Morgunblaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 5175000 | stalogstansar.is
Gott úrval af reimum í
snjósleða, bíla og fjórhjól.
reimar
í snjósleða, bíla og fjórhjól
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Afurðaverð á markaði
2. júní 2020, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 256,01
Þorskur, slægður 309,59
Ýsa, óslægð 237,17
Ýsa, slægð 188,25
Ufsi, óslægður 43,62
Ufsi, slægður 68,74
Gullkarfi 150,14
Blálanga, óslægð 100,00
Blálanga, slægð 175,18
Langa, óslægð 94,15
Langa, slægð 87,94
Keila, óslægð 32,02
Keila, slægð 50,73
Steinbítur, óslægður 6,39
Steinbítur, slægður 81,84
Skötuselur, slægður 385,29
Grálúða, slægð 161,86
Skarkoli, slægður 172,06
Þykkvalúra, slægð 276,27
Langlúra, óslægð 177,29
Langlúra, slægð 94,00
Sandkoli, óslægður 37,00
Bleikja, flök 1.440,42
Hlýri, óslægður 60,07
Hlýri, slægður 34,10
Lúða, slægð 724,68
Lýr, óslægður 76,00
Lýsa, óslægð 8,58
Náskata, óslægð 12,00
Skata, slægð 79,44
Stórkjafta, óslægð 109,00
Stórkjafta, slægð 157,44
Undirmálsýsa, óslægð 29,78
Undirmálsýsa, slægð 31,75
Undirmálsþorskur, óslægður 59,79
Undirmálsþorskur, slægður 47,43
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Forveri minn á stóli formanns vann
mjög gott starf. Ég mun reyna að
halda því starfi áfram og rísa undir
minni ábyrgð, sem er að hlusta á
sjónarmið félagsmanna og vinna að
framgangi þeirra allra. Það á við um
útgerð, vinnslu, sölu og fiskeldi,“
svarar Ólafur Helgi Marteinsson,
framkvæmdastjóri Ramma hf.,
spurður hvort hann hafi einhverjar
sérstakar áherslur sem hann muni
vinna að sem formaður Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi, en hann
var kjörinn nýr formaður samtak-
anna á aðalfundi þeirra í síðustu
viku.
Alla tíð við sjávarútveg
„Það skiptir ekki máli hver á í
hlut, enda bauð ég mig fram til að
þjóna öllum í samtökunum. Ég held
að aðalatriðið sé að reyna að gera
hlutina vel og vanda sig í öllu sem
maður tekur sér fyrir hendur. Það
er að mínu viti eitt stærsta hags-
munamál samtaka í sjávarútvegi að
sjávarauðlindin sé nýtt í sátt við um-
hverfi og virði hennar sé sem mest
fyrir þjóðarhag. Það er eðlilegt að
tekist sé á um hvernig því verði best
fyrir komið. Í slíkri umræðu á meg-
ináhersla SFS að vera á upplýsandi
og skýra miðlun upplýsinga,“ segir
hann.
Hinn nýi formaður hefur verið
framkvæmdastjóri Ramma frá árinu
1991 og kveðst hafa verið tengdur
hafinu um langt skeið. „Ég hef alla
tíð starfað við sjávarútveg og unnið
þar flest störf til sjós og lands. Ég
keypti minn fyrsta bát 1983 ásamt
föður mínum og bróður. Það má
segja að þá hafi teningunum verið
kastað. Breytingarnar sem orðið
hafa í sjávarútvegi frá því kvóta-
kerfið var sett á eru gríðarlega
miklar. Framþróunin á flestum
sviðum er nánast ótrúleg. Það er
auðvelt að heillast af atvinnugrein
sem þessari,“ segir hann.
Mjótt á munum
Ólafur Helgi sigraði í formanns-
kjörinu með naumindum er hann
fékk 49,99% atkvæða, en Ægir Páll
Friðbertsson, framkvæmdastjóri
Brims hf., hlaut 49,05% atkvæða.
Tók Ólafur Helgi því við embætti
formanns af Jens Garðari Helga-
syni sem gegnt hefur starfinu frá
stofnun samtakanna árið 2014.
