Morgunblaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020
LAGERSALA
LÍN DESIGN
FLATAHRAUNI 31 HAFNAFIRÐI
Á MÓTI KAPLAKRIKA
ALLT AÐ
80%
AFSLÁTTUR
FIMMTUDAG 15 -18
FÖSTUDAG 15 -18
LAUGARDAG 11-17
SUNNUDAG 12-17
MÁNUDAG 15 -18
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Tekjur ÁTVR á síðasta ári námu
tæpum 37 milljörðum króna. Jukust
þær um tæpa 1,7 milljarða króna.
Jafngildir það ríflega 4,7% vexti
milli ára. Kemur vöxturinn helst
fram í áfengissölu en hún jókst um
5,9% milli ára, nam 27,3 milljörðum
samanborið við 25,8 milljarða árið
2018. Selt magn af áfengi í lítrum
talið jókst hins vegar um 3,09%. Sala
tóbaks nam 9,6 milljörðum og jókst
úr ríflega 9,4 milljörðum árið áður.
Jafngildir það 1,6% vexti milli ára.
Sala vindlinga í magni minnkaði um
1,5% milli ára. Selt magn neftóbaks
jókst um 3,1% .
Sala umbúða jókst um 6,6 millj-
ónir og nam 99,8 milljónum króna.
Skortur á gagnsæi
Samkvæmt skýringum í ársreikn-
ingi ÁTVR nam vörunotkun áfengis
23,3 milljörðum og því var álagning
af þeim hluta sölunnar 3,9 milljarðar
króna. Vörunotkun tóbaks nam 7,9
milljörðum og því nam álagning af
þeim hluta starfseminnar tæpum 1,7
milljörðum króna.
ÁTVR hefur ekki viljað gefa sund-
urliðun á öðrum rekstrargjöldum
starfseminnar, þ.e. hversu stór hluti
launa, sölu- og dreifingarkostnaðar
eða annars stjórnunar- og skrif-
stofukostnaðar fellur til vegna
áfengissölunnar annars vegar og
tóbakssölunnar hins vegar. Það
veldur því að ekki er hægt að greina
með nákvæmum hætti hver afkoma
er af hvorum hluta starfseminnar
fyrir sig.
Laun og launatengd gjöld námu
tæpum þremur milljörðum króna á
árinu 2019 og jókst sá rekstrar-
kostnaður um 155 milljónir króna.
Húsnæðiskostnaður nam 722 millj-
ónum króna og jókst um 87,5 millj-
ónir króna milli ára eða 13,8%.
Sölu- og dreifingarkostnaður
dróst hins vegar saman milli ára og
nam 238,8 milljónum, samanborið
við 244,9 milljónir árið á undan.
Sömu sögu var að segja um stjórn-
unar- og skrifstofukostnað sem
dróst aman um sjö milljónir og stóð í
372,5 milljónum. Annar rekstrar-
kostnaður jókst líttilega og stóð í
50,8 milljónum.
Hagnaður minnkar lítillega
Hagnaður af starfsemi ÁTVR
reyndist 1.056 milljónir króna og
dróst saman um tæpar 55 milljónir
milli ára. Hefur hagnaður fyrir-
tækisins farið minnkandi á síðustu
árum. Árið 2017 nam hann 1.367
milljónum og árið 2016 1.629 millj-
ónum króna.
Eigið fé ÁTVR hefur haldist
nokkuð stöðugt hin síðustu ár og var
í árslok 2019 4.618 milljónir króna.
Skammtímaskuldir námu 1.628
milljónum. Langtímaskuldir fyrir-
tækisins eru engar.
Tekjur ÁTVR aukast um 1,7 milljarða
Fyrirtækið gefur
ekki upp sundurlið-
aðan hagnað af tób-
aks- og áfengissölu
Morgunblaðið/Heiddi
Verslunarrekstur ÁTVR rekur ríflega 50 verslanir vítt og breitt um landið. Ársverk voru 354 á árinu 2019 en mun fleiri vinna þau, margir í hlutastarfi.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Hlutdeild íslenskrar tónlistar meðal
notenda Spotify hér á landi á síðasta
ári var 19% á móti 81% erlendrar
tónlistar. Það þýðir að streymi á ís-
lenskri tónlist voru alls um 200 millj-
ónir árið 2019. Fram kom í Morgun-
blaðinu í gær að heildarfjöldi
streyma íslenskra notenda Spotify
var yfir einn milljarður. Eitt streymi
er lag sem spilað er lengur en 30
sekúndur.
Ef horft er á tekjuhliðina kemur í
ljós að tekjur af spilun íslenskrar
tónlistar á Spotify í fyrra námu um
132 milljónum króna á móti 581
milljón af erlendri tónlist.
Í markaðsskýrslu Félags hljóm-
plötuframleiðenda um sölu og
streymi hér á landi í fyrra er þróun á
sölu tónlistar rifjuð upp. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær
hefur heildarvelta á tónlistarmark-
aði aukist síðustu tvö ár en hlutdeild
íslenskra tónlistarmanna fer minnk-
andi.
„Tónlistarveitan Tónlist.is var
sett á laggirnar árið 2003 en náði
aldrei að leika mjög veigamikið hlut-
verk á íslenskum tónlistarmarkaði.
Með opnun Spotify á Íslandi árið
2013 byrjaði sýnileg heildarmynd
tónlistarneyslunnar að gjörbreytast
og færast nær því jafnvægi sem ríkti
milli innlendrar og erlendrar tónlist-
ar fyrir tíma internetsins,“ segir í
skýrslunni. Þar kemur enn fremur
fram að frá 2014 til 2019 hefur velta
Spotify á Íslandi nærri sjöfaldast
með tilheyrandi tekjuaukningu tón-
listarrétthafa en langstærstur hluti
þessara tekna fer þó til erlendra
aðila.
Eiður Arnarsson, framkvæmda-
stjóri Félags hljómplötuframleið-
enda, segir í samtali við Morgun-
blaðið að staða íslenskra tónlistar-
manna sé misgóð í þessu nýja
tekjuumhverfi. „Yngri deildin ber
sig nokkuð vel en margir hinna eldri,
fyrir utan Bubba Morthens, hafa
ekki notið góðs af þessari þróun.
Yngri hlustendur spila svo mikið
meira á veitunum og það þýðir að
þeir ráða því hvernig peningarnir
skiptast.“
Skipting íslenskrar og erlendrar
tónlistar á Spotify 2019**
Íslensk tónlist Erlend tónlist
**Áætlað er að tekjur frá Spotify nemi
um 98% af heildartekjum af streymi 2019
200 milljón streymi var sala íslenskrar
tónlistar á Spotify 2019
117
189
270
406
561
713
35 42
Sala á stafrænni tónlist í streymi 2010-2019*
600
500
400
300
200
100
0
Heimild: FHF
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Milljónir króna að nafnvirði
21
581
451
110
132
19
81%
19%
*2010-2013 Tónlist.is,
2014-2019 Tónlist.is og
áætlaðar tölur frá Spotify
Íslensk tónlist Erlend tónlist Samtals
Streymi á íslenskri tónlist
skilaði 132 milljónum króna
Um 200 milljón streymi á Spotify Ungir græða meira
Morgunblaðið/Hari
GDRN Nýtur vinsælda á Spotify.