Morgunblaðið - 04.06.2020, Side 31

Morgunblaðið - 04.06.2020, Side 31
FRÉTTIR 31Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020 Ásgrímur Jónsson, fyrsti Íslendingurinn sem gerði mynd- list að aðalstarfi, hélt strax að loknu löngu námi í Dan- mörku austur í sveitir til að fanga liti og svipbrigði náttúr- unnar. Þetta var vorið 1909 og á miðju sumri fór Ásgrímur að Hæli í Gnúpverjahreppi og fór þá að leggja drög að stóru Heklumyndinni sem er eitt af þekktustu verkum hans. Kyrralífsmynd Á Heklumyndinni sjást sveitabæir í grösugri sveit; kyrralífsmynd eins og þær gerast fallegastar. Fjærst er svo fjallið háa; fallegt og hrikalegt í senn. Myndin er í eigu Listasafns Íslands og eitt af dýrmætustu verkum þess. Er einmitt núna uppi á sýningu í safninu sem ber yfirskriftina Fjársjóður þjóðar. „Farðu upp á Langhamra, þar sérðu þetta alveg tært,“ sagði Einar Gestsson, bóndi á Hæli, þegar blaðamaður kom við hjá honum á dögunum. Í brekkum fyrir ofan bæ- inn blasir dýrðin við og ekkert fer á milli mála þegar út- sýnið og málverkið eru borin saman hvar listamaðurinn Ásgrímur stóð. Stórbrotin að sjá Á Langhömrum reisti hann tjald og dvaldist drjúgan part úr sumri. Alls var Ásgrímur sex mánuði að mála þessa einu mynd, en tilurð hennar lýsti listamaðurinn í ævisögu sinni Myndir og minningar frá árinu 1956. „Sögur af Ásgrími og málverkinu hafa alltaf fylgt mér og Hekla er stórbrotin að sjá héðan af hömrunum,“ segir Einar á Hæli, mektarbýli þar sem margar kynslóðir hafa setið hver eftir aðra. Hælsættin er stór og hefur fólk af henni látið víða að sér kveða í ýmsum sviðum þjóðlífsins. Litið af Lang- hömrum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ljósmynd/Listasafn Íslands Fjallasýn Horft frá hömrunum ofan við Hæli til austurs að Heklu, sem sést til mjög víða af Suðurlandi. Svipur eldfjallsins er sterkur og ekki að furða að Ásgrímur Jónsson hafi spreytt sig á því að mála mynd af fjallinu, eins og hann gerði sumarið 1909. Blaðamanni var vísað á staðinn þar sem listmálarinn stóð með trönurnar – og sjá! Hér fer ekkert milli mála og sjónarhornið er auðþekkt. Fyrirmynd að frægu Heklumálverki Ásgríms Jónssonar er við bæinn Hæl Einar Gestsson TRÚLEGA BESTU VEIÐIGLERAUGUN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.