Um er að ræða sögulegan aðal-
fund fyrir þær sakir að þetta var í
fyrsta sinn í sögu Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi sem kosið var
milli frambjóðenda. Einnig má geta
þess að heldur sjaldgæft var að
kosningar væru haldnar um for-
mannsembættið hjá fyrirrennara
samtakanna, LÍÚ.
Spurður hvort jöfn úrslit séu til
marks um skort á samstöðu innan
samtakanna, segir Ólafur Helgi svo
ekki vera. „Nei, kosningin er ekki
til marks um að það sé léleg sam-
staða innan samtakanna. Það er
styrkur fyrir samtökin að menn
bjóði sig fram í trúnaðarstörf, slíkt
sýnir að menn láta sér annt um
þau. Styrkur okkar er að geta rætt
málin, kosið og komist að niður-
stöðu og unnið út frá henni.“
Þegar litið er fram á við segir
Ólafur Helgi ljóst hver helstu verk-
efni verða á næstunni enda hafa
kjarasamningar sjómanna verið
lausir frá því í desember. „Það sem
blasir við núna er að viðræður við
sjómenn um kjarasamning munu
taka tíma á næstunni. Viðræður
hafa legið aðeins í láginni vegna
ástandsins á undanförnum vikum.
En ég geri ekki ráð fyrir öðru en að
menn fari að taka upp þráðinn á
nýjan leik.“
Gera meira úr hverjum fiski
Það er óhætt að segja að veturinn
sem nú er að baki hafi haft veruleg
áhrif á íslenska hagkerfið og allar
útflutningsgreinarnar að einhverju
leyti. Fiskur hefur þó haldið áfram
að vera fluttur á erlenda markaði
þrátt fyrir að magn og umgjörð
flutninganna kunni að hafa breyst.
„Það má kannski segja að veiðar,
vinnsla og sala á fiski sé eitthvað
sem við Íslendingar kunnum harla
vel. Og okkur tekst að gera meira
úr hverjum fiski en flestum öðrum
þjóðum. Grundvöllurinn að sterkri
stöðu okkar er það kerfi sem við
höfum á veiðunum og það hefur
komið berlega í ljós á undanförnum
mánuðum,“ segir Ólafur Helgi.
Spurður hvernig sé best að hlúa
að atvinnugreininni nú, svarar
hann: „Besti stuðningurinn sem
hægt er að biðja um í rekstri fyr-
irtækja er að fyrirsjáanleikinn sé
tryggður. Það á ekki bara við um
rekstur fyrirtækja í sjávarútvegi og
fiskeldi, heldur í rekstri allra fyrir-
tækja. Þá má ekki gleyma þeirri
staðreynd að 98% íslenskra sjáv-
arafurða eru seld á erlendum mörk-
uðum. Þar er samkeppnin hörð um
hylli viðskiptavina. Þess þarf því að
gæta að rekstrarumhverfi sjávar-
útvegs hér á landi íþyngi ekki um
of.“
Styrkurinn í fiskveiðikerfinu
Nýr formaður SFS kveðst ætla að þjóna öllum í samtökunum Segir brýnt að sjávarauðlindin sé
nýtt í sátt við umhverfið Úrslit formannskjörs ekki til marks um skort á samstöðu innan SFS
Kjörinn Ólafur Helgi Marteinsson, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir niðurstöðu kosninganna ekki
benda til þess að skortur sé á samstöðu innan samtakanna, heldur hafi hún sýnt styrk þeirra.
Ægir Páll Friðbertsson,
framkvæmdastjóri Brims
hf., tapaði í formannskjör-
inu en var kjörinn vara-
formaður samtakanna.
Pétur H. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vísis hf., var
kjörinn ritari.
Atkvæðavægi í kosningum
á aðalfundi SFS byggist á
félagsgjöldum en þau eru
reiknuð sem hundraðshluti
af heildarlaunagreiðslum
félagsmanna, en má ekki
vera umfram 12% af
heildarálagningu allra fé-
lagsgjalda.
Misjafnt at-
kvæðavægi
KOSIÐ