Morgunblaðið - 04.06.2020, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 04.06.2020, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 5175000 | stalogstansar.is Gott úrval af reimum í snjósleða, bíla og fjórhjól. reimar í snjósleða, bíla og fjórhjól Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Afurðaverð á markaði 2. júní 2020, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 256,01 Þorskur, slægður 309,59 Ýsa, óslægð 237,17 Ýsa, slægð 188,25 Ufsi, óslægður 43,62 Ufsi, slægður 68,74 Gullkarfi 150,14 Blálanga, óslægð 100,00 Blálanga, slægð 175,18 Langa, óslægð 94,15 Langa, slægð 87,94 Keila, óslægð 32,02 Keila, slægð 50,73 Steinbítur, óslægður 6,39 Steinbítur, slægður 81,84 Skötuselur, slægður 385,29 Grálúða, slægð 161,86 Skarkoli, slægður 172,06 Þykkvalúra, slægð 276,27 Langlúra, óslægð 177,29 Langlúra, slægð 94,00 Sandkoli, óslægður 37,00 Bleikja, flök 1.440,42 Hlýri, óslægður 60,07 Hlýri, slægður 34,10 Lúða, slægð 724,68 Lýr, óslægður 76,00 Lýsa, óslægð 8,58 Náskata, óslægð 12,00 Skata, slægð 79,44 Stórkjafta, óslægð 109,00 Stórkjafta, slægð 157,44 Undirmálsýsa, óslægð 29,78 Undirmálsýsa, slægð 31,75 Undirmálsþorskur, óslægður 59,79 Undirmálsþorskur, slægður 47,43 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Forveri minn á stóli formanns vann mjög gott starf. Ég mun reyna að halda því starfi áfram og rísa undir minni ábyrgð, sem er að hlusta á sjónarmið félagsmanna og vinna að framgangi þeirra allra. Það á við um útgerð, vinnslu, sölu og fiskeldi,“ svarar Ólafur Helgi Marteinsson, framkvæmdastjóri Ramma hf., spurður hvort hann hafi einhverjar sérstakar áherslur sem hann muni vinna að sem formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, en hann var kjörinn nýr formaður samtak- anna á aðalfundi þeirra í síðustu viku. Alla tíð við sjávarútveg „Það skiptir ekki máli hver á í hlut, enda bauð ég mig fram til að þjóna öllum í samtökunum. Ég held að aðalatriðið sé að reyna að gera hlutina vel og vanda sig í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur. Það er að mínu viti eitt stærsta hags- munamál samtaka í sjávarútvegi að sjávarauðlindin sé nýtt í sátt við um- hverfi og virði hennar sé sem mest fyrir þjóðarhag. Það er eðlilegt að tekist sé á um hvernig því verði best fyrir komið. Í slíkri umræðu á meg- ináhersla SFS að vera á upplýsandi og skýra miðlun upplýsinga,“ segir hann. Hinn nýi formaður hefur verið framkvæmdastjóri Ramma frá árinu 1991 og kveðst hafa verið tengdur hafinu um langt skeið. „Ég hef alla tíð starfað við sjávarútveg og unnið þar flest störf til sjós og lands. Ég keypti minn fyrsta bát 1983 ásamt föður mínum og bróður. Það má segja að þá hafi teningunum verið kastað. Breytingarnar sem orðið hafa í sjávarútvegi frá því kvóta- kerfið var sett á eru gríðarlega miklar. Framþróunin á flestum sviðum er nánast ótrúleg. Það er auðvelt að heillast af atvinnugrein sem þessari,“ segir hann. Mjótt á munum Ólafur Helgi sigraði í formanns- kjörinu með naumindum er hann fékk 49,99% atkvæða, en Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Brims hf., hlaut 49,05% atkvæða. Tók Ólafur Helgi því við embætti formanns af Jens Garðari Helga- syni sem gegnt hefur starfinu frá stofnun samtakanna