Morgunblaðið - 04.06.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.06.2020, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020 þágur og aðlaganir vegna gerða hreinorkupakkans fyrir upptöku þeirra í EES-samninginn, segir í svari ráðherra. Hreinorkupakkinn hefur undan- farna mánuði verið til skoðunar á vettvangi EFTA-ríkjanna innan EES hjá vinnuhópi EFTA um orku- mál. Í vinnuhópnum sitja sérfræð- ingar frá EFTA-ríkjunum á þessu sviði. Ítarleg rýni og greining á hrei- norkupakkanum stendur yfir og mun sú vinna halda áfram á þessu ári og því næsta. Að því loknu munu við- komandi EFTA-ríki setja fram sínar kröfur um undanþágur og/eða aðlag- anir eftir þörfum og í samráði við sín þjóðþing. Í framhaldi af því munu hefjast viðræður EFTA-ríkjanna innan EES við framkvæmdastjórn ESB um undanþágur og/eða aðlag- anir fyrir EFTA-ríkin innan EES. Því ferli lýkur með ákvörðun sameig- inlegu EES-nefndarinnar um upp- töku viðkomandi gerða í EES- samninginn. Löng meðganga orkupakka „Gera má ráð fyrir að framan- greint ferli geti tekið um fjögur til fimm ár, eins og utanríkismálanefnd Alþingis hefur þegar verið upplýst um. Hafa má til hliðsjónar að þriðji orkupakki ESB var samþykktur á vettvangi ESB á árinu 2009 en ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar um upptöku hans í EES-samninginn (með viðkomandi aðlögunum og undanþágum fyrir EFTA-ríkin) var samþykkt átta ár- um síðar eða í maí 2017 og öðlaðist síðan gildi í október 2019,“ segir ráð- herra í skriflegu svari sínu. Hreinorkupakkinn er næstur  Fjórði orkupakki Evrópusambandsins var samþykktur af Evrópuþinginu í fyrra  Starfshópur annast hagsmunagæslu fyrir Ísland  Ferlið getur tekið fjögur til fimm ár, segir iðnaðarráðherra Morgunblaðið/sisi Maraþonfundir Miðflokksmenn töluðu mikið um 3. orkupakkann. Hér eru þeir einir á mælendaskrá um hánótt. Ólafur Ísleifsson Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fjórði orkupakki Evrópusambands- ins, sem næst kemur til umfjöllunar á Alþingi Íslendinga, hefur verið kall- aður „hreinorkupakkinn“. Eins og menn muna urðu miklar deilur á Al- þingi í fyrra um þriðja orkupakkann, sem samþykktur var að lokum. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir iðn- aðarráðherra svaraði á dögunum fyr- irspurn frá Ólafi Ísleifssyni, Mið- flokki, um mat á gerðum fjórða orkupakka Evrópusambandsins. Fram kemur í svari ráðherra að í lok maí 2019 var samþykktur af Evr- ópuþinginu og ráði ESB löggjafar- pakki sem inniheldur endurskoðun á helstu þáttum í orkulöggjöf ESB. Er sá pakki kallaður „Clean energy for all Europeans“ og mætti því nefna pakkann „Hrein orka fyrir alla Evr- ópubúa“ eða „hreinorkupakkann“. Tekur hann við af gerðum í þriðja orkupakka ESB en er hins vegar víð- tækari þar sem hann nær til gerða um endurnýjanlega orku, orkunýtni o.fl. Um er að ræða átta gerðir (fjórar reglugerðir og fjórar tilskipanir). Efla hagsmunagæslu Íslensk stjórnvöld hyggjast efla hagsmunagæslu varðandi 4. orku- pakkann og er verkefnið á forgangs- lista ríkisstjórnarinnar um EES-mál að sögn ráðherra. Á vegum atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytis hefur verið settur á laggirnar starfshópur með fulltrúum ráðuneytisins, utan- ríkisráðuneytisins og Orkustofnunar til að halda utan um þá hagsmuna- gæslu og rýnivinnu sem þegar er haf- in vegna hreinorkupakkans. Mun starfshópurinn í þeirri vinnu hafa ná- ið samráð við hagsmunaaðila. Í raun hófst það samráð þegar haustið 2017 þegar gerðirnar voru í