörpu og
Granda.
„Hugmyndin byggist á að tengja
aðliggjandi starfsemi saman og
teygja út á hafnarbakkann. Þannig
verði til fjölnota rými, úti og inni,
þar sem mætast almenningsrými,
sýningarsvæði, móttaka alþjóðlegra
farþegaskipa, verslanir, veitinga-
staðir, kaffihús, fimm stjörnu hótel
og íbúðir,“ segir í greinargerðinni.
Byggingunni er ætlað að rúma:
Um 100 fimm stjörnu þjón-
ustuíbúðir sem seldar verða einka-
aðilum en reknar af Four Seasons
(Four Seasons residence).
Um 150 herbergja fimm
stjörnu hótel rekið af Four Sea-
sons.
Aðstöðu til tollmóttöku og bið-
sal til að þjónusta skemmtiferða-
skip, rekið af Faxaflóahöfnum.
Útirými til að þjónusta al-
menning sem á leið um höfnina.
Yfirbyggt útirými sem rúmað
gæti grænt svæði og skúlptúrasafn
Listasafns Reykjavíkur.
Rými fyrir safnkost Faxaflóa-
hafna sem heiðrar þá starfemi sem
fram fer á höfninni.
Verslunar- og þjónusturými.
Haustið 2018 barst skipulags-
yfirvöldum ósk um að byggja tæp-
lega 15 þúsund fermetra hús á lóð-
inni Geirsgötu 11. Stjórn Faxaflóa-
hafna, sem er lóðahafi á svæðinu,
hafnaði erindinu. Vildi stjórnin bíða
þar til uppbyggingu lyki í nágrenn-
inu, við Austurhöfn.
Tölvumynd/Yrki arkitektar
Nýbygging Þannig sjá arkitektarnir bygginguna fyrir sér á Miðbakka Gömlu hafnarinnar. Þarna er gert ráð fyrir íbúðum, hóteli og þjónustu fyrir fólk sem á leið um hafnarsvæðið.
Milljarðahús rísi við Gömlu höfnina
Morgunblaðið/sisi
Miðbakki Geirsgata 11 er eina húsið á reitnum. Gömul vöruskemma sem
Ríkisskip byggðu á sínum tíma. Skemman mun víkja fyrir nýrri byggingu.
Félagið Geirsgata 11 ehf. vill reisa tæplega 34 þúsund fermetra byggingu fyrir 40 milljarða króna
Þar verði 100 fimm stjörnu þjónustuíbúðir og 150 herbergja fimm stjörnu hótel rekið af Four Seasons
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi
Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign,
hafðu samband í síma 533 4200 eða arsalir@arsalir.is
Ársalir
fasteignamiðlun
533 4200
725,2 m² – Vandað og gott atvinnuhúsnæði
sem skiptist í 515 m² á jarðhæð með tven-
num innkeyrsluhurðum og hárri lofthæð, og
210 m² á efri hæð, sem henta vel fyrir
skrifstofur og þh. Góð aðkoma og bílastæði
á lóð.
374,9 m2 – Gott 375 m² atvinnuhúsnæði
við Skútuvog í Reykjavík. Húsnæðið á
jarðhæð sem er 256 m² með hárri og góðri
innkeyrsluhurð, lofthæð ca. 4,3m Skrifsto-
fur, kaffistofa og snyrting á efri hæð, eru
119 m² allt í mjög góðu ástandi.
Til afhendingar við kaupsaming.
Björgvin
Björgvinsson,
löggiltur fasteignasali
Dragháls 10, 110 Reykjavík Skútuvogur 10B, 104 Reykjavík
Til s
ölu
Til s
ölu