árið 2014. Um er að ræða sögulegan aðal- fund fyrir þær sakir að þetta var í fyrsta sinn í sögu Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi sem kosið var milli frambjóðenda. Einnig má geta þess að heldur sjaldgæft var að kosningar væru haldnar um for- mannsembættið hjá fyrirrennara samtakanna, LÍÚ. Spurður hvort jöfn úrslit séu til marks um skort á samstöðu innan samtakanna, segir Ólafur Helgi svo ekki vera. „Nei, kosningin er ekki til marks um að það sé léleg sam- staða innan samtakanna. Það er styrkur fyrir samtökin að menn bjóði sig fram í trúnaðarstörf, slíkt sýnir að menn láta sér annt um þau. Styrkur okkar er að geta rætt málin, kosið og komist að niður- stöðu og unnið út frá henni.“ Þegar litið er fram á við segir Ólafur Helgi ljóst hver helstu verk- efni verða á næstunni enda hafa kjarasamningar sjómanna verið lausir frá því í desember. „Það sem blasir við núna er að viðræður við sjómenn um kjarasamning munu taka tíma á næstunni. Viðræður hafa legið aðeins í láginni vegna ástandsins á undanförnum vikum. En ég geri ekki ráð fyrir öðru en að menn fari að taka upp þráðinn á nýjan leik.“ Gera meira úr hverjum fiski Það er óhætt að segja að veturinn sem nú er að baki hafi haft veruleg áhrif á íslenska hagkerfið og allar útflutningsgreinarnar að einhverju leyti. Fiskur hefur þó haldið áfram að vera fluttur á erlenda markaði þrátt fyrir að magn og umgjörð flutninganna kunni að hafa breyst. „Það má kannski segja að veiðar, vinnsla og sala á fiski sé eitthvað sem við Íslendingar kunnum harla vel. Og okkur tekst að gera meira úr hverjum fiski en flestum öðrum þjóðum. Grundvöllurinn að sterkri stöðu okkar er það kerfi sem við höfum á veiðunum og það hefur komið berlega í ljós á undanförnum mánuðum,“ segir Ólafur Helgi. Spurður hvernig sé best að hlúa að atvinnugreininni nú, svarar hann: „Besti stuðningurinn sem hægt er að biðja um í rekstri fyr- irtækja er að fyrirsjáanleikinn sé tryggður. Það á ekki bara við um rekstur fyrirtækja í sjávarútvegi og fiskeldi, heldur í rekstri allra fyrir- tækja. Þá má ekki gleyma þeirri staðreynd að 98% íslenskra sjáv- arafurða eru seld á erlendum mörk- uðum. Þar er samkeppnin hörð um hylli viðskiptavina. Þess þarf því að gæta að rekstrarumhverfi sjávar- útvegs hér á landi íþyngi ekki um of.“ Styrkurinn í fiskveiðikerfinu  Nýr formaður SFS kveðst ætla að þjóna öllum í samtökunum  Segir brýnt að sjávarauðlindin sé nýtt í sátt við umhverfið  Úrslit formannskjörs ekki til marks um skort á samstöðu innan SFS Kjörinn Ólafur Helgi Marteinsson, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir niðurstöðu kosninganna ekki benda til þess að skortur sé á samstöðu innan samtakanna, heldur hafi hún sýnt styrk þeirra.  Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Brims hf., tapaði í formannskjör- inu en var kjörinn vara- formaður samtakanna.  Pétur H. Pálsson, fram- kvæmdastjóri Vísis hf., var kjörinn ritari.  Atkvæðavægi í kosningum á aðalfundi SFS byggist á félagsgjöldum en þau eru reiknuð sem hundraðshluti af heildarlaunagreiðslum félagsmanna, en má ekki vera umfram 12% af heildarálagningu allra fé- lagsgjalda. Misjafnt at- kvæðavægi KOSIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.