mótun. Í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála verða viðkomandi þingnefndir Alþingis reglubundið upplýstar um gang málsins, þ.m.t. um beiðnir um undan- Friðriks saga Ólafssonar, sem skráð er af Helga Ólafssyni, kemur út í haust á vegum Hins íslenska bókmenntafélags í samstarfi við Skák- sögufélag Íslands í tilefni 85 ára afmælis Frið- riks fyrr á þessu ári. Bókin fjallar um fyrsta stórmeistara Íslendinga með sérstakri áherslu á glæsileg skákafrek hans á liðinni öld og harð- skeytta baráttu á skákborðinu við goðsagna- kennda skáksnillinga. Á næstunni gefst vinum og velunnurum Friðriks kostur að fá nöfn sín skráð á sérstaka heillaóskaskrá – Tabula grat- ulatoria – sem birt verður í ritinu, með því að heimsækja vefsíðu HIB www.hib.is eða www.skak.is og skrá sig þar á sérstakri slóð í þessu sambandi. Þegar bókin kemur úr prentun stofnast krafa í heimabanka fyrir andvirði bókarinnar. Kaupendur fá hana heimsenda. Heillaóskaskrá Friðriks Ólafssonar Friðrik Ólafsson Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, flutti nýlega í nýtt og glæsilegt hús í Fornubúðum 5, við höfnina í Hafnarfirði. Með þessu verður starfsemi Hafrannsóknastofnunar á höfuðborgarsvæðinu loks komin á einn stað. Rannsóknaskipin Árni Friðriks- son og Bjarni Sæmundsson fá lægi framan við húsið við Háabakka, nýjan hafnarbakka í Hafnar- fjarðarhöfn. Á sjómannadaginn 7. júní milli kl. 13 og 17 býður Hafrannsóknastofn- un öllum að skoða húsið. Stutt kynning verður á starfseminni og veitingar í boði. Gestir verða beðnir að sýna tillitssemi vegna sóttvarna en talið verður inn og út úr húsinu. Í Fornubúðum starfa um 130 manns og að auki eru um 40 manns í áhöfnum skipanna. Þá sinna margir háskólanemar námsverk- efnum sínum í húsinu. Hafrann- sóknastofnun rekur einnig Sjávar- útvegsskóla Þróunarsamvinnu- miðstöðvar UNESCO, sem er hluti af GRÓ - Þekkingarmiðstöð þróun- arsamvinnu. Opið hús hjá Hafró á sjómannadaginn Morgunblaðið/sisi STUTT Landsmenn hafa líklega ekki gleymt umræðunni um þriðja orkupakkann og þrjú tengd mál á Alþingi í fyrra. Þegar upp var staðið reyndist hún sú lengsta í þing- sögunni. Umræðan stóð yfir í nær 160 klukkustundir og þingmenn tóku 4.137 sinnum til máls. Ekki var óalgengt að þingfundir stæðu langt fram á nótt. Þingmenn Mið- flokksins beittu sér kröftuglega gegn málinu og voru löngum stundum einir á mælendaskrá. Fóru síðan í and- svör hver við annan. Umræðan um þriðja orkupakkann fór fram í tveimur lotum. Fyrri lotan var í fyrravor, þegar miðflokksmenn beittu málþófi, og sú síðari á stuttu þingi um síðustu mánaðamót. Lengsti þingfundurinn um málið stóð í 24 klst. og 16 mín., sem einnig er met. Svo fór að þings- ályktunartillagan um 3. orkupakkann var samþykkt með 46 atkvæðum gegn 13. Samkvæmt upplýsingum frá Alþingi fór langmestur ræðutími í sjálfan 3. orkupakkann, 777. mál. Þingmenn tóku 3.881 sinni til máls. Fluttar voru 492 þingræður í samtals 45 klukkustundir og 3.389 athugasemdir í sam- tals 102,32 klukkustundir. Ræðutíminn var því samtals 147,32 klst. Þrjú lagafrumvörp tengd orkupakkanum voru afgreidd á Alþingi. Um er að ræða 782. mál: raforkulög og Orku- stofnun, 791. mál: breytingu á þingsályktun nr. 26/148, um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og 792. mál: raforkulög. Þingmenn tóku 256 sinnum til máls um þessi mál, samtals í 12,38 klst. Var lengsta umræða þingsögunnar UMRÆÐAN UM ÞRIÐJA ORKUPAKKANN STÓÐ YFIR Í NÆR 160 KLUKKUSTUNDIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.