Morgunblaðið - 04.06.2020, Page 18

Morgunblaðið - 04.06.2020, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020 Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Lagt hefur verið til að fela skrifstofu umhverfisgæða að leggja grunn að stefnumörkun um aukna verndun mikilvægrar náttúru í Reykjavík. Tillagan var lögð fram í umhverfis- og heilbrigðisráði og var samþykkt einróma. Að sögn Lífar Magneu- dóttur, formanns ráðsins, hefur mál- ið verið til skoðunar lengi. „Við höfum verið að berjast fyrir þessu í langan tíma. Akurey var loks- ins friðlýst í fyrra og nú höfum við verið að skoða aðra kosti sem hægt er að vernda. Þess vegna settum við þetta af stað,“ segir Líf og bætir við að mörg spennandi svæði í höfuð- borginni komi til greina. Nokkur svæði hafa nú þegar verið tilnefnd en auk þess eru fjölmargir aðrir væn- legir kostir. „Náttúrustofnun hefur tilnefnt nokkra staði og þar eru ýms- ir góðir kostir fyrir Reykjavík. Til dæmis eru Elliðavatn og Elliðavogur staðir sem ég sjálf hef viljað skoða hvort friðlýsa eigi. Það væri frábært ef hægt væri að sameinast um það,“ segir Líf, sem kveðst sérlega spennt fyrir nokkrum svæðum á höfuð- borgarsvæðinu. Nefnir hún í því samhengi eyjarnar við borgina. „Ég myndi vilja skoða eyjarnar. Þar er ég að tala um Viðey og Engey svo dæmi séu tekin. Svo er Rauðavatn sömu- leiðis staður sem skoða mætti. Það eru til mörg friðlýsingarform á for- ræði borgarinnar og það þarf að skoða hvað kemur til greina hverju sinni. Að friðlýsa hluta Esjunnar gæti verið mjög spennandi,“ segir Líf. Auðveldur rökstuðningur Að því er fram kemur í tillögu ráðsins er lagt til að unnið verði yfir- lit yfir leiðir sem hægt er að fara í því skyni að auka verndun náttúru á borgarlandinu. Segir Líf að spenn- andi væri að ræða málið í borgar- stjórn. „Tillagan var samþykkt ein- róma í ráðinu. Það væri mjög gott að fá sjónarhorn allra flokka á þetta mál,“ segir Líf sem finnur fyrir mikl- um meðbyr. „Það er mikill vilji fyrir þessu hjá ríkinu finn ég og nú eigum við að grípa tækifærið og gera þetta. Þá mættu fleiri sveitarfélög fylgja í kjölfarið,“ segir Líf. Að hennar sögn er afar einfalt að færa rök fyrir því að friðlýsa eigi ákveðin svæði á borgarlandinu. Varðveiting vistkerfa og menningar skipti þar miklu máli. „Mörg nátt- úrusvæði í borginni eru til dæmis bú- svæði dýra og svo eru mikil menn- ingarverðmæti annars staðar. Að auki er þetta lýðheilsumál fyrir borg- arana. Að fá að vera í fallegu og góðu umhverfi í náttúrunni. Sjálf hef ég mikið verið í náttúrunni og þetta er mál sem þarf að huga að. Það á ekki að vera erfitt að rökstyðja þetta,“ segir Líf. Morgunblaðið/Árni Sæberg Elliðavatn Á myndinni má sjá Elliðavatnsbæinn með fjöllin og ljósbláan himininn í bakgrunni síðla sumars í fyrra. Elliðavatn er meðal svæða sem mögulega verða friðlýst nái hugmyndirnar fram að ganga. Morgunblaðið/Eggert Esja Að sögn Lífar er hluti Esjunnar eitt þeirra svæða sem til greina kemur að friðlýsa. Sjálf er Líf mjög spennt fyrir því að friðlýsa svæðið. Friðlýstum svæðum verði fjölgað  Esjan gæti verið friðlýst að hluta  Grunnur lagður að stefnumörkun um aukna verndun mikil- vægrar náttúru í Reykjavík  Skoða má hvort friðlýsa eigi Viðey, Engey og aðrar eyjar við borgina Morgunblaðið/Hallur Viðey Eyjan er á Kollafirði, rétt utan við höfuðborgina. Séra Sigfús Kristjánsson hefur verið ráðinn í starf sendiráðs- prests í Kaupmannahöfn. Tekur hann við 1. ágúst nk. Starf sendi- ráðsprests var lagt niður í kjölfar bankahrunsins 2008 en er nú end- urvakið. Fjórir prestar sóttu um starfið. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, staðgengill biskups Íslands, réð sr. Sigfús í starfið á grundvelli umsagnar matsnefndar. Sr. Sigfús fæddist í Reykjavík 1975 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1995 og guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 2001. Hann var vígður ár- ið 2002 til Hjallaprestakalls í Kópavogi og lét af störfum þar ár- ið 2017. Hann hefur síðan þá starfað á Biskupsstofu. Kona sr. Sigfúsar er Arndís Th. Friðriks- dóttir sérkennari og eiga þau tvær dætur. Séra Sigfús mun hafa aðsetur í sendiráði Íslands í Kaupmanna- höfn. Íslenskar guðsþjónustur eru að jafnaði einu sinni í mánuði í Skt. Pauls-kirkju og kirkjukaffi í Jónshúsi á eftir. Á vef kirkjunnar er einnig greint frá ráðningu dr. Jóns Ás- geirs Sigurvinssonar í starf hér- aðsprests í Reykjavíkurprófasts- dæmi vestra á grundvelli um- sagnar matsnefndar og héraðs- nefndar. Dr. Jón Ásgeir Sigur- vinsson fæddist í Reykjavík árið 1970. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1990 og guðfræðiprófi frá Háskóla Ís- lands 1999. Hann var vígður 25. febrúar 2007 til afleysinga í Set- bergsprestakalli. Þá þjónaði hann sem sóknarprestur í Borgar- og Stafholtsprestaköllum 2018-2019. Kona dr. Jóns Ásgeirs er sr. Elín- borg Sturludóttir, prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík, og eiga þau þrjú börn. sisi@mbl.is Sendiráðsprestur til starfa að nýju  Biskup tilkynnir ráðningu presta Sigfús Kristjánsson Jón Ásgeir Sigurvinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.